Telur að mögulega sé verið að fela einkaaðilum að fara með opinbert vald

Rík­is­end­ur­skoðun leggur til að ef banki lánar fyr­ir­tæki stuðn­ings­lán með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð án þess að skil­yrði sett af Alþingi sú upp­fyllt eigi að fella niður ábyrgð­ina af lán­inu. Leiða megi hug­ann að því hvort lánin stand­ist stjórn­ar­skrá.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi skrifar undir umsögnina.
Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi skrifar undir umsögn­ina. Mynd: Skjáskot/RÚV

Rík­is­end­ur­skoðun segir að það fyr­ir­komu­lag að fela bönkum svokölluð stuðn­ings­lán, sem verða 100 pró­sent á ábyrgð rík­is­sjóðs, geri það að verkum að til „umhugs­unar er hvort að með þessum hætti sé í reynd verið að fela einka­að­ilum að fara með til­tekið opin­bert vald, þó með vissum tak­mörk­unum.“ Stofn­unin leggur til að ef banki lánar fyr­ir­tæki stuðn­ings­lán án þess að skil­yrði laga um veit­ingu slíkra lána séu upp­fyllt ætti rík­is­á­byrgð­ina á lán­inu að falla niður.

Þetta kemur fram í umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar um frum­varp til fjár­auka­laga 2020 sem lagt var fram í síð­ustu viku til að fjár­magna og lög­leiða þær aðgerðir sem stjórn­völd kynntu í svoköll­uðum aðgerð­ar­pakka 2.0.

[adspot]Í þeim pakka voru kynnt til leiks sér­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þarf að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lánin, sem munu njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgðar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks fyrir mán­uði síðan en hafa enn ekki komið til fram­kvæmda. Lánin til fyr­ir­tækj­anna verður hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau verða sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna eiga að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Velta fyrir sér rétti þeirra sem ekki fá lán

Rík­is­end­ur­skoðun segir í umsögn sinni að nær öll skil­yrði sem sett eru fyrir því að fá lán með fullri rík­is­á­byrgð séu hlut­læg, svo sem að tekju­sam­dráttur nemi ákveðnu hlut­falli af tekjum sama tíma­bils á árinu 2019, launa­kostn­aður hafi verið að minnsta kosti tíu pró­sent af rekstr­ar­kostn­aði og opin­ber gjöld séu ekki í van­skilum. Önnur skil­yrði séu mats­kennd­ari svo sem að ætla megi að rekstr­ar­að­ili verði verði rekstr­ar­hæfur þegar bein áhrif heims­far­aldar kór­ónu­veiru og aðgerðir stjórn­valda til að verj­ast henni eru liðin hjá.

Þetta fyr­ir­komu­lag geri í reynd ráð fyrir að lána­stofn­anir veiti lán að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum og ekki verður annað ráðið en að skylt sé að veita lánin séu skil­yrðin upp­fyllt og að baki þeim sé 100 pró­sent ábyrgð rík­is­sjóðs íslands. „Til umhugs­unar er hvort að með þessu hætti sé í reynd verið að fela einka­að­ilum að fara með til­tekið opin­bert vald, þó með vissum tak­mörk­unum. Hvaða rétt gæti það skapað hjá við­kom­andi rekstr­ar­að­ilum sem ekki kynnu að fá lán? Eiga slíkir aðilar ein­hvern máls­skots­rétt og þá hvert eða verður að líta á ákvæði frum­varpanna sem vísi­reglur?“

[adspot]Rík­is­end­ur­skoðun telur brýnt að ekki fari á milli mála að ef banki víkur frá skil­yrðum sem Alþingi hafi sett þá verði ábyrgð á „slíku ekki lögð á rík­is­sjóð ef greiðslu­fall á end­ur­greiðslu lána verður og lán­veit­ingin lendir í van­skilum.“

Auk þess telur Rík­is­end­ur­skoðun eðli­legt að fram komi í lögum að við­mið um tekjur, launa- og rekstr­ar­kostnað og annað slíkt verði sótt í skatt­skil við­kom­andi rekstr­ar­að­ila.

Standast lánin stjórnarskrá?

Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar gætu skap­ast ýmis álita­mál við fram­kvæmd útlán­anna og að nær úti­lokað sé að sjá fyrir þau öll. Um sé ræða afar óvenju­lega ráð­stöfun sem leiði hug­ann að því hvort að ákvæði frum­varps­ins auk þeirra skil­yrða sem sett eru fyrir stuðn­ings­lán­unum upp­fylli 40. grein stjórn­ar­skrá­ar­innar. Í þeirri grein segir að „engan má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Ekki má heldur taka lán, er skuld­bindi ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af fast­eignum lands­ins né afnota­rétt þeirra nema sam­kvæmt laga­heim­ild.“

[links]Rík­is­end­ur­skoðun segir í umsögn sinni að hún gangi út frá að þessa hafi verið gætt við samn­ingu frum­varpanna og þær óvenju­legu aðstæður sem nú séu uppi geri að verkum að ákvæði stjórn­ar­skrár­innar standi ekki í vegi fyrir því að skipa málum með áður­nefndum hætti. „Að lokum skal bent á að full rík­is­á­byrgð á lánum eins og hér er lagt til getur dregið úr ábyrgðar- og var­úð­ar­hegðun sem lána­stofnun ber almennt að beita við lán­veit­ingar. Þetta fyr­ir­komu­lag veldur því að þau skil­yrði sem setja á fyrir lán­veit­ingu þurfa að vera hlut­læg­ari en ella og draga þarf, eins og unnt er úr mats­kenndum skil­yrðum. Að þessu virtu mælir Rík­is­end­ur­skoðun með að fjár­laga­nefnd fjalli um þetta atriði í nefnd­ar­á­liti og leiði rök að því að rík­is­á­byrgð eigi að falla niður komi í ljós að skil­yrði fyrir lán­veit­ingu hafi ekki verið upp­fyllt en lán veitt af lána­stofnun allt að einu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár