Ríkisskattstjóri hefur opnað 250 mál vegna Panamaskjalanna

Ráðist var í nýjar aðgerðir hjá Rík­is­skatt­stjóra árið 2016 í kjöl­far kaups íslenska rík­is­ins á hluta af Panama­skjöl­unum.

Áhrif Panamaskjalanna má gæta í breyttum áherslum Ríkisskattstjóra.
Áhrif Panama­skjal­anna má gæta í breyttum áherslum Rík­is­skatt­stjóra. Mynd: EPA

Rík­is­skatt­stjóri rann­sakar enn mál tengd hluta Panama­skjal­anna sem ríkið keypti árið 2015. Alls hefur hann opnað 250 mál vegna þeirra. Þetta kemur fram í árs­skýrslu Rík­is­skatt­stjóra fyrir árið 2016.

Meðal nýj­unga í skatta­eft­ir­liti hjá emb­ætt­inu er skoðun á heim­ils­festi athafna­manna sem eru með skráð lög­heim­ili erlendis en eiga umtals­verðar eignir hér á landi. Í árs­skýrsl­unni kemur fram að nán­ast allir athafna­menn sem tengj­ast aflands­fé­lögum og hafa valið sér búsetu í löndum með hag­kvæma skatt­lagn­ingu hafi verið teknir til skoð­unar.

[links]

Einnig var farið af stað með skoðun á notkun erlendra kredit­korta hér á landi í þeim til­gangi að sjá hvort þau séu tengd við hugs­an­lega skatt­skylda íslenskra aðila.

Rík­is­skatt­stjóri segir að vinna við aflands­gögnin sem keypt hafi verið á árinu 2015 hafi haf­ist í fyrra og gengið vel, búið hafi verið að opna mál á yfir 250 aðila. Ljóst er hins vegar að fjöldi þeirra mála mun ekki hljóta end­ur­á­kvörðun, m.a. vegna ald­urs mála sem og vegna fyrn­ing­ar­reglna.

[adspot]

Ljóst er að Panama­skjölin hafi leitt til sér­tækra aðgerða í öðrum ríkjum, en OECD kall­aði til sér­staks fundar um skjölin í apríl 2016. Á honum var stofn­aður vinnu­hópur um gagna­lek­ann og við­brögð skatta­yf­ir­valda við honum, en Rík­is­skatt­stjóri á sæti í honum.

Gögnin þegar borgað sig

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur fékk Pana­ma­gögnin sem íslensk stjórn­völd keyptu árið 2015 einnig til umfjöll­unar. Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­­­fé­lög með íslenska kenn­i­­­tölu fyrir í þeim gögn­um, sem keypt voru fyrir 37 millj­ónir króna. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur tekið 34 mál til rann­sóknar á grund­velli gagn­anna og nú þegar krafið fjóra ein­stak­linga um 82 millj­ónir króna vegna meinta skattsvika þeirra, sem er næstum þre­föld sú upp­hæð sem greitt var fyrir gögn­in. Rann­sókn er ein­ungis lokið í þremur málum og tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um refsi­verða hátt­semi. Þá er rann­sókn í sjö málum á loka­stigi.

Bryn­dís Krist­jáns­dóttir sagði í sam­tali við Kjarnann í maí að öll önnur mál úr skjöl­un­um, utan þeirra 34 sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri tók til rann­sókn­ar, hafi verið send til Rík­is­skatt­stjóra til frek­ari með­ferð­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár