Eigendur Morgunblaðsins setja 200 milljónir króna í viðbót í reksturinn

Hlutafé í Þórsmörk, eig­anda Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, var aukið um 200 millj­ónir í jan­úar. Auk þess var veitt heim­ild til að auka hluta­féð um 400 millj­ónir til við­bótar á þessu ári. Eigendur hafa þegar lagt rekstr­inum til 1,6 millj­arða á tíu árum.

Hlutafé í Þórsmörk ehf., eig­anda Árvakurs, var aukið um 200 millj­ónir króna þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn. Auk þess var sam­þykktum félags­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­féð um allt að 400 millj­ónir króna til við­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

Þetta kemur fram í skjölum sem send hafa verið inn til fyr­ir­tækja­skráar vegna hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar og breyt­inga á sam­þykktum.

[adspot]Árvakur er útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og útvarps­stöðv­ar­innar K100. Félagið er eina eign Þórs­merkur. Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­rekstur á und­an­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé. Tap félags­ins á árinu 2017 var til að mynda 284 millj­ónir króna. Það var fimm­falt meira tap en árið 2016. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2017 tap­aði félagið tæp­lega 1,8 millj­örðum króna. Miðað við það að eig­and­inn, Þórsmörk, er að leggja því enn til nýtt fé verður að telj­ast lík­legt að tap hafi verið á rekstr­inum í fyrra líka.

Peningarnir koma ekki frá nýjum fjárfestum

Í Frétta­blað­inu í dag er haft eftir Sig­ur­birni Magn­ús­syni, stjórn­ar­for­manni Þórs­merkur, að hluta­fjár­aukn­ingin hafi öll komið frá þeim hlut­höfum sem fyrir voru. Því hafi hlut­hafa­hópur félags­ins ekki tekið breyt­ingum. Nýjar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald hafa ekki verið sendar til fjöl­miðla­nefndar. Samkvæmt heima­síðu hennar, þar sem eign­ar­hald á fjöl­miðlum lands­ins er sýnt, voru slíkar upp­lýs­ingar síð­ast upp­færðar fyrir um einu og hálfu ári síðan, eða í sept­em­ber 2017.

Félög tengd Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja eru sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum með sam­an­lagt stærstan eign­­ar­hlut í Þorsmörk, og þar með Árvakri. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­­bjargar Matt­h­í­a­s­dótt­­ur, aðal­­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,45 pró­­sent hlut. Hlynur A mat eign­ar­hlut sinn í Þórs­mörk á 177,7 millj­ónir króna í lok árs 2016 en mat eign­ar­hlut­inn á 135 millj­ónir króna í lok árs 2017. Það þýðir að heild­ar­virði Þórs­merk­ur, og þar af leið­andi Árvak­urs, fór úr um 1.080 millj­ónum króna í 820 millj­ónir króna á einu ári.

Aðrir stórir eig­endur eru félagið Ramses II, í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, með 22,87 pró­sent eign­ar­hlut og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, í gegnum félagið Íslenskar sjáv­ar­af­urðir, með 15,84 pró­sent eign­ar­hlut. Flestir minni eig­endur eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum.

Við­skipta­banki Árvak­urs, Íslands­banki, hefur afskrifað um 4,5 millj­arða króna af skuldum félags­ins frá árinu 2009. Þorri þeirra afskrifta átti sér stað í aðdrag­anda þess að félagið var selt nýjum eig­enda­hópi á því ári. Síð­ari lota afskrifta átti sér svo stað árið 2011 og var upp á einn millj­arð króna.

Fjárfest í útvarpsrekstri

Þegar árs­reikn­ingur Árvakurs fyrir árið 2017 var gerður opin­ber í byrjun sept­em­ber í fyrra birt­ist frétt um rekstur félags­ins í Morg­un­blað­inu. Þar sagði Har­aldur Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóri Árvak­urs og annar rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, að rekstr­ar­um­hverfið væri erfitt og að það hafi bitnað á rekstr­in­um. Sam­keppnin við Rík­is­út­varpið hefur farið harðn­andi vegna auk­inna umsvifa þess, einkum á aug­lýs­inga­mark­aði. Erlend sam­keppni hefur einnig harðnað mjög og þar keppa inn­lendir miðlar við erlenda miðla sem búa við allt aðrar aðstæð­ur, svo sem í skatta­legu til­liti og í tæki­færum til aug­lýs­inga­sölu. Enn­fremur hefur launa­kostn­aður hér á landi hækkað ört og fyrir fyr­ir­tæki þar sem sá liður vegur lang­sam­lega þyngst í rekstr­in­um, þá er óhjá­kvæmi­legt að það hafi veru­leg áhrif. Hluti af tapi síð­asta árs stafar þó einnig af því að við erum að byggja upp nýja starf­semi og sú upp­bygg­ing hefur kostað tölu­vert fé, en við gerum ráð fyrir að hún muni skila sér í auknum tekj­um, meiri hag­kvæmni og jákvæðri afkomu.

Sú nýja starf­semi fólst fyrst og síð­ast í kaupum á útvarps­stöð­inni K100 árið 2016 og fjár­fest­ingum í upp­bygg­ingu hennar. Henni hefur ekki tek­ist blanda sér í bar­átt­una við stærstu útvarps­stöðvar lands­ins á þeim tíma sem lið­inn er frá því að Árvakur keypti hana. Í síð­ustu mæl­ingum Gallup, sem sýna hlustum um síð­ustu mán­aða­mót, mæld­ist hlut­deild K100 í hlustun 2,7 pró­sent. Bylgjan var á sama tíma með mesta hlut­deild í hlustun, 36,7 pró­sent, og rík­is­út­varp­stöðv­arnar tvær, Rás 2 (26,4 pró­sent) og Rás 1 (24,6 pró­sent) fylgdu þar fast á eftir.

mbl.is enn í sterkri stöðu en lestur blaðsins dalar

Lestur Morg­un­blaðs­ins hefur dalað hratt á und­an­förnum árum, líkt og flest allra prent­miðla, þrátt fyrir að blaðið hafi nú um nokk­urt skeið í raun verið blanda af áskrift­ar­blaði og frí­blaði, þar sem að það er í aldreif­ingu flesta fimmtu­daga, þegar því er dreift inn á öll heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu án end­ur­gjalds.

[links]Árið 2009, þegar nýir eig­endur tóku við blað­inu og núver­andi rit­stjórar þess, Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen, voru ráðn­ir, lásu 43 pró­sent lands­manna blað­ið. Í síð­ustu mæl­ingu Gallup, sem sýnir lestur í jan­úar 2019, mæld­ist lest­ur­inn 24,1 pró­sent. Í ald­urs­hópnum 18-49 ára mæld­ist hann 14,4 pró­sent. Ekki er við­búið að miklar breyt­ingar verði á skipan mála á Morg­un­blað­inu í nán­ustu fram­tíð. Davíð sagð­ist í við­tali við Páll Magn­ús­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þátta­stjórn­anda á K100, í maí 2018 að hann liti svo á að hann gæti setið í rit­stjóra­stóli í fimm, sex eða sjö ár til við­bótar. Í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í fyrra­sumar kom fram að Davíð væri með 5,7 millj­ónir króna á mán­uði, sem gerðu hann að tekju­hæsta fjöl­miðla­manni lands­ins. Þau laun eru þó að hluta til eft­ir­laun vegna ráð­herra­setu hans og starfa sem seðla­banka­stjóri á árunum 2005 til 2009. Haraldur, meðrit­stjóri hans og fram­kvæmda­stjóri Árvakurs, var í öðru sæti á list­anum með tæp­lega 4,4 millj­ónir króna á mán­uði og Logi Bergmann Eiðsson, dag­skrár­gerð­ar­maður hjá Árvakri, í fjórða sæt­inu með tæp­lega 1,8 milljón króna á mán­uði.

Þar með er þó ekki nema hálf sagan sögð vegna þess að mikið af efni úr Morg­un­blað­inu fer líka inn á mbl.is, umfangs­mesta frétta­vef lands­ins árum saman, sem rekur einnig stóra og öfl­uga rit­stjórn. Samkvæmt nýj­ustu mæl­ingum Gallup voru meðal not­endur vefs­ins í síð­ustu mældu viku 168.232 og viku­legir not­endur alls 454.226. Vísir.is, hinn ris­inn á vefrétta­mark­aði, er þó á afar svip­uðum slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár