Tveggja metra-regla endurvakin, starfsemi þarf að loka og keppnisíþróttum frestað

Sótt­varn­ar­læknir mun í dag gera til­lögu um hertar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í ljósi þess að kór­ónu­veirusmitum hefur fjölgað veru­lega síð­ustu daga. Í gær greindust alls 99 manns inn­an­lands með smit.

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mynd: Almannavarnir

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir mun síðar í dag senda til­lögu til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra um hert­ari aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna aukn­ingar á kór­ónu­veirusmitum und­an­farna daga.

[links]Í til­lögum Þórólfs er lagt til að nánd­ar­mörk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði aftur tveir metrar, en á öðrum stöðum á land­inu verði þau áfram einn metri. Áfram verður 20 manna sam­komu­há­mark, með þeim und­an­tekn­ingum að 50 manns mega vera við kirkju­legar útfarir og 30 manns mega koma saman í skóla­starfi í fram­halds- og háskólum.

Þá mun sótt­varn­ar­læknir gera til­lögu um að loka ýmis­konar starf­semi tíma­bundið og að öll keppn­is­starfi í íþróttum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði frestað í tvær vikur. Veit­inga­staðir munu mega hafa opið til klukkan 21 í stað 23 og hert verður á skyldu á notkun and­lits­gríma. Þórólfur vildi ekki svara því hvaða starf­semi það yrði sem myndi þurfa að loka fyrr en að heil­brigð­is­ráð­herra fái að lesa til­lögur hans, en sagði að þar væri undir ýmis­konar ein­yrkja­starf­semi.

[adspot]„Það eru von­brigði að við þurfum að grípa til þess­ara aðgerða, en ég held að það sé nauð­syn­legt í ljósi þró­unar far­ald­urs­ins, sér­stak­lega hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna sem hófst núna rétt eftir klukkan 15 í dag.

Þórólfur von­ast til þess að hertar aðgerðir muni taka gildi sem allra fyrst.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjón almanna­varn­ar­deild­ar, sagði að það þyrfti að skoða það sér­stak­lega hvort að lands­leikur Íslands og Rúmeníu, sem á að fara fram í vik­unni, fái að fara fram. Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hafi gert stjórn­völdum grein fyrir því að leik­ur­inn gæti haft í för með sér millj­arða króna ávinn­ing fari hann vel og því sé spurn­ing um hvort að hann eigi að skil­grein­ast sem þjóð­hags­lega mik­il­vægur atburður, og gæti þar með verið und­an­skil­inn því tíma­bundan banni sem lagt er til að leggja á keppn­is­í­þróttir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Tilmæli um einstaklingsbundnar sóttvarnaraðgerðir

Auk þeirra hertu aðgerða sem sótt­varn­ar­læknir mun í dag leggja til hefur rík­is­lög­reglu­stjóri sent frá sér til­mæli um hertar ein­stak­lings­bundnar sótt­varn­ar­að­gerð­ir. Til­mælin snúa að því að tak­marka ýmsa hópa­myndun auk þess sem hvatt er til þess að öllum við­burðum verði frestað næstu tvær vik­ur.

Rík­is­lög­reglu­stjóri mælist til þess að íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins:

  • Veri eins mikið heima við og hægt er
  • Veri ekki á ferð­inni til eða frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu meira en nauð­syn­legt er
  • Tak­marki fjölda í búð­um, þannig að helst einn úr fjöl­skyldu fari
  • Tak­marki enn frekar heim­sóknir til við­kvæmra hópa
  • Fresti öllum við­burðum næstu tvær vik­urnar
  • Geri hlé á starf­semi hvers kyns íþrótta-, tóm­stunda- og úti­vist­ar­hópa
  • Sleppi því að fara í sund nema ef þeir þurfa heilsu sinnar vegna
  • Tryggi að allir staðir og versl­anir sem opnir eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tryggi fjölda­tak­mark­anir eins vel og unnt er sem og hand­spritt fyrir alla.

99 smit í gær

Frá því fyrsta smitið af kór­ónu­veirunni var greint hér á landi þann 28. febr­úar hafa 3.079 greinst með COVID-19, yfir 140 verið lagðir inn á sjúkra­hús og tíu lát­ist. Í gær greindust 99 smit inn­an­lands sem er mesti fjöldi á einum sól­ar­hring frá því þriðja bylgja far­ald­urs­ins hófst um miðjan sept­em­ber. Fjórir liggja nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans vegna sjúk­dóms­ins.

221 dagur er lið­inn frá því að COVID-19 greind­ist í fyrsta sinn hér á landi. Og 195 dagar eru síðan met­fjöldi nýrra smita greind­ist: 106 til­felli af COVID-19 greindust á einum sól­ar­hring. Fjöld­inn fór aldrei aftur yfir 100 í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Flest urðu þau 99 eftir þetta og það gerð­ist þann 1. apr­íl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár