Er sandurinn í heiminum að klárast?

Þeim sem leið eiga um sunn­lensku sandana eiga kannski erfitt með að trúa því að sandur sé auð­lind, hvað þá tak­mörkuð auð­lind. En þótt nóg sé af þeim svarta Mýr­dals­sandi og fleiri slíkum er víða skortur á þessu mik­il­væga efni.

Þangað til fyrir örfáum árum hefðu flestir Íslend­ingar látið segja sér það tvisvar að skortur á sandi væri eitt­hvað sem gæti orðið vanda­mál. Hér á Íslandi hefur sandur þótt fremur óskemmti­legt fyr­ir­bæri, og auk þess þykir mörgum hann ljótur á lit­inn. Oftast kol­svartur og drunga­legur og þegar um hann er fjallað er það sjaldn­ast í jákvæðum tóni. „Það er myrkur og þoka og mein­legir skuggar á Mýr­dals­sandi og hvergi skjól að fá“ sungu þeir Bubbi og Rúnar í GCD.

Mýr­dals­sandur er kannski þekkt­astur íslenskra sanda, ekki síst vegna drauga­trúar sem lengi var við hann tengd. Dæmi eru um rútu­bíl­stjóra sem neit­uðu að aka sand­inn í myrkri. Sömu­leiðis er vitað til að fólk hafi ekki þorað út úr bíl í myrkr­inu á sand­inum ef skipta þurfti um dekk heldur beðið birt­ingar í bílnum. En þeir eru fleiri stóru sand­arnir á Íslandi: Skeið­ar­ár­sandur, Breiða­merk­ur­sandur, Sól­heima­sandur og Hóla­sandur koma fyrst upp í hug­ann en íslensku sand­arnir eru fleiri. Og svo eru það allar fjör­urnar, bæði margar og langar. Það er sem sé ekki skortur á sandi á Íslandi og þótt mikið sé byggt er óhætt að full­yrða að ekki verði hér skortur á sandi um ófyr­ir­sjá­an­lega fram­tíð.

Fyrstu kynni margra af sandi eru sand­kass­arnir sem hafa um ára­tuga skeið verið vin­sælir meðal barna, og þau stuttu telja sig iðu­lega þurfa að bragða á honum. Komast þá fljótt að því þótt gaman sé að moka er sand­ur­inn ekki ætl­aður til átu. Íslend­ingar líta almennt ekki á sand sem verð­mæti, hann er bara þarna og not­aður í stein­steypu, við vega­gerð og fleira. En þótt Íslend­ingar líti ekki á sand sem sér­stök verð­mæti gildir ekki það sama um margar aðrar þjóðir. Það er nefni­lega komið í ljós að sand­ur­inn er ekki óþrjót­andi, að minnsta kosti ekki sandur sem hentar til mann­virkja­gerðar. 

Singapúr

Flest ríki sem þurfa að flytja inn sand nota hann í hús­bygg­ingar og önnur mann­virki. Smáríkið Singapúr í Suð­austur – Asíu flytur inn meiri sand en nokk­urt annað ríki í heim­inum. Sá sandur sem Singapúr­arnir flytja inn fer ekki nema að litlu leyti í hús, hann fer að mestu leyti í það að stækka landið. Íbúa­fjöldi Singapúr hefur meira en þre­fald­ast síðan landið sagði skilið við Bretland árið 1963 og nú losar íbúa­fjöld­inn 6 millj­ónir. Stjórn­völd hafa ein­ungis eitt úrræði til að bregð­ast við þess­ari miklu fjölgun í landi sem þegar er mjög þétt­setið: stækka landið í sjó fram. Og, það er nákvæm­lega það sem Singapúr­arnir hafa gert og á síð­ustu árum hefur flat­ar­mál þessa litla lands (sem er nú 725 fer­kíló­metrar) auk­ist um meira en 20 pró­sent.

Þessa land­fyll­ingu, sem er að mestu gerð úr sandi hafa þeir orðið að flytja inn. Sand­ur­inn hefur verið fluttur inn frá Indónesíu, Malasíu, Kambódíu og Tælandi. Þessi inn­flutn­ingur hefur ekki allur verið fluttur inn sam­kvæmt lögum og reglum. Sem dæmi má nefna að fyrir nokkrum árum sögð­ust yfir­völd hafa flutt inn 3 millj­ónir tonna sands frá Malasíu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum mala­sískra yfir­valda var inn­flutn­ing­ur­inn 133 millj­ónir tonna. Mis­mun­ur­inn 130 millj­ónir tonna, af ólög­legum sandi. Þessum sandi er öllum mokað upp af ströndum lands­ins og þegar magnið er svona gíf­ur­legt hefur það áhrif. Sömu sögu er að segja frá Indónesíu, yfir­völd þar segja að að sand­námið skapi mik­inn vanda á lág­lendum eyjum.

Hvað með Sahara og sandana á Arabíuskaganum?

Flestir hafa séð myndir frá Sahara eyði­mörk­inni og sand­auðn­unum á Arab­íu­skaga­naum og því má spyrja hvort ekki sé hægt að flytja eitt­hvað úr þessum risa­sand­bingjum þangað sem þörf er á. Svarið við því er að vissu­lega væri það hægt en gall­inn er, svo ótrú­lega sem það kann að hljóma, að sand­ur­inn í Sahara og á Arab­íu­skag­anum er ónot­hæfur í stein­steypu. Hann er ein­fald­lega of mjúkur og fín­gerður. Sand­ur­inn í hæstu bygg­ingu heims Burj Khalifa í Dubai (829,8 metrar á hæð) var fluttur inn frá Ástralíu, sand­ur­inn á heima­slóðum var ónot­hæfur.

Kínverjar steypa og steypa

Á und­an­förnum árum hefur mikið verið fjallað um þær miklu breyt­ingar sem átt hafa sér stað í Kína. Þar fjölgar þeim, sem flytja úr sveit­unum í þétt­býlið, um millj­óna­tugi árlega og hús­næð­is­þörfin því mikil. Og það þarf ekki bara að byggja hús, það þarf líka að leggja vegi. Und­an­farin ár hafa Kín­verjar árlega lagt 146 þús­und kíló­metra af steyptum götum (steypti kafl­inn fyrir botni Beru­fjarðar er sem dropi í hafið) og Kín­verjar gera ráð fyrir að þessi upp­bygg­ing vega­kerf­is­ins haldi áfram í mörg ár. Það segir líka sitt að á árunum 2011 – 2014 not­uðu Kín­verjar meira magn stein­steypu en Banda­ríkja­menn gerðu alla 20. öld­ina. Kín­verjar eru enn sem komið er sjálfum sér nógir um sand og það gildir líka um Indverja.

Veldur áhyggjum

Í nýrri skýrslu frá Sam­ein­uðu þjóð­unum kemur fram að árið 2060 verði árleg notkun sands 82 millj­arðar tonna. Og þetta mikla sand­nám sé meira en jörðin getur með góðu móti borið. Í skýrsl­unni kemur fram að sums­staðar sé byggt miklu meira íbúð­ar­hús­næði en þörf sé fyrir og brýnt sé að kunna sér hóf í þeim efnum og jafn­framt beri að end­ur­nýta bygg­inga­efni í auknum mæli.

Skýrslu­höf­undar segja að umfjöllun um þetta mik­il­væga efni, sand­inn, hafi fram til þessa verið verið tak­mörkuð. Nauð­syn­legt sé að það breyt­ist og reyndar sjá­ist þess nú merki að þjóðir heims séu að átta sig á nauð­syn þess að bregð­ast við, sand­ur­inn sé að renna úr stunda­glas­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár