Staðan versnar í Danmörku en batnar í Svíþjóð

Fleiri ný smit grein­ast flesta daga í Danmörku en Svíþjóð þó sveifla sé á milli daga. Á meðan Danir hafa ákveðið að herða sam­komu­tak­mark­anir telur sótt­varna­læknir Sví­þjóðar að bráð­lega verði óhætt að aflétta ein­angrun aldr­aðra sem mælt hefur verið með.

Gestir fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn nýverið. Þú verða allir barir að loka á miðnætti í borginni.
Gestir fyrir utan skemmti­stað í Kaup­manna­höfn nýverið. Þú verða allir barir að loka á mið­nætti í borg­inni. Mynd: EPA

Danir frest­uðu nýverið aflétt­ingu tak­mark­ana á sam­komum. Þess í stað voru þær hertar á vissum svæðum, m.a. í Kaup­manna­höfn, þar sem hröð fjölgun smit­aðra hefur átt sér stað und­an­farið. Staðan er nú sú að fleiri til­felli af COVID-19 grein­ast þar dag­lega en í nágranna­rík­inu Svíþjóð sem var gagn­rýnt harð­lega í upp­hafi far­ald­urs­ins fyrir að stefna að hjarð­ó­næmi frekar en því að fletja kúr­f­una. Danir, sem voru einna fyrstir í Evrópu til að setja á harðar sam­komu- og ferða­tak­mark­anir, lok­uðu landa­mær­unum að Svíþjóð þegar útbreiðslan var þar hvað mest. Nú hefur dæmið snú­ist við.

Sam­dráttur í efna­hags­lífi vegna far­ald­urs COVID-19 hefur komið illa niður á ríkjum heims en þó mis­jafn­lega mikið. Ef litið er til Evrópu hefur sam­dráttur á evru­svæð­inu í heild verið 12 pró­sent frá upp­hafi far­ald­urs­ins en í Svíþjóð, sem hefur ekki tekið upp evru þrátt fyrir að vera í Evr­ópu­sam­band­inu, hefur sam­drátt­ur­inn numið 9 pró­sentum. Á þessu tíma­bili hefur Svíþjóð einnig færst frá því að vera það land þar sem far­ald­ur­inn er hvað útbreiddastur á heims­vísu í að vera í hópi örugg­ari landa.

[adspot]

Allt frá miðjum apríl hefur alvar­lega veikum sjúk­lingum fækkað sem og dauðs­föllum af völdum veiru­sýk­ing­ar­innar. Þetta segja þeir sem styðja hina umdeildu „sænsku leið“ vera til marks um að rétt hafi verið að setja ekki á stífar umgengn­is­reglur milli fólks heldur treysta hinum lög­hlýðna sænska almenn­ingi til að við­hafa per­sónu­legar smit­varnir en ná sam­tímis ónæmi í sam­fé­lag­inu.

Um 5.900 manns hafa dáið vegna COVID-19 í Svíþjóð. Það skipar land­inu í ell­efta sæti á heims­vísu þegar kemur að fjölda dauðs­falla á hverja 100 þús­und íbúa. Aðeins einu sæti ofar er að finna Banda­ríkin, sem einnig hafa verið gagn­rýnd fyrir aðgerða­leysi en þó helst mis­vísandi skila­boð til fólks frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Anders Tegnell, sótt­varna­læknir Sví­þjóðar, hefur sagt að mik­il­vægt sé að líta til þess að nú fari smitum fækk­andi dag frá degi. Hann segir útbreitt ónæmi fyrir veirunni skýra þetta að stórum hluta að hans mati. Nýverið sagði hann í við­tali við sænska rík­is­út­varpið að ef fram haldi sem horfir verði hægt að aflétta ein­angrun aldr­aðra sem mælt hefur verið með síð­ustu vikur.

Aðrir hafa bent á að sé það raunin hafi fórn­ar­kostn­að­ur­inn engu að síður verið gríð­ar­legur. Um 9 af hverjum tíu sem lét­ust í Svíþjóð í vetur og vor vegna COVID-19 var fólk sem var sjö­tugt eða eldra. Helm­ing­ur­inn bjó á hjúkr­un­ar­heim­ili.

Staðan í Danmörku er allt önnur enda þar snemma í far­aldr­inum gripið til harðra aðgerða, m.a. var skólum lokað, opin­berir starfs­menn beðnir um að vinna heima og þröngar skorður settar á ferða­lög yfir landa­mærin. Í heild hafa 628 lát­ist vegna COVID í land­inu sem eru mun færri dauðs­föll á hverja 100 þús­und íbúa en í Svíþjóð. Danir hafa verið grimmir í sýna­tökum og tekið hlut­falls­lega flest sýni af Norð­ur­landa­þjóð­unum. Hafa þeir tekið 466 sýni á hverja 100 þús­und íbúa á meðan Svíar hafa tekið um 60.

Spurt verður að leikslokum

En smit­unum fjölgar nú hraðar í Danmörku en handan Eyr­ar­sunds­ins og því hafa stjórn­völd ákveðið að herða stað­bundið aðgerðir og m.a. hvatt opin­bera starfs­menn í Kaup­manna­höfn og í Óðins­véum til að vinna heima þar til tek­ist hafi að koma böndum á hóp­sýk­ingar. Frá síð­asta föstu­degi og til mánu­dags greindust 566 ný til­felli. Þá fjölg­aði sjúk­lingum með COVID-19 á sjúkra­húsum einnig úr 18-29 á sama tíma­bili.

Danski smit­sjúk­dóma­sér­fræð­ing­ur­inn Jens Lundgren bendir á að Danmörku hafi vissu­lega tek­ist betur upp heilsu­fars­lega séð en Svíum í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. En spyrja verði að leikslokum.

Alls staðar eru vonir bundnar við þróun bólu­efnis gegn COVID-19. Þess er vænst að það komi jafn­vel á markað í lok þessa árs þó að ekki sé hægt að segja til um það með vissu á þess­ari stundu. Þar til bólu­efni kemur er hjarð­ó­næmi á heims­vísu mjög langt undan.

Þá ótt­ast sumir að far­ald­ur­inn geti blossað upp aftur í vetur sam­hliða meiri kulda og inni­veru fólks. Tegnell ótt­ast hins vegar ekki aðra stóra bylgju í Svíþjóð. Hann segir hópsmit eiga eftir að koma upp en að þau verði von­andi stað­bundin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár