Samfylkingin fer „sænsku leiðina“ í Reykjavík og heldur ekki prófkjör

Það verður ekk­ert próf­kjör hjá Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar. Upp­still­ing­ar­nefnd hefur verið falið að stilla upp listum og leita eftir til­nefn­ingum frá flokks­fé­lögum.

Helga Vala Helgadóttir leiddi lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður fyrir síðustu kosningar.
Helga Vala Helga­dóttir leiddi lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík norður fyrir síð­ustu kosn­ingar. Mynd: Samfylkingin

Full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík hefur ákveðið að fela upp­still­ing­ar­nefnd að ganga frá fram­boðs­listum flokks í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur fyrir næstu alþing­is­kosn­ingar, sem fram eiga að fara í sept­em­ber á næsta ári. Ekkert próf­kjör verður því hjá flokknum í borg­inni.

Þessi ákvörðun var tekin á fundi full­trúa­ráðs­ins síð­asta fimmtu­dag. Í til­kynn­ingu þaðan sem barst fjöl­miðlum í dag segir að kallað verði eftir til­nefn­ingum frá flokks­fé­lögum í Reykja­vík í efstu sæti list­anna. Að því loknu muni fara fram könnun meðal flokks­fólks í borg­inni þar sem merkja skuli við þá ein­stak­linga sem þátt­tak­anda hugn­ast best af þeim sem til­nefnd eru.

Nið­ur­stöð­urnar verða ekki birtar opin­ber­lega, en upp­still­ing­ar­nefnd á að hafa þær til hlið­sjónar í sinni vinnu, sem á að ljúka í febr­úar. Þá á upp­still­ing­ar­nefndin að leggja listana fyrir alls­herj­ar­nefnd full­trúa­ráðs­ins til sam­þykktar.

Þessi aðferð, sam­kvæmt til­kynn­ingu full­trúa­ráðs­ins, hefur verið kölluð „sænska leiðin“ og verið notuð hjá Sós­í­alde­mókra­ta­flokknum í Svíþjóð.

Sam­fylk­ingin er með einn þing­mann í hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæmi í dag, Helgu Völu Helga­dóttur í Reykja­vík norður og Ágúst Ólaf Ágústs­son í Reykja­vík suður. Flokk­ur­inn fékk enga þing­menn kjörna í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum í kosn­ing­unum árið 2016.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár