KSÍ fékk ábendingu í byrjun júní um alvarlegt meint kynferðisbrot landsliðsmanna

KSÍ hefur stað­fest við Kjarnann að ábend­ing hafi borist sam­band­inu snemm­sum­ars um yfir 10 ára gam­alt mál er varðar alvar­legar ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi tveggja lands­liðs­manna gegn stúlku.

Guðni Bergsson hætti sem formaður KSÍ í lok ágúst.
Guðni Bergsson hætti sem for­maður KSÍ í lok ágúst. Mynd: Úr safni

KSÍ fékk ábend­ingu um meint atvik eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn stúlku „snemm­sum­ars á þessu ári“ eða 2. eða 3. júní síð­ast­lið­inn.

Þetta kemur fram í svari deild­ar­stjóra sam­skipta­deildar KSÍ við fyr­ir­spurn Kjarnans. Veit hann ekki nákvæm­lega í hvaða formi sú ábend­ing hafi komið inn á borð sam­bands­ins.

„Seinnipart sum­ars barst svo aftur skrif­leg ábend­ing. Frá KSÍ séð var for­mað­ur­inn með það mál á sínu borði. Við höfum ekki upp­lýs­ingar um það hvort KSÍ hafi haft ein­hverja sér­staka vit­neskju um það mál fyrir þann tíma.“ Sú ábend­ing kom með tölvu­pósti þann 27. ágúst, að því er fram kemur í svar­inu, eða degi eftir umtalað við­tal við for­mann sam­bands­ins, Guðna Bergsson, þar sem hann sagði að engar kvart­anir eða til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hefðu komið inn á borð KSÍ.

KSÍ svarar ekki hvort málið hafi farið í sér­stakan verk­feril þegar ábend­ingin barst í byrjun júní.

[adspot]

Neitaði að nokkur ábending hefði borist KSÍ

Málið hefur valdið miklum titr­ingi innan KSÍ en það hófst þegar Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir skrif­aði grein í Vísi þar sem hún sak­aði KSÍ um þöggun varð­andi kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lands­liðs­manna. Vísaði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010 sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum í byrjun maí en ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta. „Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henni,“ sagði meðal ann­ars í grein Hönnu Bjargar.

Guðni Bergsson sagði í sam­tali við fjöl­miðla dag­ana 25. og 26. ágúst að sam­bandið hefði ekki fengið inn á sitt borð til­kynn­ingar um að leik­menn lands­liða Íslands hefðu und­an­farin ár beitt ein­hvers konar ofbeldi. „Við höfum ekki fengið neinar til­kynn­ingar né ábend­ingar um slíkt inn á okkar borð síðan ég tók við for­mennsku en hins vegar erum við með­vituð um frá­sagnir á sam­fé­lags­miðlum,“ sagði hann við Frétta­blaðið.

Lagði sjálfur til að hann myndi stíga tímabundið til hliðar – stjórnin hafnaði þeirri tillögu

Í Kast­ljós­við­tali á RÚV end­ur­tók Guðni þá stað­hæf­ingu að engar kvart­anir eða til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hefðu komið inn á borð KSÍ. „Okkur er mjög umhugað um öryggi okkar iðk­enda og almenn­ings og hegðun okkar iðk­enda gagn­vart umhverf­inu. Við höfum vissu­lega ekk­ert farið var­hluta af þeirri umræðu sem hefur verið upp á síðkastið og und­an­farin ár, við tökum mið af því, en við verðum að fá ein­hvers konar til­kynn­ingu eða eitt­hvað slíkt, frá vitnum eða þolendum, og ef það ger­ist gætum við þess að þol­and­inn fái ákveðna aðstoð og hjálp og við tökum á því af ábyrgð og festu, og við stöndum svo sann­ar­lega gegn öllu ofbeldi, ekki síst kyn­bundnu og kyn­ferð­is­of­beldi, við gerum það.“

[links]Guðni sagði enn fremur að gagn­rýni á KSÍ vegna þessa væri ómak­leg. Eftir krísufund stjórnar KSÍ vegna máls­ins í lok ágúst sagði Guðni af sér for­mennsku eftir að hafa gegnt emb­ætt­inu síðan árið 2017.

Við birt­ingu fund­ar­gerða KSÍ síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld kom í ljós að Guðni hafði lagði fram á fyrr­nefndum krísufundi þá til­lögu að hann myndi stíga tíma­bundið til hliðar sem for­maður á meðan úttekt væri gerð á við­brögðum sam­bands­ins við þeim málum sem upp hefðu komið í tengslum við þær upp­lýs­ingar sem fram komu í fjöl­miðlum um kyn­ferð­is­brot.

Stjórnin hafn­aði þeirri til­lögu. „Fram kom að til­laga for­manns næði ekki fram að ganga og tók hann í kjöl­farið þá ákvörðun að segja af sér emb­ætti for­manns þegar í stað vegna með­höndl­unar og stöðu þeirra mála sem um ræðir og kvaðst munu ganga frá yfir­lýs­ingu þess efnis,“ segir í fund­ar­gerð stjórnar KSÍ frá 29. ágúst síð­ast­liðnum.

Hafa ekki upplýsingar um hvort vitneskja um ásakanir hafi verið til staðar innan KSÍ

Kjarninn sendi fyrstu fyr­ir­spurn­ina á KSÍ varð­andi málið þann 18. ágúst og velkt­ist hún á milli aðila innan sam­bands­ins í fimm vikur. Ómar Smárason, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar KSÍ, svar­aði fyr­ir­spurnum Kjarnans í vik­unni en sjá má svörin hér fyrir neðan:

Hefur KSÍ ein­hvern tím­ann haft vit­neskju um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta, sér í lagi áður en verk­ferlar voru end­ur­bættir?

Við höfum a.m.k. ekki upp­lýs­ingar um það.

Hefur KSÍ ein­hvern tím­ann haft afskipti af málum sem tengj­ast slíkum ásök­unum gegn lands­liðs­manni, sér í lagi áður en verk­ferlar voru end­ur­bættir?

(Hvað er átt við með „haft afskipti“?) Það hefur verið fjallað um mál Kolbeins Sig­þórs­sonar sem barst KSÍ í mars 2018. For­mað­ur­inn var með það mál á sínu borði frá KSÍ séð og við í sjálfu sér vitum lítið um hvaða sam­skipti áttu sér stað þar. Því máli lauk með sátt milli aðila, eins og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum, og við vitum í raun ekki meira. Við höfum a.m.k. ekki upp­lýs­ingar um mál fyrir þann tíma.

Hefur KSÍ hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda eða leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála ef og þegar grunur hefur verið um lög­brot?

KSÍ hefur a.m.k. nú sent mál til sam­skipta­ráð­gjafans, þ.e. þau sem KSÍ hefur fengið upp­lýs­ingar um.

Hefur KSÍ eða starfs­menn KSÍ haft vit­neskju um mál eða beitt sér/haft afskipti í málum án þess að kvörtun hafi borist á borð KSÍ?

(Í siða­reglum KSÍ er m.a. fjallað um til­kynn­ing­ar­skyldu full­trúa KSÍ). Ég get ekki svarað fyrir alla full­trúa KSÍ, en það er a.m.k. þannig að ef starfs­fólk KSÍ fær ábend­ingu, eða vit­neskju með ein­hverjum hætti um slík mál, þá kemur starfs­mað­ur­inn þeim upp­lýs­ingum auð­vitað áfram til við­eig­andi aðila hér inn­an­húss, til fram­kvæmda­stjóra eða for­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár