Valdi Ísland sem sinn heimastað um andvökunótt

Írski tón­list­ar­skipu­leggj­and­inn Colm O'Herlihy ákvað að gera Ísland að sínu heim­ili eftir örlaga­ríkt tón­leika­ferða­lag og tón­list­ar­há­tíð­ina All Tomorrow’s Parties. Áður en hann fann sinn stað bak við tjöldin spil­aði hann í hljóm­sveit­inni Remma, en Morrissey úr The Smiths gaf út plötur hljóm­sveit­ar­innar á sínum tíma.

Fyrir um sex árum var ég nýbú­inn með tón­leika­ferða­lag með lista­manni sem heitir Grant Hart úr hljóm­sveit­inni Hüsker Dü. Við höfðum verið á ferða­lag­inu í tvö ár, en það var í senn mjög átak­an­legt og ótrú­legt og hafði víð­tæk áhrif á líf mitt.

Ég man eftir því að þegar því ævin­týri lauk þá sagði góður vinur minn: „Við ættum að fara til Íslands og kíkja á ATP-hátíð­ina.“ Mig hafði alltaf langað til þess að koma hingað, en hafði ekki haft ástæðu til þess. Þannig að við komum hingað og skemmtum okkur aug­ljós­lega mjög mikið, en ég man að nótt­ina áður en við fórum heim þá fór vinur minn að hrjóta þannig að ég vakn­aði um fjögur um morg­un­inn og ég fór að vatns­bakk­anum. Ég var þar um stund­ar­sakir og hugs­aði með mér: „Ókei, ég held að þetta sé stað­ur­inn þar sem ég mun festa rætur.“

Ég fór aftur heim til Írlands og ég man að ég breytti lyk­il­orð­inu á tölv­unni minni í „Ísland“, sem er ekki sér­stak­lega gott lyk­il­orð. Svo í jan­úar bauðst mér starf á land­inu þannig að ég flutti hingað. Og frá þeim tíma hefur þetta verið mitt heim­ili, þar sem ég á mér mitt sam­fé­lag og stunda við­skipti, en ég hugsa mjög oft um þessa stund. Þetta örlaga­ríka tón­leika­ferða­lag setti allt í sam­hengi.

Fyrir mér voru þetta þrjú mis­mun­andi ferli af tón­list­ar­þátt­töku. Til að byrja með var ég í hljóm­sveit mjög lengi þar sem þú ert að ein­beita þér rosa­lega mikið að sjálfum þér og hvert þú ert að fara. Það getur verið ansi sjálfselskt.

En síðan leiddi það til þess að ég fór að spila með öðru fólki, og mér fannst það mun skemmti­legra. Mér leið vel yfir því að leggja eitt­hvað af mörkum. En eftir ákveð­inn tíma kemstu að því að þú hefur bara ákveðið mikla skap­andi orku, sem að leiðir að síð­ustu árum þar sem ég hef þurft að spyrja mig: „Hvað vil ég gera? Hver er til­gangur minn?“

Þetta fer allt á sinn hátt í hring og ég held að öll þessi reynsla spili inn í það sem ég er að gera í dag. Þannig að já, þetta eru þrjú mis­mun­andi ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár