Ákærð fyrir morð vegna fósturláts

Ung kona í El Salvador er ákærð fyrir morð vegna fóst­ur­láts. Mál hennar hefur varpað ljósi á ofsóknir yfir­valda El Salvador gegn konum sem missa fóstur.

Evelyn Beatríz Hernández Cruz.
Evelyn Beatríz Hernández Cruz. Mynd: Ríkissaksóknari El Salvador.

Kona í El Salvador hefur verið ákærð fyrir morð vegna fóst­ur­láts. Konan, Evelyn Beatríz Hernández Cruz, hafði verið í fang­elsi í 33 mán­uði áður en henni tókst að áfrýja máli sínu. Evelyn var nauðgað sem ung­lingur og varð hún ólétt í kjöl­farið. Hún seg­ist ekki hafa vitað af því að hún væri ólétt þar sem hún hafi farið á blæð­ingar nokkrum sinnum á meðan með­göng­unni stóð. Mál hennar hefur varpað ljósi á ofsóknir yfir­valda í El Salvador gegn konum sem missa fóstur.

Yfirvöld í El Salvador saka Evelyn um að hafa vitað af ólétt­unni og að hún hafi rofið þung­un­ina, en þung­un­ar­rof er ólög­legt í El Salvador. Evelyn er nú 21 árs en var 18 ára þegar hún varð ólétt. Kemur hún frá fátækri fjöl­skyldu og mætir nú í annað sinn fyrir rétt. The Guardian greinir frá.

[adspot]Dæmd til 30 ára fangelsisvistar

Dán­ar­dóm­stjór­inn sem fór með mál Evelyn skráði dán­ar­or­sök barns­ins sem lungna­bólgu í kjöl­far sýk­ingar vegna barna­biks. Þrátt fyrir það var Evelyn dæmd til 30 ára fang­els­is­vistar.

Evelyn fær nú að ganga frjáls leiða sinna eftir 33 mán­aða fang­els­is­vist, þar sem áfrýjun á máli hennar tókst. Hins vegar hefur Evelyn verið kærð á ný og mun þurfa að dæma í máli hennar að nýju.

Nayib Bukele, for­seti El Salvador, hefur lýst því yfir að engin kona ætti að vera dæmd í fang­elsi vegna erf­ið­leika á með­göngu. Hann er þó afar and­vígur rétti kvenna til þung­un­ar­rofs.

Afar íhaldssamt samfélag

Í El Salvador búa sex millj­ónir íbúa og hefur kaþ­ólska kirkjan mikil völd á stefnu stjórn­valda þar í landi og hefur þung­un­ar­rof hefur verið ólög­legt frá árinu 1998. Síðan þá hafa tugir kvenna verið ofsóttir fyrir morð eftir að hafa misst fóstur eða fætt and­vana barn. Flestar þeirra eru fátækar konur úr sveitum.

Ofbeldi gegn konum er einnig afar algengt í El Salvador, þar sem ein kona er myrt á 15 klukku­stunda fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kvenfrelsi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár