Lokunarstyrkir til fyrirtækja sem gert var að hætta starfsemi tímabundið eru skattskyldir

Lítið eft­ir­lit verður með því hvort að þær upp­lýs­ingar sem minni fyr­ir­tæki sem sækja um lok­un­ar­styrk eða stuðn­ings­lán frá rík­is­sjóði séu réttar eða ekki. Við­kom­andi verður gert að stað­festa að hann upp­fylli sett skil­yrði.

Frá kynningu á öðrum aðgerðarpakka stjórnvalda sem fór fram í gær.
Frá kynn­ingu á öðrum aðgerð­ar­pakka stjórn­valda sem fór fram í gær. Mynd: Bára Huld Beck

Lok­un­ar­styrkur, sem greiddur er til fyr­ir­tækja eða ein­yrkja sem þurft hafa að loka starf­semi sinni vegna bar­átt­unnar við veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum, telst til skatt­skyldra tekna sam­kvæmt lögum um tekju­skatt. Það þýðir að ef þau fyr­ir­tæki sem þiggja styrk­ina skila hagn­aði í ár að með­töldum lok­un­ar­styrkjum þá þurfa þau að greiða tekju­skatt af þeim hagn­aði öllum. Styrk­ur­inn telst þó ekki til skatt­skyldrar veltu sam­kvæmt lögum um virð­is­auka­skatt.

Í frum­varpi um fjár­stuðn­ing til minni rekstr­ar­að­ila, sem var birt á vef Alþingis í gær, kemur fram að til að fá lok­un­ar­styrk þurfi rekstr­ar­að­ili að upp­fylla nokkur skil­yrði. Í fyrsta lagi þarf við­kom­andi að hafa verið gert skylt að loka vinnu­stað sínum vegna sam­komu­banns­ins eða að láta af því að sinna þjón­ustu sem hann hefur lífs­við­ur­væri sitt af.

Í öðru lagi þarf við­kom­andi að sýna fram á að tekjur hans hafi verið að minnsta kosti 75 pró­sent minni í apríl 2020 en í sama mán­uði árið áður. Ef starf­semin hófst eftir 1. apríl 2019 þá eru tekjur hans í apríl 2020 bornar saman við með­al­tekjur á 30 dögum frá því að hann hóf starf­semi og til loka febr­úar 2020. Til að fá lok­un­ar­styrk þarf að hafa haft að minnsta kosti 4,2 millj­ónir króna í tekjur á síð­asta ári, eða 350 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði.

Það má ekki vera í van­skilum með opin­ber gjöld, skatta eða skatt­sektir og við­kom­andi má ekki hafa verið tek­inn til slita eða gjald­þrota­skipta.

[adspot]Styrk­ur­inn getur að hámarki orðið 800 þús­und krónur á hvern launa­mann sem starf­aði hjá rekstr­ar­að­il­anum en að hámarki 2,4 millj­ónir króna. Ef rekstr­ar­að­il­inn hefur fengið stuðn­ings­lán þá má lok­un­ar­styrk­ur­inn ekki vera „svo hár að sam­an­lögð fjár­hæð hans og láns­ins verði hærri en hámarks­fjár­hæð stuðn­ings­láns.“

Lítið eftirlit

Stuðn­ings­lánin, sem verða veitt með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð og sem stendur á 1,75 pró­sent vöxtum, voru líka kynnt í öðrum pakka stjórn­valda í gær og verða lög­fest í sama frum­varpi og lok­un­ar­styrkirnir. Þau standa til boða þeim sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli á 60 daga tíma­bili sam­fellt milli 1. mars og 30. sept­em­ber 2020, miðað við sama tíma­bil í fyrra.

[links]Til að fá þessi lán, sem geta að hámarki numið sex millj­ónum króna en þó í mesta lagi tíu pró­sent af rekstr­ar­tekjum við­kom­andi á síð­asta ári. Tekjur í fyrra þurfa auk þess að hafa verið að minnsta kosti níu millj­ónir króna en í mesta lagi 500 millj­ónir króna. Hér er því um að ræða skýrt afmark­aða fyr­ir­greiðslu til minni fyr­ir­tækja. Það má ekki að hafa greitt út arð, keypt eigin bréf, borgað út óum­samda kaupauka eða greitt af víkj­andi láni fyrir gjald­daga til að fá lánin. Lántaki þarf enn fremur að vera í skilum með öll opin­ber gjöld og skatta sem vor komin á eindaga fyrir lok síð­asta árs. Hann má heldur ekki hafa verið tekin til slita né bú hans til gjald­þrota­skipta. Að end­ingu er sett það skil­yrði að ætla megi „á grund­velli hlut­lægra við­miða varð­andi rekstur hans á und­an­gengnu ári, að hann verði rekstr­ar­hæfur þegar bein áhrif heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru og aðgerða stjórn­valda til að verj­ast útbreiðslu hennar eru liðin hjá.“

Lítið sem ekk­ert eft­ir­lit verður með umsóknum lok­un­ar­styrki og stuðn­ings­lán. Þeim sem sækja um þessa fyr­ir­greiðslu verður gert að stað­festa við umsókn að þeir upp­fylli sett skil­yrði fyrir henni, að veittar upp­lýs­ingar séu réttar og að „honum sé kunn­ugt um að það geti varðað álagi, sektum eða fang­elsi að veita rangar eða ófull­nægj­andi upp­lýs­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár