Þorgerður Katrín: Af hverju þetta skyndilega sinnuleysi gagnvart eignarréttinum?

Formaður Við­reisnar spyr af hverju ekki sé hægt að taka til­lit til neyt­enda í aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar en hún telur að leiðin sem þau fara gangi frek­lega gegn stjórn­ar­skránni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, fjall­aði um neyt­enda­mál og aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins í dag­skrár­liðnum störf þings­ins í dag. Hún seg­ist hafa samúð með ferða­þjón­ust­unni – ekki síst með ferða­skrif­stofum sem glíma nú við lausa­fjár­vanda. Hún segir þó að leiðin sem rík­is­stjórnin hafi valið sé með ein­dæmum. „Það er með ólík­indum að rík­is­stjórnin hafi valið þá leið að ganga svo frek­lega á rétt neyt­enda.“

Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í vik­unni að ráð­ist væri að rétti neyt­enda úr öllum áttum. Ferða­skrif­stofur neit­uðu að end­ur­greiða ferðir sem ekki verða farnar. Lík­ams­rækt­ar­stöðvar, tón­listar- og mynd­lista­skólar rukk­uðu fyrir tíma sem ekki er hægt að nýta. Verði stjórn­ar­frum­varp sem nú er fyrir Alþingi að lögum væri verið að varpa lausa­fjár­vanda ferða­skrif­stofa yfir á herðar neyt­enda.

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, Jóhannes Þór Skúlason, svar­aði Breka og sagði það af og frá að neyt­endur væru gerðir að lána­stofn­unum fyrir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki.

Af því að neytendur eru ekki útgerðarmenn?

Þor­gerður Katrín vildi und­ir­strika að hún skildi lausa­fjár­vanda ferða­skrif­stofa og að hann þyrfti að leysa. Það yrði þó ekki gert með því að ganga á rétt­indi neyt­enda. „Ég sit í atvinnu­vega­nefnd og um þetta mál var engin umræða í morgun af því að greini­lega eru ein­hver áhöld um hvernig eigi að leysa málið innan stjórn­ar­flokk­anna. Það liggur líka ljóst fyrir að þessi leið rík­is­stjórn­ar­innar gengur frek­lega gegn 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar, gegn eign­ar­rétt­inum,“ sagði hún á þingi í dag.

Hún spurði af hverju þetta skyndi­lega sinnu­leysi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, þar með talið Sjálf­stæð­is­flokks­ins, væri gagn­vart eign­ar­rétt­inum. „Af hverju er ekki hægt að taka til­lit til neyt­enda? Af því að neyt­endur eru ekki útgerð­ar­menn? Af því að Neyt­enda­sam­tökin eru ekki sam­tök hags­muna­að­ila í útvegi?“ spurði hún og bætti því við að leiðin sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hefðu ákveðið gengi bæði gegn eign­ar­rétti og hags­munum neyt­enda.

„Við þurfum engu að síður að taka utan um ferða­skrif­stof­urnar. Ef málið breyt­ist ekki í með­förum nefnd­ar­innar mun ég þess vegna leggja til til­lögu í anda Dana, þ.e. að verja neyt­endur en halda líka uppi eðli­legu umhverfi, eins eðli­legu og hægt er í því ann­ar­lega umhverfi sem við búum við núna. Ég furða mig á leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem allt í einu sýnir svo skringi­legt sinnu­leysi gagn­vart eign­ar­rétt­inum,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár