Spillingarsögur Björns Levís birtar

Póli­tískar ráðn­ingar, hót­anir og mútu­greiðslur koma fyrir í þeim nafn­lausu frá­sögnum sem Björn Leví Gunn­ars­son fékk sendar þegar hann óskaði eftir sögum af spill­ingu. Stundin birtir sög­urnar.

Spillingarsögur Björns Levís birtar
Bús­á­halda­bylt­ingin Í mót­mæl­unum í kjöl­far efna­hags­hrun var gerð krafa um að spill­ing taki enda. Mynd: OddurBen

Ræða þarf spill­ingu opin­skátt svo fólk geti áttað sig á hvort það sjálft hafi lent í spill­ingu eða geti komið í veg fyrir hana í fram­tíð­inni. Þetta er mat Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, sem tekið hefur á móti nafn­lausum frá­sögnum af spill­ingu á net­inu. Rætt var um málið á fundi hjá flokknum í Iðnó í dag og sumar af sög­unum lesnar upp.

„Það er oft sagt að hérna á Íslandi sé engin spill­ing,“ sagði Björn Leví í ræðu sinni á fund­inum. „Að minnsta kosti ekki spill­ing eins og í öðrum löndum. Ýmis mál á und­an­förnum árum hafa hins vegar sýnt okkur hversu rangt það er. Banka­hrunið var afurð spill­ingar, þar sem inn­herj­a­við­skipti, sýnd­ar­við­skipti og kerf­is­læg blekk­ing var notuð. Í kjöl­far hruns­ins kom í ljós þétt net aflands­fé­laga sem teygði anga sína inn í rík­is­stjórn og reif hana í sundur. For­sæt­is­ráð­herra sem fékk umboð til þess að berj­ast við vondu kröfu­haf­ana var opin­ber­aður sem kröfu­hafi og fjár­mála­ráð­herra sem sagði ósatt um aflands­fé­laga­við­skipti sín faldi skýrslu um skatta­skjóls­eignir Íslend­inga fram yfir alþing­is­kosn­ingar 2016. Lands­rétt­ar­málið og afskipti dóms­mála­ráð­herra af skipun dóm­ara. Klaust­urs­málið og upp­ljóstrun um póli­tísk hrossa­kaup með sendi­herra­stöður og nú síð­ast grái listi FATF um pen­inga­þvætti og Sam­herj­a­málið með arð­rán á auð­lindum Afr­íku­ríkis í gegnum mútur.“

Björn Leví Gunn­ars­sonÞing­mað­ur­inn óskaði eftir nafn­lausum sögum um spill­ingu.

Björn Leví sagði að það þyrfti ein­beittan vilja til þess að sjá ekki spill­ing­una sem ríki á Íslandi. Þrátt fyrir það gerð­ist ekki neitt. „Ég held að ástæðan sé að við þekkjum ekki dag­lega spill­ingu nægi­lega vel. Lausnin við því, datt mér í hug, var að fræð­ast og fræða fólk um það hvernig dag­leg spill­ing á Íslandi virkar. Ef fólk segir, það er engin spill­ing á Íslandi þá spyr ég fólk, þekkir þú ein­hver dæmi um spill­ingu? Ef svo, sendu mér endi­lega spill­ing­ar­sög­una þína. Hug­myndin var af svip­uðu meiði og MeToo, að sýna dæmi um spill­ingu og sýna hversu víð­tæk hún í raun og veru er. Með því að safna saman og deila dæmum um spill­ingu þá getur verið að það verði til þess að fólk átti sig á því hvort það hafi lent í spill­ingu eða geti jafn­vel komið í veg fyrir spill­ingu í fram­tíð­inni.“

„Hug­myndin var af svip­uðu meiði og MeToo, að sýna dæmi um spill­ingu og sýna hversu víð­tæk hún í raun og veru er“

Mark­miðið með átak­inu var að safna saman nafn­lausum sögum, að sögn Björns Levís, en ekki að bregð­ast við ein­stökum sögum með neinum hætti. „Við getum ekki látið við­eig­andi yfir­völd vita um mögu­leg lög­brot og í þeim til­vikum sem um mögu­legt lög­brot gæti verið að ræða þá hverjum við fólk ein­fald­lega til þess að reyna að koma því til við­eig­andi yfir­valda,“ sagði hann. „Einnig þarf að taka fram að spill­ing er ekki alltaf lög­brot. Kunn­ug­lega stefið þar er „lög­legt en sið­laust“, tækni­legir laga­út­úr­snún­ingar og him­inhá laun vegna ábyrgðar sem er svo aldrei öxluð.“

Á fund­inum hélt einnig erindi Smári McCarthy, þing­maður Pírata, sem ræddi spill­ingu í alþjóð­legu sam­hengi. Einnig tóku til máls Hall­grímur Helgason rit­höf­undur og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sem bæði komu sér­stak­lega inn á Sam­herj­a­skjölin í sinni umfjöllun.

Stundin birtir hér nokkrar af þeim sögum sem bár­ust Birni Leví nafn­laust. Sögurnar hafa ekki verið sann­reyndar. 

1„Áhöfn á skipi stund­aði brott­kast og vissi af því að heima­vigt­un­ar­leyfi var notað til að svindla á íspró­sentu. Áhöfn­inni var hótað um að skipið yrði selt og að allir myndu missa vinn­una ef eitt­hvað yrði gert vegna þessa, þrátt fyrir að þetta hefði þau áhrif að sjó­menn væru hlunn­farnir um laun.“

2„Ég setti út á að opin­ber starfs­maður hafði skrifað vín sem gos á reikn­ing fyrir mat í ferða­lagi. Stjórn­mála­menn úr ákveðnum flokki í bæj­ar­stjórn töldu mig vera til vand­ræða og komu því í veg fyrir að ég færi erlendis í ferð á vegum bæj­ar­fé­lags­ins.“

3„Fyrir um það bil 20 árum síðan sagði mér maður í til­teknum stjórn­mála­flokki frá lista sem hann fékk yfir fast­eignir sem væru á leið í nauð­ung­ar­sölu og hefði til­tek­inn hópur manna „for­kaups­rétt“ á þeim eignum langt undir mark­aðsvirði áður en þær færu í upp­boðs­ferli. Þegar ég sá list­ann sagði hann: „Þú mátt ekki segja nokkrum ein­asta manni frá þessu“. Eftir hrun voru eign­irnar seldar aftur út úr íbúða­lána­sjóði í hend­urnar á ein­hverjum flokks­gæð­ingum.“

4 „Vann um tíma hjá opin­berri stofnun þar sem for­stjór­inn réð menn tengda til­teknum stjórn­mála­flokki í góðar stöður. Ráð­gjafar voru fengnir til mála­mynda til að fegra ráðn­ing­arnar en allir vissu hverjir yrðu ráðnir. Þessi stofnun keypti ráð­gjafa sem voru nær und­an­tekn­inga­laust tengdir sama stjórn­mála­flokki, miklu var eytt í ráð­gjaf­ana en lítið kom út úr því. Menn sem kvört­uðu áttu erfitt upp­dráttar í starfi og það var grafið undan þeim og þeir nutu ekki  trausts. For­stjór­inn safn­aði hlið­hollu fólki í kringum sig og aðrir áttu lít­inn sjens. Menn voru reknir eða þeim bolað úr starfi á sorg­legan hátt. Duglega og klára fólkið náðu ekki árangri og fengu síður stöðu- og launa­hækk­anir heldur frekar þeir sem voru til í að horfa fram hjá spill­ing­unni og taka þátt.“

5 „Ég varð vitni af þjófn­aði af lager fyr­ir­tæk­is­ins og til­kynnti það til yfir­manna. Einn þjóf­anna var rek­inn en hinn var of vel tengdur við flokk og íþróttaliðið á svæð­inu. Ég var síðar hrak­inn úr starfi.“

6 „Ég hef verið tekin á teppið hjá yfir­manni fyr­ir­tækis sem ég vann hjá vegna skrifa minna á Facebook og í bloggi og ég hef tvisvar fengið aðvörun í tölvu­pósti um að það sé fylgst með mér af ákveðnu fólki með völd.“

7„Fyrir all­mörgum árum skip­aði for­stjóri stærsta vinnu­veit­and­ans í sveit­ar­fé­lag­inu öllu erlendu vinnu­afli að kjósa til­tek­inn stjórn­mála­flokk í sveita­stjórn­ar­kosn­ingum að öðrum kosta myndi það missa vinn­una. Þessi hópur var þá stór hluti íbúa þorps­ins.“

8 „Einu sinni var mér boðin launa­hækkun fyrir að skrá mig í lífs­skoð­un­ar­fé­lag yfir­manns­ins til þess að hann gæti hirt sókn­ar­gjöldin. Seinna frétti ég að ein­hverjir sam­starfs­menn mínir höfðu þáð sam­bæri­legt boð.“

9 „Erlendur verka­maður hjá útgerð­ar­fé­lagi í litlu bæj­ar­fé­lagi ætl­aði að bjóða sig fram á lista nýlegs stjórn­mála­flokks í bæj­ar­stjórna­kosn­ing­unum. En var hótað að ef hann byði sig fram þá yrði honum sagt upp. Hann hætti við að bjóða sig fram.“

10 „Sjálf­stæður atvinnu­rek­andi hrökkl­að­ist úr brans­anum vegna þess að hann fékk fá verk­efni. Nokkrum árum síðar, í veislu á vegum stjórn­mála­flokks fékk hann að heyra að hann hefði nú fengið fleiri verk­efni ef það hefði verið vitað að hann væri í réttum flokki.“

11 „Ég til­kynnti grun um spill­ingu innan opin­bera kerf­is­ins. Eftir það var ég lækk­aður í starfs­hlut­falli.“

12 „Ég seldi einu sinni not­aðan bíl, fljótt og vel. Þegar selj­andi bíls­ins mætti í upp­gjör og ég rétti honum reikn­ing þá sagði hann að það þyrfti engan reikn­ing. Ég sagði auð­vitað að ég gæfi alltaf út reikn­inga, und­an­tekn­inga­laust. Reikn­ing­ur­inn var síðan dreg­inn frá sölu­verði eins og venju­lega en við­skipta­vinur yfir­gaf mjög ósáttur því ég var ekki til í nótu­laus við­skipti.“

13 „Í ung­liða­starfi mínu barð­ist ég fyrir breyt­ingum í sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu. Fljót­lega var ég kall­aður á fund hjá stóru fyr­ir­tæki á þeim vett­vangi þar sem mér var sagt að ef ég hætti ekki þá þyrfti ég að finna mér aðra vinnu.“

14 „Ég var deild­ar­stjóri í opin­beru fyr­ir­tæki. Mér var ítrekað boðið í utan­lands­ferðir og að prófa ýmsar vörur mögu­legra við­skipta­að­ila. Þegar ég neit­aði þá fékk yfir­maður minn sömu til­boð. Mark­miðið var að stjórna því við hvaða aðila við versl­uðum. Hef heyrt svip­aðar sögur frá öðrum með ákvörð­un­ar­vald í vöru­kaupum.“

15 „Á vinnu­stað með blönd­uðum hóp íslenskra og erlendra starfs­manna er bara í boði matur í verk­efnum ef það er Íslend­ingur í hópnum.“

16 „Starfs­fólki á stórum vinnu­stað sem ég vann á var smalað saman og sagt að það fengi eina klukku­stund auka­lega borg­aða fyrir að kjósa ákveð­inn ein­stak­ling fram yfir annan ein­stak­ling í stærsta flokki lands­ins. Sá kjörni er á þingi í dag. For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og sá kjörni hafa lengi verið góðir vinir.“

17 „Þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar um spill­ingu, meðal ann­ars í þáttum eins og Kompási og Kveik þá er lítið brugð­ist við. Að bregð­ast ekki við ábend­ingum um spill­ingu er spill­ing.“

18 „Ég kærði aðila sem var mér hættu­legur en sagði engum frá því. Fékk fljót­lega sím­tal um kæruna frá aðila sem hefði ekki átt að vita af kærunni. Sá sagð­ist hafa frétt af kærunni í gegnum fjöl­skyldu­tengsl inn í lög­regl­una. Ég skrif­aði form­lega kvörtun en var beð­inn um að draga kvörtun­ina til baka því ann­ars ætti ég hættu á kæru vegna meið­yrðis. Kæran fór hvergi í ferli og ekk­ert var gert.“

19 „Fjöldi opin­berra starfs­manna fóru á dýra ráð­stefnu erlendis þrátt fyrir að til­efni til þátt­töku væri ekki aug­ljóst. Eftir á var talað um ferð­ina eins og um frí hefði verið að ræða.“

20 „Ég varð fyrir kyn­bundnu ofbeldi og var frá­sögn mín studd af vitni. Þegar ég átti að skrifa undir skýrslu með vitn­is­burði þá sá ég að ein­ungis var brot af frá­sögn­inni skráð í skýrsl­una. Mér var tjáð að það væri vegna þess að ger­and­inn væri hátt settur í þjóð­fé­lag­inu og kæran myndi aldrei kom­ast neitt hvort sem er.“

21 „Fimm sóttu um stöðu vegna æsku­lýðs­mála. Fjórir voru með tengda menntun en ekki sá sem var ráð­inn. Pólitísk tengsl réðu nið­ur­stöð­unni.“

22 „Ég borg­aði full­trúa eft­ir­lits­stofn­unar 50 þús­und kr. á ári til þess að fá að reka fyr­ir­tækið mitt í friði.“

23 „Vinna hjá stór­út­gerð og kvartað yfir enda­lausum fækk­unum á mann­skap um borð, og að þurfa að vinna 18-20 tíma á sóla­hring, svarið var ef þér líkar þetta ekki getur þú bara unnið ein­hver staðar ann­ars staðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár