Ríkislögreglustjóri segir að ekki hafi verið um bein afskipti að ræða

Að mati rík­is­lög­reglu­stjóra var ekki um bein afskipti að ræða þegar lög­regla fylgdi í tvígang eftir ábend­ingu um stroku­fanga sem lög­regla leit­aði að en reynd­ist vera 16 ára drengur. Í bæði skiptin. Málið er í rann­sókn hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Atvik sem áttu sér stað í apríl, þegar lög­regla fylgdi í tvígang eftir ábend­ingu sem sneri að stroku­fanga sem lög­regla leit­aði að, er til rann­sóknar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

Í bæði skiptin reynd­ist ekki um eft­ir­lýsta mann­inn að ræða heldur sextán ára dreng, sem er dökkur á hör­und og með svip­aða hár­greiðslu og umræddur stroku­fangi. Atvikin ýfðu upp umræð­una um kyn­þátta­­­mörk­un (e. racial profil­ing).

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri segir í ítar­legu við­tali við Kjarnann sem birt var um helg­ina að lög­reglan geti dregið ýmsan lær­dóm af atburð­unum í apríl. Rík­is­lög­reglu­stjóri kom fyrir alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd í maí þar sem hún ræddi verk­lag lög­reglu í mál­inu sem og fræðslu og menntun lög­reglu­manna um fjöl­menn­ingu og for­dóma. Á fund­inum sagði hún að ekki hafi verið um kyn­þátta­mið­aða lög­gæslu að ræða til­felli 16 ára drengs­ins. Hún stendur við þá full­yrð­ingu en bætir við að málið sé til skoð­unar hjá eft­ir­lits­að­ila.

„Við erum ekki rétta fólkið til að meta okk­ur“

„Við erum ekki rétta fólkið til að meta okk­ur. Það er eng­inn þar. Málið er komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu sem mun leggja óháð mat á þetta mál og afskipti lög­reglu,“ segir Sig­ríður Björk. Ekki liggur fyrir hvenær von er á nið­ur­stöðu nefnd­ar­inn­ar, rík­is­lög­reglu­stjóri á enn eftir að afhenda ýmis gögn vegna rann­sókn­ar­innar sem nefndin mun fara yfir áður en nið­ur­staða liggur fyr­ir.

[links]Um tveir mán­uðir eru nú liðnir frá því að lög­regla lýsti eftir stroku­fang­an­um. Í kjöl­farið spratt upp umræða, meðal ann­­ars á sam­­fé­lags­mið­l­um, þar sem margir for­­dæmdu vinn­u­brögð lög­­regl­unnar og lýstu yfir van­þókn­un.

Sig­ríður Björk fagnar umræð­unni sem fór af stað og telur hana mik­il­væga. Hún segir hins vegar að í raun hafi ekki verið um afskipti lög­reglu að ræða, líkt og fram hefur komið í fjöl­miðl­um.

„Við vorum að leita að manni sem var tal­inn hættu­legur sam­kvæmt sögu hans og við erum að tala um alvöru hættu. Við óskuðum eftir atbeina almenn­ings og aðstoðar almenn­ings, eins og við gerum oft,“ segir Sig­ríður Björk og bætir að sam­band lög­reglu við almenn­ing hafi bjargað manns­líf­um. Oft.

Lögreglu ber að endurskoða verklag

Sig­ríður Björk segir lög­regl­una gera sér fylli­lega grein fyrir því að reynslan hafi verið drengnum erfið og lög­reglu beri að end­ur­skoða verk­lag í málum sem þess­um. „Hefði sér­sveitin ekki átt að vera kölluð út í fyrra skipt­ið? Við gátum ekki annað vegna þess að við erum með óvopn­aða lög­reglu á Íslandi. Þegar við erum að leita að manni sem hefur beitt vopnum þá sendum við ekki óvopnað fólk í það. Það er bara vinnu­regla því við þurfum líka að hugsa um okkar starfs­menn. Hins vegar fórum við var­legar í seinna skiptið þannig að sér­sveitin var til stuðn­ings.“

Rík­is­lög­reglu­stjóri fund­aði í tvígang með drengnum og móður hans eftir atvikin tvö. „Það sem við lærum af þessu máli er mjög margt og það má í raun­inni skipta þessu við­fangs­efni sem horfir við okkur í tvennt. Ann­ars vegar við­mót og fram­koma íslensku lög­regl­unnar en hins vegar sú menn­ing sem fólk tekur með sér frá sínu heima­landi jafn­vel, þar sem það er með ákveðna reynslu eða jafn­vel vænt­ingar eða traust sem síðan yfir­fær­ist á okk­ur. Við getum ekki horft á okkar þátt afmark­að­an. Í huga fólks er lög­regla lög­regla og við þurfum að vinna upp það traust. Við þurfum að sanna það að við séum ekki að mis­muna, sýna for­dóma eða vera með óeðli­leg afskipti. Til þess þurfum við aukna fræðslu, eft­ir­lit og fylgja eftir hverju ein­asta máli.“

Því hafi málið verið sent til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu. „Við viljum að það verði farið yfir þetta allt sam­an. Og ef að það kemur í ljós að við hefðum getað gert hlut­ina öðru­vísi þá að sjálf­sögðu lærum við af því. Það sem ég hef verið að koma með inn í þessa umræðu er að sjálf­stætt mat lög­reglu hefur aldrei farið fram, við vorum að bregð­ast við ábend­ing­um,“ segir Sig­ríður Björk.

Hér er hægt að lesa við­talið við Sigríði Björk rík­is­lög­reglu­stjóra í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynþáttamörkun

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár