Svandís: Tíðni þungunarrofa eykst ekki með lengingu leyfilegs tíma

Heil­brigð­is­ráð­herra segir ekk­ert benda til þess að færsla á ramma til þung­un­ar­rofs í 22. viku með­göngu auki tíðni síð­bú­inna rofa. Sem femínista hafi verið ein­boðið fyrir hana að setja málið á dag­skrá.

„Töl­fræðin segir okkur það að verði ekki til þess að þung­un­ar­rof sé fram­kallað síðar.“ Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra aðspurð um það hvort að því fylgi aukn­ing í þung­un­ar­rofi ef að ramm­inn til að fram­kvæma slíkt er lengdur.

Hún bendir á að tölur frá Hollandi, þar sem ramm­inn fyrir þung­un­ar­rof er 22 vikur, Bret­landi, þar sem ramm­inn er 24 vikur, og frá Kanada, þar sem eng­inn rammi er, styðji þetta. „

„Í raun og veru þá virð­ist þetta hafa virkað þannig að þegar frest­ur­inn er lengri þá virð­ist svo vera að tíðnin auk­ist ekki síðar. Það verður ekki til þess að það verði algeng­ara að þung­un­ar­rof sé fram­kvæmt seint. Heldur þvert á móti.“

Þetta er meðal þess sem Svandís sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur var í gær.

Hægt er að sjá stiklu úr við­tal­inu hér að neðan.

Þung­un­ar­rofs­frum­varp Svan­dísar var sam­þykkt á Alþingi á þriðju­dag með 40 atkvæðum gegn 18, en þrír sátu hjá, í atkvæða­greiðsl­unni. Málið var umdeilt og klauf flokka. Þannig greiddi t.d. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, atkvæði gegn frum­varp­inu, einn ráð­herra í rík­is­stjórn­.

[adspot]Helsta and­staðan var við grein lag­anna sem heim­ilar þung­un­ar­rof fram á 22. viku með­göngu óháð því hvaða ástæður liggja að baki. Áður þurfti ákvörðun um þung­un­ar­rof svo seint á með­göngu að fara fyrir nefnd sem varð að gefa leyfi.

Svandís bendir á að frum­varpið hafi notið mik­ils stuðn­ings, sem hafi farið þvert á hefð­undnar víg­línur stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu. Á end­anum hafi fimm flokkar staðið heilir á bak­við frum­varpið, tveir úr stjórn og þrír úr stjórn­ar­and­stöðu. „Stuðn­ingur við frum­varpið varð, þegar öll er á botn­inn hvolft, mjög mik­ill og umtals­vert meiri en sem nemur venju­legum stjórn­ar­meiri­hluta því að stuðn­ing­ur­inn var 40 atkvæði.“

[links]Hún segir að það hafi verið rætt á sínum tíma þegar síð­asta lög­gjöf um málið var sett, á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, að sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur kvenna ætti að vera kjarni þeirrar lög­gjafar. „Það var í raun og veru brotið á bak aftur og búin til ein­hvers­konar mála­miðlun sem að fól það í sér a ðnefnd þyrft iað koma að. Ég hef verið þeirrar skoð­unar alla tíð að þetta hafi verið barns síns tíma í raun og veru strax og lög­gjöfin varð til 1975. Það eru 44 ár síðan.“

Svandís segir að þegar hún kom heil­brigð­is­ráðu­neytið hafi verið til­búin drög að frum­varpi um málið sem síð­ustu tveir ráð­herrar mála­flokks­ins, Kristján Þór Júl­í­us­son og Óttars Proppé, höfðu komið að. „Þegar ég kem að borð­inu, sem femínisti og bar­áttu­kona fyrir jafnri stöðu kynj­anna, þá fannst mér algjör­lega ein­boðið að fara í þetta mál.“

Verið sé að færa lög­gjöf­ina til nútím­ans og styrkja stöðu kvenna á sama tíma og lög­gjöf í ýmsum löndum í kringum okkur og sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum er að að toga í hina átt­ina. „Áskor­unin var ennþá meiri vegna þess að við eru ekki á frjáls­lynd­is­bylgu akkúrat núna heldur meira að vinna gegn aft­ur­halds­bylgju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár