Skýrslan sem Ísland ákvað að fjármagna vegna Samherjamálsins tilbúin til kynningar

Tæpum tveimur árum eftir að upp komst um vafa­sama við­skipta­hætti Samherja í Namibíu er nú til­búin skýrsla, sem Ísland fjár­magn­aði, sem er fyrsti þáttur í úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar í þró­un­ar­ríkjum.

Kristján Þór Júlíusson, sem brátt lætur af störfum sem sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sem brátt lætur af störfum sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Á morgun, mánu­dag, verður kynnt skýrsla af hálfu sjáv­ar­út­vegs­skrif­stofu Alþjóða­mat­væla­stofn­un­ar­innar (FAO) sem íslensk stjórn­völd höfðu frum­kvæði að því að láta vinna, í kjöl­far þess að ljóstrað var upp um vafa­sama við­skipta­hætti félaga á vegum Samherja í Namibíu í nóv­em­ber árið 2019.

Um er að ræða fyrsta hlut­ann af úttekt á við­skipta­háttum útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum með afla­heim­ildir í þró­un­ar­ríkjum, en að stuðla að slíkri úttekt var ein af þeim sjö aðgerðum sem rík­is­stjórnin boð­aði að ráð­ist yrði í, „í því skyni að auka traust á íslensku atvinnu­lífi“ eftir að Namib­íu­málið skók íslenskt sam­fé­lag.

Hvað verður í þessari skýrslu?

Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu vegna kynn­ingar skýrsl­unnar segir að und­ir­bún­ingur fyrir næsta áfanga þess­arar úttektar sé þegar haf­inn, en fyrsti áfang­inn er, eins og áður hefur komið í svörum ráðu­neyt­is­ins til Kjarnans, kort­lagn­ing á þeim fisk­veiði­samn­ingum sem um er að ræða.[links]

„Þetta er ekki upp­taln­ing á samn­ingum, heldur grein­ing á því hvernig slíkir samn­ingar eru: hvað þeir eigi sam­eig­in­legt og hvað sé ólíkt með þeim, með svæð­is­bund­inni áherslu sem tekur til­lit til mis­mun­andi aðstæðna og grein­ing á helstu efn­is­at­riðum fisk­veiði­samn­inga,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Í svari ráðu­neyt­is­ins sagði að FAO teldi að ekki væri til úttekt á þessu efni og því væri það „mik­il­væg for­senda fyrir frekara starfi í þessu sam­bandi að skýra við­fangs­efnið frekar með því að skoða mis­mun­andi gerðir og eðli samn­inga og mis­mun­andi stöðu milli hinna ýmsu svæða heims­ins“.

Unnið í tengslum við annað verkefni hjá FAO

Þegar Kjarninn spurði ráðu­neytið út í gang mála við úttekt­ina fyrir um ári síðan feng­ust þau svör að búið væri að móta verk­efnið og ná nið­ur­stöðu varð­andi ýmis forms­at­riði.

[adspot]

Í svar­inu sagði einnig að úttektin yrði unnin í tengslum við annað verk­efni sem er þegar væri gangi hjá alþjóða­stofn­un­inni, sem myndi ein­falda stjórn­un­ar­vinnu í kringum verk­efn­ið.

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar spurði Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra skrif­lega út í málið á þingi og fékk þau svör, í nóv­em­ber í fyrra, að verk­efnið myndi skipt­ast í fjóra áfanga og Ísland hefði ákveðið að fjár­magnað að minnsta kosti þann fyrsta.

Nú er sá áfangi að baki og verður skýrslan kynnt á veffundi sem hefst kl. 14 á morgun. Þar mun Liam Campling, pró­fessor við Queen Mary-háskól­ann í Lundúnum kynna nið­ur­stöður skýrsl­unnar. Hægt er að kynna sér málið nánar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár