Íhaldssamt öfga-hægri sem stendur gegn kvenfrelsi

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir að orð­ræða sumra þing­manna um þung­un­ar­rofs­frum­varpið end­ur­spegli bakslag í íslenskum stjórn­málum og póli­tíska sveiflu íhalds­samra öfga-hægri sjón­ar­miða.

„Mér fannst dap­ur­legt að við skulum vera að upp­lifa það árið 2019 að það sé talað með þessum hætti. En þetta end­ur­speglar nátt­úru­lega ákveðna póli­tíska sveiflu sem er í lönd­unum í kringum okkar, sem er ákveðið íhalds­samt öfga-hægri sem stendur að jafn­aði líka gegn kven­frelsi.“

Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, þegar þau ræddu orð­ræðu ýmissa þing­manna um þung­un­ar­rof í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur var í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr við­tal­inu hér að neðan.

Umræðan um þung­un­ar­rofs­málið, sem var afgreitt sem lög frá Alþingi á þriðju­dag, var oft mjög hörð og þar tók­ust gjör­ó­lík sjón­ar­mið á. Meðal ann­ars skil­aði Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, inn minni­hluta­á­liti í vel­ferð­ar­nefnd þar sem hann sagð­ist vera þeirrar skoð­unar að þeg­ar líf sé myndað af tveimur ein­stak­lingum þá sé „of langt gengið að annar ein­stak­ling­ur­inn hafi einn ákvörð­un­ar­vald um það hvort enda skuli með­göng­una. Þannig er mikil ábyrgð lögð á verð­andi móður eina.“ Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagði í pontu á Alþingi að verið væri að „taka ákvörðun um það að 22 vikna gam­alt barn verði drepið í móð­ur­kviði,“ og Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist í sjón­varps­þætti ótt­ast að fóstrum yrði eytt „vegna kyns“ ef frum­varpið yrði sam­þykkt.

[adspot]Svandís sagði að þessi staða end­ur­spegli einnig ákveðið póli­tískt bakslag í íslenskum stjórn­málum. „Við höfum verið, held ég að jafn­aði þeirrar skoð­unar, að við vildum standa með þeirri sjálfs­mynd íslenskra stjórn­mála að við stæðum fram­ar­lega á heims­vísu í kynja­jafn­rétt­is­málum. þessar raddir tog­uðu í hina átt­ina.“

Aðspurð um hvort að þung­un­ar­rofs­málið hafi reynst rík­is­stjórn­inni erfitt, þar sem ekki var ein­hugur innan stjórn­ar­flokk­anna um það, segir hún svo ekki vera. „Ég held að ástæðan hafi verið sú að þegar ég kynnti málið við rík­is­stjórn­ar­borðið til að byrja með þá kynnti ég það sem mál sem að ég gerði ekki kröfu til þess að allir stjórn­ar­þing­menn gengu að borð­inu eins og gildir að jafn­aði um stjórn­ar­frum­vörp, vegna þess að ég átt­aði mig á því þá þegar að málið væri mjög gjarnan þvert á flokka og þvert á póli­tískar skoð­anir.“

[links]Síðan hafi málið þró­ast þannig þing­inu að fimm stjórn­mála­flokkar hafi staðið heilir á bak­við málið. „Þar af eru tveir stjórn­ar­flokkar og þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar. Ég held að það sé líka svo­lítið eins­dæmi um það hvernig land liggur í lok atkvæða­greiðslu. En ég held að þetta mál sé þeirrar gerðar að það verði aldrei fyrst og fremst stjórn­ar­frum­varp.“

Svandís segir að hún hafi kynnt málið fyrir þing­flokkum hinna tveggja stjórn­ar­flokk­anna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins, áður en hún mælti fyrir því í þing­inu. „Og raunar líka ein­hverjum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum vegna þess að ég vissi að þetta mál ætti sér breið­ari stuðn­ing en sem nemur okkur í rík­is­stjórn­inni sem stöndum að mál­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kvenfrelsi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár