„Misskilningur“ olli því að mál 16 ára drengs rataði ekki til eftirlitsnefndar – fyrr en nú

Rík­is­lög­reglu­stjóri taldi að mál 16 ára drengs væri til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu. Vegna mis­skiln­ings reynd­ist svo ekki vera. Málið er nú komið til nefnd­ar­innar, tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri. Mynd: Bára Huld Beck.
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck. Mynd: Bára Huld Beck

Atvik sem áttu sér stað í apríl, þegar lög­regla fylgdi í tvígang eftir ábend­ingu sem sneri að stroku­fanga sem lög­regla leit­aði að, er ekki til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu. Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri taldi svo vera, líkt og kom fram í við­tali við hana í Kjarn­anum um helg­ina. Nefndin mun fá gögn frá rík­is­lög­reglu­stjóra í vik­unni og mun málið þannig kom­ast form­lega á dag­skrá hjá nefnd­inni, tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað.

Nokkurs mis­skiln­ings hefur gætt í mál­inu, ef marka má sam­skipti rík­is­lög­reglu­stjóra og nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu, sem Kjarninn hefur fengið upp­lýs­ingar um.

Málið sem um ræðir snýr að störfum og verk­lagi lög­reglu sem var að bregð­ast við ábend­ingum tengdum tví­tugum karl­manni sem slapp úr haldi lög­reglu við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í lok apríl. Í tvígang, á jafn mörgum dögum, brást lög­regla við ábend­ingum þar sem reynd­ist svo ekki um að ræða stroku­fang­ann heldur sextán ára dreng. Dreng­ur­inn er dökkur á hör­und líkt og stroku­fang­inn og með svip­aða hár­greiðslu.

Ríkislögreglustjóri taldi málið komið inn á borð nefndar um eftirlit með lögreglu

Atvikin ýfðu upp umræðu um kyn­þátta­mörkun (e. racial profil­ing) og sat rík­is­lög­reglu­stjóri fyrir svörum á opnum fundi alls­herj­­­ar- og mennta­­mála­­nefndar í maí þar sem hún ræddi verk­lag lög­­­reglu í mál­inu sem og fræðslu og menntun lög­­­reglu­­manna um fjöl­­menn­ingu og for­­dóma. Á fund­inum sagði hún að ekki hafi verið um kyn­þátta­mið­aða lög­­­gæslu að ræða til­­­felli 16 ára drengs­ins.

[adspot]Á fund­inum greindi rík­is­lög­reglu­stjóri einnig frá því að málið væri til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu. Svo reynd­ist ekki vera og lét full­trúi nefnd­ar­innar emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra vita. Engin kvörtun hafði þá borist til nefnd­ar­innar vegna máls­ins líkt og rík­is­lög­reglu­stjóri taldi.

Nefndin taldi ekki ástæðu til að taka upp málið að eigin frumkvæði

Á þessum tíma­punkti, í lok maí, var nefndin enn að skoða hvort rétt væri að taka málið upp að eigin frum­kvæði. Nefndin komst stuttu síðar að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri ástæða til þess að svo stöddu.

[links]Svo virð­ist sem þeim skila­boðum hafi ekki verið komið til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem full­yrti í við­tali við Kjarnann um síð­ustu helgi að málið væri til skoð­unar hjá nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu.

„Við erum ekki rétta fólkið til að meta okk­­ur. Það er eng­inn þar. Málið er komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­­­reglu sem mun leggja óháð mat á þetta mál og afskipti lög­­­reglu,“ segir Sig­ríður Björk meðal ann­ars í við­tal­inu.

Nefnd um eftirlit með lögreglu hafði samband við ríkislögreglustjóra eftir viðtal í Kjarnanum

Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir hjá nefnd­inni um hvenær von væri á nið­ur­stöðu sagði að engin kvörtun hefði borist vegna máls­ins og það væri því ekki til með­ferðar hjá nefnd­inni. Eftir að við­talið við rík­is­lög­reglu­stjóra birt­ist um helg­ina hafði full­trúi nefnd­ar­innar sam­band við emb­ættið. Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu ber ekki að upp­lýsa rík­is­lög­reglu­stjóra um hvaða mál koma inn á borð til hennar. Í þessu til­viki láð­ist emb­ætti rík­is­lög­regl­stjóra að upp­lýsa nefnd­ina um kvörtun vegna máls­ins og framsendi henni erindið þegar upp komst um það.

Í svari rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að mis­skiln­ings hafi gætt meðaal starfs­manna um að „máls­að­ili sjálfur ætl­aði að leita til nefnd­ar­innar, en það var ekki gert.“

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra ætlar sjálft senda inn upp­lýs­ingar vegna máls­ins og beita sér fyrir að málið sé skoðað. „Embættið ákvað það þegar ljóst var að málið væri ekki komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu í kjöl­far opins nefnd­ar­fund Alþingis,“ segir í svari emb­ætt­is­ins.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hélt því, í tvígang, að málið væri komið til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu, en svo reynd­ist ekki vera. Úr því hefur nú verið bætt og verður form­legt erindi og upp­lýs­ingar frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sent í vik­unni til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu vegna máls­ins, tveimur mán­uðum eftir að atvikin áttu sér stað.

Fordæmi fyrir því að ríkislögreglustjóri beiti sér fyrir því að nefndin taki upp mál

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu er sjálf­stæði og óháð stjórn­sýslu­nefnd og hefur verið starf­andi frá 1. jan­úar 2017. Eitt af meg­in­hlut­verkum nefnd­ar­innar er að taka við til­kynn­ingum frá borg­urum sem varða ætl­aða refsi­verða hátt­semi starfs­manns lög­reglu, starfs­að­ferðir lög­reglu eða fram­komu starfs­manns lög­reglu.

[adspot]Nefndin yfir­fer erindi sem henni ber­ast, greinir þau og kemur í við­eig­andi far­veg hjá sak­sókn­ara, við­kom­andi lög­reglu­stjóra eða rík­is­lög­reglu­stjóra. Þessum emb­ættum ber jafn­framt að til­kynna nefnd­inni um kærur og kvart­anir sem ber­ast emb­ætt­unum beint frá borg­urum.

„Í til­felli þessa máls er um að ræða til­kynn­ingu um meintar ámæl­is­verðar starfs­að­ferðir lög­reglu sem rík­is­lög­reglu­stjóri fékk munn­lega á fundi. Verið er að vinna erindi til nefnd­ar­innar af fund­inum, ásamt gögnum sem verður í kjöl­farið sent til nefnd­ar­innar í sam­ræmi við lög­reglu­lög og reglur um nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu,“ segir í svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra til Kjarnans um stöðu máls­ins. Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur áður beitt sér í að koma málum til nefnd­ar­innar.

Nefndin er skipuð þremur nefnd­ar­mönnum. Skúli Þór Gunn­steins­son lög­fræð­ingur er til­nefndur dóms­mála­ráð­herra og er hann jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar. Þorbjörg Inga Jóns­dóttir hæsta­rétt­ar­lög­maður er til­nefnd af Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands og Kristín Edwald hæsta­rétt­ar­lög­maður er til­nefnd af Lög­manna­fé­lagi Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eftirlitsnefnd

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár