Tæplega 77 prósent þjóðarinnar styður að markaðsgjald sé greitt fyrir aflaheimildir

Kjós­endur allra flokka eru fylgj­andi því að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu með þeim hætti að greitt verði mark­aðs­gjald fyrir kvóta. Miðað við síð­ustu gerðu við­skipti er virði afla­heim­ilda um 1.200 millj­arðar króna.

Alls segj­ast 76,6 pró­sent þjóð­ar­innar vera hlynnt því að útgerðir lands­ins greiði mark­aðs­gjald fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Sú leið nýtur mik­ils meiri­hluta­stuðn­ings hjá öllum hópum sam­fé­lags­ins, óháð því hvaða stjórn­mála­flokka þeir kjósa, hverjar tekjur þeirra eru, aldur, menntun eða búseta. Einungis 7,1 pró­sent lands­manna er and­vígur því að útgerð­irnar greiði mark­aðs­gjald fyrir kvóta.

Þetta kemur fram í net­könnun sem Gallup gerði fyrir hóp­inn þrýsti­hóp­inn Þjóð­ar­eign 21. júlí til 4. ágúst síð­ast­lið­inn. Úrtakið var 1.695 manns 18 ára og eldri all­staðar af land­inu og svar­endur voru 866.

Í núver­andi kerfi greiða þær útgerðir sem halda á kvóta veiði­gjald. Það var alls 4,9 millj­arðar króna á síð­asta ári. Frá hruni til loka árs 2019 nam sam­an­lagður hagn­aður útgerða lands­ins 439 millj­örðum króna, þegar búið var að draga veiði­gjöld og aðrar álögur frá. Á sama tíma­bili greiddu útgerð­irnar um 70 millj­arða króna alls í veiði­gjöld.

Þrjár blokkir halda á næstum helmingi kvóta

Það kerfi sem er við lýði hér­lendis byggir á því að afla­heim­ildum var úthlutað til útgerða án end­ur­gjalds með lögum sem tóku gildi árið 1983. Þetta kerfi er kallað kvóta­kerfið. Þeim var síðar heim­ilað að fram­selja þann kvóta til ann­arra útgerða gegn greiðslu.

[adspot]Árið 1997 var svo gefin heim­ild til að veð­setja afla­heim­ildir fyrir lánum, sem voru notuð til að kaupa upp kvóta eða eftir atvikum aðrar eignir. Þessi ákvörðun hefur gert marga þá sem héldu á kvóta mjög efn­aða.

Fyrir vikið hækk­uðu afla­heim­ild­irnar hratt í verði. Miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­heim­ildir þá er heild­ar­virði þeirra 1.195 millj­arðar króna. Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu fyrr á þessu ári að þrjár blokkir innan íslensks sjáv­ar­út­vegs: sú sem hverf­ist í kringum Samherja, sú sem hverf­ist í kringum Brim og sú sem hverf­ist í kringum útgerð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, haldi sam­tals á 45,6 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt mark­aðsvirði hans er um 544,8 millj­arðar króna miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­hlut­deildir hér­lendis.

Munur á stuðningi eftir því hvaða flokka fólk kýs

Í könnun Gallup kemur fram að kjós­endur allra flokka sem eiga mögu­leika á að ná inn á Alþingi séu þeirrar skoð­unar að greiða eigi mark­aðs­gjald fyrir aðgang að þess­ari verð­mætu auð­lind.

Minnstur er stuðn­ing­ur­inn hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins (53 pró­sent hlynnt en 17 pró­sent and­víg), Sjálf­stæð­is­flokks­ins (62 pró­sent hlynnt en 14 pró­sent and­víg) og Mið­flokks­ins (68 pró­sent hlynnt en 18 pró­sent and­víg).

Mestur er stuðn­ing­ur­inn hjá kjós­endum Pírata (97 pró­sent hlynnt), Við­reisnar (95 pró­sent hlynnt) og Sam­fylk­ingar (94 pró­sent hlynnt). Kjós­endur Vinstri grænna eru líka nær þessum flokkum í afstöðu en áður­nefndum þar sem 87 pró­sent þeirra eru hlynntir breyt­ing­unni.

Vert er að taka fram að kjós­endur Sós­í­alista­flokks Íslands, sem hefur mælst með umtals­vert fylgi í könn­unum und­an­farið, og Flokks fólks­ins eru ekki greindir sér­stak­lega í könn­un­inni.

Söfnuðu undirskriftarlistum gegn kvótasetningu makríls

Hópurinn sem lét gera könn­un­ina stóð að átak­inu „Þjóð­ar­eign“ árið 2015, sem fól meðal ann­ars í sér und­ir­skrifta­söfnun gegn afhend­ingu mak­ríl­kvóta í meira en eitt ár í senn fyrr en ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lind­inni væri komið í stjórn­ar­skrá. Undir þá söfnun skrif­uðu 53.571 manns.

[links]Frum­varpið var dregið til baka á sínum tíma en árið 2019 var mak­ríl­kvóta úthlutað í takti við veiði­reynslu án end­ur­gjalds. Ákvæði um þjóð­ar­eign á auð­lind­inni er ekki komið í stjórn­ar­skrá.

Í fyrra sendi hóp­ur­inn frá sér áskorun til for­seta Alþingis og allra þing­flokks­for­manna, þar sem hann fór fram á að fram færi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um tvær til­lögur um orða­lag auð­linda­á­kvæðis í stjórn­ar­skrá. Lagt var til að atkvæða­greiðslan fari fram ekki síðar en í lok júní 2020. Úr henni varð ekki.

Að­stand­endur átaks­ins eru Agnar K. Þor­steins­son, Bolli Héð­ins­son, Guð­rún Pét­urs­dótt­ir, Jón Sig­urðs­son, Jón Steins­son og Þor­kell Helga­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár