Bankasýslan og ráðherra kalla eftir upplýsingum um launamál ríkisbankastjóra

Bæði Bjarni Bene­dikts­son og Banka­sýsla rík­is­ins hafa krafið Lands­bank­ann og Íslands­banka um svör vegna launa banka­stjóra þeirra með því að senda þeim bréf.

Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka, hefur sent báðum bönkum bréf þar sem farið er fram á upp­lýs­ingum um launa­mál banka­stjóra þeirra beggja. Þá hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, einnig sent bréf til bank­anna vegna sama máls.

Í bréfi Bjarna er óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvernig hafi verið brugð­ust við til­mælum sem þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Benedikt Jóhann­es­son, sendi stjórnum þeirra beggja í jan­úar 2017 , sem síðar voru ítrekuð, um að gæta var­kárni við launa­á­kvarð­anir. Bréf Bjarna er svohljóð­andi:

„Þann 6. jan­úar 2017 sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið erindi til stjórna fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu, vegna ákvörð­unar launa og starfs­kjara fram­kvæmda­stjóra félaga í meiri­hluta­eigu rík­is­ins, sem féllu þann 1. júlí 2017 undan ákvörð­un­ar­valdi kjara­ráðs með lögum nr. 130/2016. Erindið var einnig sent til stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins í þeim til­gangi að stjórnir fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu yrðu upp­lýstar um efni þess. Erindið var sent aftur til stjórna og Banka­sýsl­unnar, eftir að árs­fundir félag­anna höfðu verið haldnir og þeim kosnar nýjar stjórnir, með tölvu­bréfi ráðu­neyt­is­ins þann 30. júní 2017.

Í erind­inu var vísað til ákvæða almennrar eig­anda­stefnu rík­is­ins og eig­anda­stefnu fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki um launa­stefnu. Var því beint til stjórna, m.a. með til­vísun til mik­il­vægis stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði, að launa­á­kvarð­anir yrðu var­kárar og að forð­ast yrði að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili. Ráðu­neytið beindi þeim til­mælum til stjórna að erindið yrði kynnt á stjórn­ar­fundi og haft til hlið­sjónar við launa­á­kvarð­anir. Einnig var þess óskað að erindi ráðu­neyt­is­ins yrði sent dótt­ur­fé­lögum, þar sem ákvarð­anir um laun fram­kvæmda­stjóra þeirra hefðu fallið undir kjara­ráð.

Ráðu­neytið aflar nú reglu­bundið upp­lýs­inga um launa­kjör fram­kvæmda­stjóra félaga í rík­i­s­eigu, sbr. 39.a. gr. laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins nr. 70/1996. Upp­lýs­ingar um þróun launa­kjara fram­kvæmda­stjóra ýmissa félaga í eigu rík­is­ins benda til þess að ekki hafi í öllum til­fellum verið farið að ofan­greindum til­mælum. Svo virð­ist sem hluti stjórna hafi ekki tekið til­lit til til­mæla ráðu­neyt­is­ins um að ekki verði ákvarð­aðar miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili og að launa­stefna end­ur­spegli ekki aðeins sam­keppn­is­hæfni heldur einnig hóf­semi og að var­færni sé gætt í launa­þróun. Sé sú raunin má ætla að gengið hafi verið á svig við ákvæði eig­anda­stefnu.

Af þessu til­efni er óskað eftir því að stjórnir og Banka­sýsla rík­is­ins upp­lýsi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um það hvernig brugð­ist hafi verið við þeim til­mæl­unum sem beint var til þeirra með bréfi ráðu­neyt­is­ins frá jan­úar 2017, sem síðar var ítrekað, og í hvaða mæli þau hafa verið höfð til hlið­sjónar við ákvörðun launa fram­kvæmda­stjóra. Hafi stjórnir ákvarðað fram­kvæmda­stjórum launa­hækk­anir umfram almenna launa­þróun, er óskað eftir því að þær færi rök fyrir þeim ákvörð­unum með til­vís­unar til eig­anda­stefnu.

Einnig er þess óskað að bréfið verði sent stjórnum dótt­ur­fé­laga, þar sem laun fram­kvæmda­stjóra féllu áður undir kjara­ráð og þær beðnar um að upp­lýsa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um sömu atriði.

Athygli Banka­sýslu rík­is­ins er vakin á því að til­mælin eiga einnig við um Íslands­banka og skal þá gerð grein fyrir með hvaða hætti ákvarð­anir um laun banka­stjóra tóku mið af úrskurði kjara­ráðs (2017.4.003), sem skil­greindi sam­bæri­leg við­mið um launa­setn­ingu banka­stjór­ans og giltu um laun ann­arra fram­kvæmda­stjóra félaga, þó að úrskurð­ur­inn hafi ekki komið til fram­kvæmda fyrir ofan­greinda laga­breyt­ingu. Þá er óskað eftir því að Banka­sýsla upp­lýsi hvort og með hvaða hætti starfs­kjara­stefna Íslands­banka tók breyt­ingum þegar eign­ar­hald bank­ans færð­ist frá einka­að­ilum og til rík­is­ins.

Óskað er eftir því að erindi þessu verði svarað innan viku eða eigi síðar en 20. þ.m.“

Bankasýslan sendi einnig

Á heima­síðu Banka­sýslu rík­is­ins er greint frá því að stofn­unin hafi sent Lands­bank­anum og Íslands­banka bréf en mikil umræða hefur verið um laun banka­stjóra rík­is­bank­anna frá því að það kom fram í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans að laun banka­stjóra hans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, hefðu verið hækkuð í 3,8 millj­ónir króna í fyrra. Það þýðir að laun hennar hafi hækkað um 82 pró­sent á um tveimur árum. Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hefur einnig haft mjög góð laun, en hún var með 4,8 millj­ónir króna í laun og árang­urstengdar greiðslur á árinu 2017. Í gær sendi Íslands­banki frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom að Birna hefði óskað eftir því í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að laun hennar yrðu lækkuð og að þau séu nú 4,2 millj­ónir króna á mán­uði.

Í bréfum Banka­sýsl­unnar til banka­ráðs Lands­bank­ans og stjórnar Íslands­banka er óskað eftir upp­lýs­ingum um laun banka­stjóra þeirra beggja og að svar ber­ist raf­rænt innan viku, eða fyrir lok dags 19. febr­úar.

Hægt er að lesa bréfið sem sent var til Íslands­banka hér.

Hægt er að lesa bréfið sem sent var til Lands­bank­ans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár