Segir að ekki hafi verið um kynþáttamiðaða löggæslu að ræða

Rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ist harma það að ungur drengur skyldi hafa ítrekað orðið fyrir áreiti við leit lög­regl­unnar að stroku­fanga í síð­asta mán­uði. Þó sé í þessu til­viki ekki um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu eða afskipti að ræða.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri mætti á opinn fund í allsherjar- og menntamálanefnd um fræðslu og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri mætti á opinn fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd um fræðslu og menntun lög­reglu­manna um fjöl­menn­ingu og for­dóma. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri segir að ekki hafi verið um að ræða „racial profil­ing“ eða kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu, eins og hug­takið hefur verið þýtt, þegar lög­reglan hafði tví­vegis afskipti af ungum dreng í apríl síð­ast­liðnum við leit að stroku­fanga.

Þetta kom fram í máli hennar á opnum fundi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um fræðslu og menntun lög­reglu­manna um fjöl­menn­ingu og for­dóma í morgun.

Mikið var fjallað um málið í fjöl­miðlum þegar lög­reglan hafði afskipti af 16 ára dreng í tvígang, dag eftir dag, vegna ábend­inga frá almenn­ingi um að hann væri stroku­fangi sem slapp úr haldi lög­regl­unnar um miðjan apríl. Dreng­ur­inn er dökkur á hör­und og með svip­aða hár­greiðslu og umræddur stroku­fangi.

Vildi geta stigið út úr sínu eigin húsi án þess að lög­­reglan stoppi sig

[links]Móðir drengs­ins sagði í sam­tali við Kjarn­ann á þessum tíma að hann hefði verið í algjöru áfalli eftir fyrra skiptið sem átti sér stað í strætó á þriðju­deg­inum. Hún hélt honum heima um kvöldið og um morg­un­inn hringdi hún í vinnu­veit­anda hans og bað um frí fyrir hann því hann væri ekki í stakk búinn til að mæta í vinn­una eftir áfallið dag­inn áður.

Raunum þessa 16 ára drengs var þó ekki lok­ið því lög­reglan mætti aftur á svæð­ið, í annað sinn, þegar mæðginin voru stödd í bak­aríi í Mjódd­inni dag­inn eftir.

Dreng­­ur­inn sjálfur vildi koma á fram­­færi skila­boðum í sam­tali við Kjarn­ann: „Ég væri til í að geta stigið út úr mínu eigin húsi og vera með vinum mínum án þess að lög­­reglan stoppi mig fyrir það hvernig ég lít út.“

„Við þurfum að hlusta betur á samfélagið“

Sigríður Björk þakk­aði á fund­inum í morgun fyrir tæki­færið til að ræða þessi mál. Hún sagði að lög­reglan væri þjón­ustu­stofnun sem ætti að passa það að veita þjón­ustu til þeirra sem á þurfa að halda.

„Við þurfum að hlusta betur á sam­fé­lagið. Það er verk­efnið sem við erum í.“ Hún sagði að lög­reglan væri nýbúin að klára stefnu­mótun og út úr henni hefði slag­orðið „Að vernda og virða“ komið. Hún væri þakk­lát fyrir að vera boðuð á fund­inn því umræða sem þessi skipti máli.

Varðandi umrætt mál þá sagði Sigríður Björk að í þessu til­felli hefði lög­regla ekki valið þann sem verið var að hafa afskipti af. „Við erum að fylgja eftir ábend­ingum frá almenn­ingi. Þannig að í þessu til­viki á ekki við að það sé kyn­þátt­miðuð lög­gæsla. Þetta er ein­fald­lega þannig að við erum að leita að hættu­legum manni, það koma ábend­ingar og við þurfum að fylgja þeim eftir. Við getum ekki valið úr að fylgja þeim ekki eftir vegna eðlis verk­efn­is­ins.“

Segir að sérsveitin hafi ekki „átt samskipti“ við drenginn

Hins­vegar sagð­ist Sigríður Björk harma það mjög að þessi ungi drengur skildi verða fyrir ítrek­uðu áreiti. Hún sagði þó að mik­ils mis­skiln­ings hefði gætt í fjöl­miðlaum­fjöllun, lög­reglan hefði skoðað öll mynd­bönd og nið­ur­staðan hefði verið sú að þetta hefði ekki verið þannig að sér­sveit­ar­menn hefðu „ruðst inn með vopn á lofti“. Þeir hefðu aldrei átt sam­skipti við dreng­inn og aldrei rætt við hann.

„Þeir einmitt eru þjálfaðir í að bera kennsl á fólk sem þýðir það að þeir sáu alveg um leið að þetta var ekki mað­ur­inn sem verið var að leita að. Í fyrra til­vik­inu gengu þeir út í end­ann á stræt­is­vagn­inum, sneru við og fóru út. Þetta er engu að síður mjög trámat­ískt fyrir dreng­inn,“ sagði hún.

Hún útskýrir að í seinna til­vik­inu hafi það nákvæm­lega sama gerst. „Þá kemur lög­reglu­maður inn, byrjar að spjalla við móð­ur­ina og það sem sagt verður sam­tal sem er til á upp­tökum og hefur verið birt. Þannig að í þessu til­viki er ekki um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu eða afskipti að ræða.“

Heyrðu sjónarmið sem þau áttuðu sig ekki á fyrir

Rík­is­lög­reglu­stjóri telur þó að mörg atriði séu þarna til umhugs­unar. „Til dæmis það að hvort við hefðum getað staðið okkur betur í að setja ein­hvers konar varn­að­ar­orð þegar við aug­lýsum eftir þeim sem verið var að aug­lýsa eftir – og svona sér­tækar aðgerðir sem við höfðum ekki hugsað út í. En við erum búin að eiga þessar sam­ræður við for­eldra drengs­ins og erum betur í stakk búin að meta þetta núna. Við erum búin að heyra sjón­ar­mið sem átt­uðum okkur ekki á og erum að vinna með.“

Hún sagði að þau í lög­regl­unni væru vak­andi fyrir kyn­þátt­mið­aðri lög­gæslu. „Það er raun­veru­lega óþol­andi að það skuli vera sak­laust ung­menni sem þarna á í hlut sem verður fyrir þess­ari trámat­ísku reynslu, jafn­vel þótt lög­reglan hafi verið að sinna sínu starfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár