Alþingi mun einungis fjalla um mál tengd COVID-19 næstu 32 daga

For­sætis­nefnd hefur sam­þykkt að taka úr sam­bandi starfs­á­ætlun Alþingis fyrir 150. lög­gjaf­ar­þing frá og með deg­inum í dag.

For­sætis­nefnd hefur sam­þykkt að taka úr sam­bandi starfs­á­ætlun Alþingis fyrir 150. lög­gjaf­ar­þing frá og með deg­inum í dag að telja og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis í dag.

Á þeim tíma verða ein­göngu boð­aðir þing­fundir til að takast á við brýn mál sem tengj­ast COVID-19 heims­far­aldr­inum. Brott­fall starfs­á­ætl­unar þýðir einnig að komið getur til þing­funda á þeim tíma sem áður var reiknað með funda­hléi um páska, en þá ein­göngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráð­staf­ana vegna ástands­ins og atbeina Alþingis þarf til, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur sam­þykkti for­sætis­nefnd að hefð­bundin funda­á­ætlun fasta­nefnda væri tekin úr sam­bandi og ein­göngu yrði boðað til nefnda­funda í þeim nefndum sem þurfa að taka til umfjöll­unar þing­mál sem tengj­ast við­brögðum við COVID-19 far­aldr­inum. Óski aðrar fasta­nefndir eftir sem áður eftir því að funda þurfi að sækja um það sér­stak­lega til for­stöðu­manns nefnda­sviðs og fá fyrir því sam­þykki for­seta.

For­sætis­nefnd færir við­bragð­steymi Alþingis og starfs­fólki Alþingis öllu þakkir fyrir „ómet­an­leg störf við erf­iðar aðstæður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár