Húsnæðiskaupmáttur fólks á þrítugsaldri lækkaði um 46 prósent frá 2001 til 2019

Hag­vöxtur á Íslandi verður sá lægsti á meðal OECD-landa á þessu ári. BHM vill að stjórn­völd mæti heim­ilum lands­ins og tryggi að þau lendi ekki skulda­vand­ræðum vegna hús­næð­is­kaupa. Verð hús­næðis hafi hækkað meira hér en nán­ast alls staðar ann­ars­staðar.

Það verður sífellt dýrara, og flóknara, fyrir ungt fólk að kaupa húsnæði upp á eigin spýtur.
Það verður sífellt dýr­ara, og flókn­ara, fyrir ungt fólk að kaupa hús­næði upp á eigin spýtur. Mynd: Pexels

Kaup­máttur fólks á aldr­inum 20-29 ára hér­lendis gagn­vart hús­næð­is­kaupum lækk­aði um 46 pró­sent á árunum 2001 til 2019. Fyr­ir­liggj­andi misvægi í fram­boði og eft­ir­spurn er lík­legt til að hækka fast­eigna­verð enn frekar og draga enn meira úr getu ungs fólks til að kom­ast inn á hús­næð­is­markað.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri grein­ingu BHM á mik­il­vægi skatt­frjálsrar ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar fyrir heim­ili lands­ins.

Þar er einnig bent á að efna­hags­bat­inn sem spáð er hér­lendis sé til skamms tíma hæg­ari en víða ann­ars­staðar.

Í nýlegri þjóð­hags­spá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir því að hag­vöxtur í ár verði 2,6 pró­sent, en það er lægsti hag­vöxtur sem reiknað er með innan Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD).

Á grund­velli grein­ing­ar­innar hvetur BHM stjórn­völd til að leita allra leiða til að hjálpa heim­ilum lands­ins. Ein slík leið sé að fram­lengja hina skatt­frjálsu ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar, en úrræðið, sem hefur þegar verið fram­lengt tví­vegis og hefur verið í gildi frá miðju ári 2014, á að renna sitt skeið um mitt þetta ár að óbreyttu.

21 milljarður króna í skattafslátt

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að alls höfðu 62.952 ein­stak­lingar nýtt sér sér­eigna­sparnað sinn til að greiða inn á lán eða í útborgun fyrir íbúð í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. Í þeirri tölu er sam­skatt­aðir taldir sem tveir aðilar jafn­vel þótt að ein­ungis annar þeirra hafi greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns þeirra.

[adspot]Um er að ræða bæði þá sem nýttu sér­eigna­sparnað sinn til hús­næð­is­kaupa og -lána­nið­ur­greiðslu sam­kvæmt úrræði þess efnis sem kynnt var undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar vorið 2014 og þá sem nýttu sér „Fyrstu fast­eign­ar“ úrræð­ið, sem var kynnt í ágúst 2016 og kom til fram­kvæmda um mitt ár 2017.

Þetta þýðir að um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, hafa nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræð­i.

Sam­kvæmt tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann nemur umfang nýt­ingar Íslend­inga á úrræð­unum tveimur frá miðju árið 2014 og fram til loka jan­úar 2021 alls 92 millj­örðum króna. Í þeim tölum kemur einnig fram að áætluð lækkun tekju­skatts og útsvars frá því að úrræðin buð­ust fyrst og fram til síð­ustu ára­móta sé 21,1 millj­arður króna.

Húsnæðisverð hækkað miklu meira hér en almennt innan OECD

Í grein­ingu BHM er bent á að raun­hækkun, hækkun umfram verð­bólgu, á hús­næð­is­verði á Íslandi frá 2014 til 2020 hafi mælst 53 pró­sent. Eina landið innan OECD sem hefur upp­lifað meiri hús­næð­is­verðs­hækk­anir er Ung­verja­land en með­al­talið innan OECD er 23 pró­sent.

Á árinu 2020 einu saman juku heim­ili lands­ins hús­næð­is­skuldir sínar um nálægt 300 millj­arða króna og í grein­ing­unni er varað við því að áhrif vaxta­hækk­ana á greiðslu­byrði og fjár­hags­lega stöðu heim­ila þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er á enda kom­inn gætu orðið tölu­verð. „Fram­leng­ing á ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar til 2023 er mikil áhættu­ráð­stöfun fyrir heim­ili á tímum skerts afkomu­ör­yggis og auk­innar efna­hag­sóvissu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár