221 dagur

Tæplega hund­rað manns greindust með COVID-19 í gær og hafa ekki fleiri greinst á einum sól­ar­hring í rúm­lega hálft ár. Meiri­hlut­inn var í sótt­kví við grein­ingu. Fjórir liggja á gjör­gæslu­deild með sjúk­dóm­inn.

Fólkið í eldlínunni: Þríeykið Þórólfur, Alma og Víðir ásamt Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans, standa nú aftur í ströngu við að miðla upplýsingum til almennings og móta aðgerðir. Starfsfólk Landspítalans er aftur komið í hlífðarfatnaðinn.
Fólkið í eld­lín­unni: Þríeykið Þórólfur, Alma og Víðir ásamt Páli Matth­í­assyni, for­stjóra Land­spít­al­ans, standa nú aftur í ströngu við að miðla upp­lýs­ingum til almenn­ings og móta aðgerðir. Starfs­fólk Land­spít­al­ans er aftur komið í hlífð­ar­fatn­að­inn. Mynd: Samsett mynd

Frá því fyrsta smitið af kór­ónu­veirunni var greint hér á landi þann 28. febr­úar hafa 3.079 greinst með COVID-19, yfir 140 verið lagðir inn á sjúkra­hús og tíu lát­ist. Í gær greindust 99 smit inn­an­lands sem er mesti fjöldi á einum sól­ar­hring frá því þriðja bylgja far­ald­urs­ins hófst um miðjan sept­em­ber. Fjórir liggja nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans vegna sjúk­dóms­ins.

221 dagur er lið­inn frá því að COVID-19 greind­ist í fyrsta sinn hér á landi. Og 195 dagar eru síðan met­fjöldi nýrra smita greind­ist: 106 til­felli af COVID-19 greindust á einum sól­ar­hring. Fjöldinn fór aldrei aftur yfir 100 í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Flest urðu þau 99 eftir þetta og það gerð­ist þann 1. apríl.

„Við erum ekk­ert að grín­ast með þetta,“ hafði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna sagt nokkrum dögum fyrr. Á dag­legum upp­lýs­inga­fundum var hamrað á sömu skila­boð­unum: Sam­staðan ein mun skila árangri. Allir verða að gæta að sér, þvo sér vel um hendur og spritta og halda tveggja metra fjar­lægð við næsta mann.

Upp­lýs­inga­fund­irnir eru ekki eins tíðir í dag. Þeir eru nú yfir­leitt tvisvar sinnum í viku. Á þá mætir þrí­eykið enn og flytur okkur sömu skila­boð: Gætið að ykkur. Við verðum að standa saman.

[links]Ýmislegt hefur breyst frá fyrstu bylgj­unni. Sóttkví hefur verið stytt, hún er ekki lengur fjórtán dagar heldur lýkur eftir sjö daga með sýna­töku. Fólk er líka almennt styttri tíma í ein­angrun enda stöðugt verið að afla nýrrar þekk­ingar um sjúk­dóm­inn. Fleiri sýni eru tekin nú en í fyrstu bylgj­unni og 1 metra regla hefur tekið við af tveggja metra regl­unni.

En að sama skapi erum við komin á svip­aðar slóðir að mörgu leyti. Samkomur hafa aftur verið tak­mark­aðar við 20 manns. Háskóla- og fram­halds­skóla­nemar sitja flestir við tölvur sínar heima í stað þess að mæta í bygg­ingar skóla sinna. Húsnæði lík­ams­rækt­ar­stöðva eru lokuð og sótt­varna­læknir hvetur fólk til að vinna heima. Und­an­þágur frá sam­komu­tak­mörk­unum hafa verið veittar þjóð­hags­lega mik­il­vægum fyr­ir­tækjum, svo sem mat­væla­fyr­ir­tækjum.

Í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins greindust 1.810 með kór­ónu­veiruna. Í þriðju bylgj­unni, sem hófst að mati vís­inda­fólks við Háskóla Íslands þann 11. sept­em­ber, eða á 25 dögum hafa 879 greinst. Það er 223 færri en á jafn mörgum dögum í upp­hafi fyrstu bylgj­unnar.

„Þetta er allt öðru­vísi en í vor,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í gær. Hann tekur undir með Thor Aspelund líf­töl­fræð­ingi sem sagði í við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að þriðja bylgjan væri óút­reikn­an­legri en sú fyrsta. Erfiðara sé að ná utan um far­ald­ur­inn nú en þá. „Það er við­búið að það muni ekki takast að keyra veiruna jafn mikið niður og okkur tókst í vor vegna þess að veiran hefur náð að grafa sig meira niður í sam­fé­lag­inu. Þetta er allt öðru­vísi en þetta var í vor.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár