Vilja lokunarstyrki fyrir knattspyrnufélög og hlutabótaleið fyrir leikmenn

Stjórn KSÍ vill að úrræði stjórn­valda vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19 verði líka látin ná til íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. Að óbreyttu fái hún ekki lok­un­ar­styrki og um 70 pró­sent þeirra sem starfi í hreyf­ing­unni geti ekki nýtt sér hluta­bóta­leið­ina.

Höfuðstöðvar KSÍ eru á Laugardalsvelli.
Höf­uð­stöðvar KSÍ eru á Laug­ar­dals­velli. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fer fram á það í áskorun til stjórn­valda að sum úrræði sem í boði eru fyrir rekstr­ar­að­ila og ein­stak­linga, og kynnt hafa verið til leiks í aðgerða­pökkum síð­ustu vikna, verði einnig látin nýt­ast íþrótta­hreyf­ing­unni.

Því sé mjög ábóta­vant í þeim úrræðum stjórn­valda sem kynnt hafa verið til þessa og úr því þurfi nauð­syn­lega að bæta. „Til dæmis getur íþrótta­hreyf­ingin ekki nýtt sér lok­un­ar­styrki þrátt fyrir að starf­semi á hennar vegum hafi verið stöðvuð í þágu sótt­varna. Eins nýt­ast launa­úr­ræði illa vegna fjölda hluta­starfa í hreyf­ing­unni, en þau úrræði geta ekki nema um 30% starfs­fólks knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar nýtt sér.“

Flestir leik­menn knatt­spyrnu­liða á Íslandi spila ekki knatt­spyrnu að aðal­starfi heldur er um hálf-atvinnu­mennsku eða áhuga­mennsku að ræða.

Skilyrði fyrir leiðunum

Í hluta­bóta­leið­inni svoköll­uðu er mark­miðið að vinnu­veit­endur haldi ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­menn sína eins og mögu­legt er, í stað þess að segja fólki upp. Til að ná þessu mark­miði hefur hið opin­bera skuld­bundið sig til að greiða allt að 75 pró­sent af launum þeirra sem skrá sig á leið­ina til 1. júní næst­kom­andi hið minnsta.

[adspot]Lok­un­ar­styrkirnir voru kynntir í síð­ustu viku. Í þeim felst að fyr­ir­tæki eða ein­yrkjar sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum munu geta fengið styrki úr rík­is­sjóði. Styrkirnir verða í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem geta sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau séu með opin­ber gjöld í skilum. Hver aðili mun geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki.

Vilja betrumbætur á úrræðum

Í áskorun stjórnar KSÍ segir að óhjá­kvæmi­legar sótt­varn­ar­að­gerðir stjórn­valda vegna far­ald­urs­ins hafi leitt af sér stöðvun á íþrótta­starf­semi í land­inu og komið sér mjög illa fyrir knatt­spyrnu- og íþrótta­hreyf­ing­una í heild sinni. „Rétt er að minna á að íþrótta­hreyf­ingin hefur á liðnum ára­tugum lyft grettistaki hvað varðar holla íþrótta­iðkun ungs fólks og fyllt þjóð­ina stolti yfir árangri afreks­fólks á inn­lendum og erlendum vett­vangi. Þennan árangur er mik­il­vægt að varð­veita með öllum til­tækum ráðum og búa í hag­inn fyrir enn frek­ari sókn.“

Þar segir að knatt­spyrnu­hreyf­ingin horfi til þess að aðgerðir rík­is­stjórnar og sveit­ar­fé­laga létti þeim róð­ur­inn þannig að lág­marka megi þann skaða sem þegar er orð­inn. Því beini stjórn KSÍ þeirri ein­dregnu áskorun til stjórn­valda að tryggja íþrótta­hreyf­ing­unni öfl­uga við­spyrnu á kom­andi vikum og mán­uðum. „Með betrum­bótum á þessum úrræðum ásamt öðrum aðgerðum myndi rekstr­ar­um­hverfi íþrótta­fé­lag­anna verða betra og félögin, sem ekki eru rekin í hagn­að­ar­skyni, geta frekar sinnt sínu mik­il­væga sam­fé­lags­lega hlut­verki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár