Mikilvægustu augnablik styrjaldarinnar á hvíta tjaldið

Kvik­myndin Dunkirk um Dynamo-áætl­un­ina 1940 er frum­sýnd í kvik­mynda­húsum á Íslandi í dag.

Stór­myndin Dunkirk í leik­stjórn Christopher Nolan er frum­sýnd á Íslandi í dag. Myndin hefur þegar fengið afbragðs dóma og er sögð vera á pari við önnur stór­virki Nolans.

Og það sem meira er: Gagn­rýnendur segja hana ein­hverja bestu stríðs­mynd fyrr og síðar.

Í mynd­inni er sögð sagan af flótta inni­lok­aðra breskra og franskra her­manna í strand­bænum Dunkirk í Frakk­landi yfir Ermar­sund til Bret­lands árið 1940. Mikið úrval leik­ara leikur í mynd­inni, meðal ann­ars Tom Hardy, Cillian Murphy og Kenneth Banagah svo ein­hverjir séu nefndir.

Þjóð­verjar höfðu þá brot­ist í gegnum Marginot-lín­una og hrundið vörnum Frakka. En þegar aðeins einn bær á meg­in­landi Evrópu var eftir undir stjórn banda­manna ákváðu þýsku her­for­ingj­arnir, með sam­þykkti Adolfs Hitlers, að stöðva sókn skrið­dreka­deilda og land­göngu­liða um stund.

Það varð 338.226 breskum og frönskum dátum til lífs.

Ákvörðun þýskra her­for­ingja og Hitlers að stöðva sókn­ina að Dunkirk, á meðan nær allt her­lið Bret­lands og Frakk­lands stóð í fjör­unni og beið eftir flutn­ingi yfir Ermar­sundið, er talin vera ein versu mis­tök Þýska­lands í stríð­inu. Sagn­fræð­ingar hafa tek­ist á um þýð­ingu þess­arar ákvörð­unar og vilja sumir segja að þarna hafi Hitler byrjað að tapa stríð­inu.

Kjarninn ákvað að rekja í stuttu máli aðdrag­and­ann að flótt­anum sem sagt er frá í kvik­mynd­inni Dunkirk.

[adspot]

Þjóðverjarnir koma

Eftir að hafa ráð­ist inn í Pólland án telj­andi mót­spyrnu árið 1939 færði þýski her­inn sveitir sínar á vest­ur­víg­stöðv­arnar við landa­mæri Þýska­lands að Hollandi, Belgíu, Lúx­em­búrg og Frakk­landi.

Frakkar og Bretar stóðu handan landamær­anna í Frakk­landi við Maginot-lín­una (landa­mærin milli Frakk­lands og Þýska­lands) og við landa­mæri Frakk­lands að Belgíu. Belgía var hlut­laust ríki svo breskum og frönskum her­sveitum var ekki leyft að stilla upp vörnum þar.

Mik­il­vægt er að benda á að Bretar höfðu stærstan hluta af her­afla sínum í Frakk­landi á þessum tíma, á fyrri hluta árs 1940 og ætl­uðu að verja Frakk­land fyrir árás Þjóð­verja.

Bretar stilltu sér upp vest­ast við víg­lín­una enda bjugg­ust allir við að Þjóð­verjar myndu end­ur­taka leik­inn síðan í fyrri heims­styrj­öld­inni (þ. Schleiffen plan) og mar­sera í gegnum Belgíu. Það varð raunin og um leið og Þjóð­verjar stigu yfir landa­mærin til Belgíu hófu Bretar og Frakka sókn sína inn til Belgíu einnig.

Það var hins vegar ekki gert ráð fyrir að skrið­dreka­deild Þýska­lands kæm­ist í gegnum skóg­inn í Ardennes við nyrðri enda Maginot-lín­unnar og því voru tak­mark­aðar varnir settar upp þar. Þjóð­verjarnir náðu hins vegar að kom­ast í gegnum skóg­lendið með Panzer-skrið­drek­ana sína, brjót­ast þannig í gegnum lín­una og koma aftan að sveitum Frakka og Breta í Belgíu.

Her­sveitir banda­manna voru umkringdar; horfðu í byssu­kjaft Þjóð­verj­anna og hörf­uðu hratt að strönd­inni við Ermar­sundið.

Frönsku her­sveit­irnar við Marginot-lín­una áttu ekki roð í þýsku sveit­irnar og gáfust fljót­lega upp. Bestu her­deildir Bret­lands og Frakk­lands voru kró­aðar af við Ermar­sundið.

Bandamenn króaðir af í Dunkirk í maí 1940

Operation Dynamo

Franski for­sæt­is­ráð­herr­ann Paul Reynaud hafði sam­band við Winston Churchill, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, 15. maí 1940 og lýsti yfir upp­gjöf Frakk­lands þegar fimm dagar voru liðnir frá inn­rás Þjóð­verja. Sama dag gafst Holland einnig upp fyrir Þjóð­verjum.

Þegar ljóst var í hvað stefndi og eng­inn mögu­leiki fyrir bresku og frönsku her­deild­irnar að brjót­ast í gegnum umsátur Þjóð­verja fyr­ir­skipar Churchill upp­haf Dynamo-áætl­un­ar­innar um flutn­inga her­lið­anna yfir Ermar­sundið. Það er hins vegar stór galli á þess­ari áætlun því í henni er aðeins gert ráð fyrir að 45.000 her­menn, að hámarki, geti verið fluttir yfir sundið. Fjöldi inni­lok­aðra her­manna var nærri 400.000.

Hinn 22. maí 1940 lögðu Þjóð­verjar undir sig hafn­ar­bæ­ina í Calais og Boulogne og gerðu mögu­leika á björgun enn minni. Eftir það hörf­uðu allir her­menn­irnir að hafn­ar­bænum Dunkirk. Þjóð­verjar réð­ust á her­deild­irnar úr lofti og ráða­lausir dát­arnir komust ekk­ert annað en aft­urá­bak undan sókn Panzer-skrið­drek­anna á landi.

Hinn 27. maí hófust flutn­ing­arnir yfir Ermar­sundið og voru allir til­tækir bátar og fley ræst af stað yfir að strönd Frakk­lands til þess að sækja her­menn­ina. Vegna grynn­inga undan strönd­inni við Dunkirk reynd­ist það erfitt og tíma­frekt að koma dát­unum um borð í skipin. Her­sveit­irnar, bæði breskar og franskar, stilltu sér þess vegna upp gengt Panzer-drek­unum og héldu aftur af sókn Þjóð­verja.

Erfiðara reynd­ist þó að halda aftur af sókn þýska flug­hers­ins Luftwaffe sem lét sprengjum rigna yfir strönd­ina. Breski flug­her­inn var þess vegna sendur af stað og hófst þá ein­hver magn­þrungn­asta loftor­usta allra tíma. Spitfire-vélar Bretanna eltu Stuka-vélar Þjóð­verja. Þennan fyrsta dag Dynamo-áætl­un­ar­innar var aðeins 7.669 dátum bjargað af strönd­inni í Dunkirk.

[box]Næstu daga gekk betur ferja skipin sem komu yfir Ermar­sundið og vegna skýja­hulu sem lagð­ist yfir bæinn gat þýski flug­her­inn ekki ráð­ist að stranda­glóp­unum úr lofti. Þjóð­verjar héldu áfram sókn sinni inn í Belgíu, sem gafst að lokum upp 28. maí, og suður eftir Frakk­landi. Hernám Þjóð­verja í Frakk­landi gerði það að verkum að öfl­ug­ustu her­deild­irnar, bæði loftsveitir og skrið­dreka­deildir, voru sendar á víg­stöðv­arnar sunnar í Frakk­landi.

Hinn 31. maí 1940 ákváðu óbreyttir breskir borg­arar að safna saman bátum til þess að sigla yfir Ermar­sundið og sækja her­menn. Lang­flestum var bjargað þennan dag eða rúm­lega 68.014 manns. Strax næsta dag átt­uðu Þjóð­verjarnir sig á því að breski her­inn væri að kom­ast undan, hraðar en þeir áttu von á. Það var því allt kapp lagt á að ráð­ast gegn dát­unum næstu daga, hvort sem þeir stóðu á strönd­inni eða eftir að þeir höfðu kom­ist um borð í skipin og lagt af stað þessa fáu kíló­metra sem skilja Bretland frá meg­in­landi Evrópu.

Aðfara­nótt 5. júní var björg­un­ar­að­gerðum lokið. Þá hafði tek­ist að bjarga sam­tals 338.226 manns af strönd­inni í Dunkirk. Hinn 4. júní hafði Winston Churchill flutt seina af sínum bestu og mik­il­væg­ustu ræðum á stríðs­tímum fyrir breska þing­inu. Í ræð­unni þurfti Churchill að greina frá hern­að­ar­legum hrak­förum og hugs­an­legri inn­rás Þjóð­verja í Bretland án þess að breiða út von­leysi eða láta fólk halda að sigur gegn Nas­ism­anum væri mögu­legur.

Það á að nýta hvert tæki­færi til þess að koma þess­ari ræðu að, enda er hún frá­bær. Marg­sinnis hefur ræðan verið dramat­íseruð í sjón­varps­þáttum og kvik­myndum. Hér sést Brendan Gleeson leika Winston Churchill í kvik­mynd­inni Into the Storm.

Mikilvægasta augnablik stríðsins

Björg­un­ar­starfið í Dunkirk er oftar en ekki sagt vera eitt­hvað mik­il­væg­asta augna­blik Bret­lands í stríð­inu því megnið af þeim her­mönnum sem bjargað var áttu eftir mynda kjarna her­liðs Breta í seinni heims­styrj­öld­inni.

Sagn­fræð­ingar munu eflaust takast á um langt skeið hversu mikla þýð­ingu þessir atburðir höfðu fyrir gang stríðs­ins. Sumir ganga svo langt að segja að hefðu her­menn­irnir ekki bjarg­ast, þá hefði Þýska­land eflaust náð að her­nema Bretland í stríð­inu. Eitt er víst að við munum aldrei fá að vita hvernig hefði farið.

Kvikmynd Christopher Nolan hefur verið í fram­leiðslu und­an­farin miss­eri. Kvik­mynda­taka hófst í maí í fyrra í Dunkirk og í Los Angeles. Í mynd­inni má sjá eitt­hvað af þeim bátum sem tóku þátt í hinni raun­veru­legu aðgerð árið 1940 og raun­veru­legar flug­vélar sem smíð­aðar voru í anda vél­anna sem flugu í styrj­öld­inni.

Þrátt fyrir að hafa hlotið nær ein­tómt lof gagn­rýnenda hefur verið bent á að Nolan virð­ist gera lítið úr hlut­verki franskra her­manna í björg­un­ara­frek­inu. Eins og rakið er hér að ofan þá tóku frakk­arnir þátt í að halda aftur af Panzer-drek­unum svo bjarga mætti sem flestum.

Dunkirk er sýnd í Sam­bíó­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár