Eitt erindi komið á borð HSÍ

Ótil­hlýði­leg hátt­semi starfs­manns Hand­knatt­leiks­sam­bands Íslands er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi var skoðuð hjá sam­band­inu.

Hand­knatt­leiks­sam­bandi Íslands (HSÍ) hefur borist eitt erindi er varðar ótil­hlýði­lega hátt­semi starfs­manns sem var skoðað og er lokið.

Þetta kemur fram í svari HSÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans en spurt var hvort ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni/áreiti eða ofbeldi hefðu borist á borð stjórn­enda HSÍ á síð­ustu fjórum árum.

Samkvæmt HSÍ kom eitt mál óbeint á þeirra borð fyrir þann tíma en það varð­aði sjálf­boða­liða hjá þeim „sem varð sekur um ótil­hlýði­lega fram­komu vegna starfa hans í félagi“.

[links]Mikið haf­arí var í kringum Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) í sumar og haust vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta. KSÍ stað­festi við Kjarnann í sept­em­ber að ábend­ing hefði borist sam­band­inu snemm­sum­ars um yfir 10 ára gam­alt mál er varðar alvar­legar ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi tveggja lands­liðs­manna gegn stúlku.

HSÍ hefur ekki beina aðkomu að málum sem koma upp innan félaganna

Í svari HSÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans vill sam­bandið benda á að mál sem koma upp innan félaga fari í ferli hjá félög­unum sjálfum sam­kvæmt leið­bein­ingum ÍBR og ÍSÍ eða sam­kvæmt reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum ef það á við og hafi HSÍ enga beina aðkomu að þeim.

Ef upp koma mál er tengj­ast starf­semi HSÍ þá sé þeim beint til sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta – og æsku­lýðs­starfs eins og kveðið er á um íþrótta­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár