Vilja að sérstök nefnd fari yfir atburðarásina bak við afsögn formanns og stjórnar KSÍ

Stjórn KSÍ hefur óskað eftir því við Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð sam­bands­ins vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands.

Stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) hefur farið þess á leit við Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSÍ) að sett verði á stofn nefnd til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá KSÍ sem sam­bandið sendi frá sér í kvöld.

Nefnd­inni er ætlað að fara yfir þá atburða­rás sem leiddi til afsagnar for­manns og stjórnar KSÍ og bregð­ast við ásök­unum um þöggun. Þá á nefndin að taka sér­stak­lega til athug­unar hvort ein­hverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátt­töku kvenna í starfi þess. Í yfir­lýs­ing­unni segir að þetta sé gert í tengslum við full­yrð­ingar sem fram hafa komið í opin­berri umræðu um að KSÍ sé karllægt og frá­hrind­andi fyrir konur. Í því sam­bandi verði skoðað hvort skipu­lag KSÍ eða aðrir þættir í starf­sem­inni séu hamlandi fyrir þátt­töku kvenna í starf­inu.

Knatt­spyrnu­sam­bandið ítrekar afsök­un­ar­beiðni sína til þolenda í yfir­lýs­ing­unni og heitir því að vinna ótrautt að því að bæta menn­ingu og starfsanda innan hreyf­ing­ar­innar. KSÍ seg­ist vilja laga starfs­hætti sína að kröfum tím­ans um við­brögð við kyn­ferð­is­of­beldi. Í þessu skyni hafi verið leitað til sér­fræð­inga og ráð­gjafa til að aðstoða hreyf­ing­una við að vinna að úrbótum til fram­tíðar og bæta sam­skipti og upp­lýs­inga­flæði til sam­fé­lags­ins. Stjórn muni leit­ast eftir að upp­lýsa um fram­gang mála fram að auka­þingi.

[links]„KSÍ for­dæmir ofbeldi af öllu tagi. Knatt­spyrnu­sam­bandið er að bæta afgreiðslu ofbeld­is­mála og tryggja að þau fari í réttan far­veg hjá sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs eða lög­reglu. Mik­il­vægt er að skapa aðstæður til að gera raun­veru­legar úrbætur í takti við þá ráð­gjöf sem KSÍ hefur fengið og að upp­lýst sé jafn­óðum um þau skref sem stigin eru,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Klara komin úr leyfi

Samkvæmt KSÍ hafa tveir fag­hópar þegar tekið til starfa hjá ÍSÍ og KSÍ sem hafa það hlut­verk að skoða ferla, vinnu­brögð og heim­ildir til aðgerða hjá sam­bönd­unum. Telur sam­bandið að hægt verði að ráð­ast í breyt­ingar á grund­velli þeirra nið­ur­staðna. KSÍ seg­ist enn fremur ætla að bæta upp­lýs­inga­gjöf innan hreyf­ing­ar­innar og til almenn­ings og fjöl­miðla. Frá­far­andi stjórn og starfs­menn hafa óskað eftir ráð­gjöf frá sam­skipta­fé­lag­inu Aton.JL fram að auka­þingi.

Þá kemur fram að fund­ar­gerðir frá fundum sem leiddu til afsagnar for­manns og síðar stjórnar séu nú aðgengi­legar á vef­svæði KSÍ en fram kemur í yfir­lýs­ing­unni að töf hafi orðið á birt­ingu fund­ar­gerða vegna óvenju­legra kring­um­stæðna, þar sem for­maður hafði látið af störfum og fram­kvæmda­stjóri var í tíma­bundnu leyfi.

Þá seg­ist KSÍ ætla að veita nefnd ÍSÍ öll gögn sem óskað er eftir.

Að end­ingu kemur fram að KSÍ muni halda auka­þing sitt 2. októ­ber næst­kom­andi og hafi Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri, snúið til baka úr leyfi til að und­ir­búa það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár