Fékk nöfn þeirra sem fóru fjárfestingarleiðina í apríl í fyrra

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri er með upp­lýs­ingar um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands til að fá krónur með 20 pró­sent afslætti. Kallað var eftir gögn­unum í kjöl­far umfjöll­unar um Panama­skjölin í apríl 2016, en ekki hefur verið unnið úr þeim.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri óskaði eftir upp­lýs­ingum um og gögnum frá Seðla­banka Íslands um þá aðila sem nýttu sér hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið hans í apríl í fyrra. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Panama­skjölin sýndu 800 aflands­fé­lög sem tengd­ust að minnsta kosti 600 Íslend­ingum og umfjöllun þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um þau sýndi að mörg þeirra félaga voru full af fé sem rök­studdur grunur væri um að hefði orðið til á Íslandi. Mörg aflands­fé­lag­anna hafa verið að fjár­festa það fé á Íslandi eftir hrun.

[links] Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að enn sé ekki búið að vinna úr gögn­unum. Önnur vinna hafi ein­fald­lega verið í for­gangi hjá emb­ætt­inu, meðal ann­ars vinna úr Pana­ma­gögn­unum sem íslensk stjórn­völd keyptu árið 2015. Alls koma 349 Íslend­ingar og 61 aflands­­fé­lög með íslenska kenn­i­­tölu fyrir í þeim gögnum, sem keypt voru fyrir 37 millj­ónir króna. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur tekið 34 mál til rann­sóknar á grund­velli gagn­anna og nú þegar krafið fjóra ein­stak­linga um 82 millj­ónir króna vegna meinta skattsvika þeirra, sem er næstum þre­föld sú upp­hæð sem greitt var fyrir gögnin. Rannsókn er ein­ungis lokið í þremur málum og tveimur af þeim hefur verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um refsi­verða hátt­semi. Þá er rann­sókn í sjö málum á loka­stigi.

Bryndís segir að öll önnur mál úr skjöl­unum, utan þeirra 34 sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri tók til rann­sóknar, hafi verið send til Rík­is­skatt­stjóra til frek­ari með­ferðar. Það emb­ætti muni senda út fyr­ir­spurn­ar­bréf á þá sem koma fram í gögn­unum og til­efni þykir til að fá frek­ari upp­lýs­ingar hjá.

48,7 milljarða króna virðisaukning

Panama­skjölin sýndu að fjöl­margir Íslend­ingar eiga digra sjóði í aflands­fé­lögum. Um er að ræða fjár­muni sem að minnsta kosti að hluta urðu til á Íslandi og ættu því að skatt­leggj­ast hér­lendis, en sem komið var í var í aflands­fé­lögum áður en fjár­magns­höft tóku gildi hér síðla árs 2008. Þar hafa þeir fjár­munir legið án þess að skatt­yf­ir­völd, eða eftir atvikum kröfu­hafar þeirra ein­stak­linga sem eiga aflands­fé­lögin, hafa getað aflað sér upp­lýs­inga um til­vist þeirra.

[adspot]

Ljóst er að aflandsfé Íslend­inga hefur streymt aftur til Íslands eftir hrun í fjár­fest­ingar. Auð­veldasta leiðin til að gera það var í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Hún var leið sem sett var upp til að minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta. Seðla­bank­inn von­að­ist til að losna við skamm­tíma­fjár­festa og fá í stað­inn lang­tíma­fjár­festa í krónu­eignum. Hann bauð því eig­endum gjald­eyris að koma með hann til Íslands og skipta í krónur og fá um 20 pró­sent virð­is­aukn­ingu með í kaup­unum. Það þýddi að sá sem hefði fengið einn millj­arð króna ef hann hefði skipt evr­unum sínum í krónur á sama gengi og venju­legum Íslend­ingum bauðst hefði fengið 200 millj­ónir króna til við­bótar ofan á millj­arð­inn sinn. Á móti skipti krónu­eig­andi, sem oft hafði keypt sína krónu­eign með afföllum á eft­ir­mark­aði, á henni fyrir erlendan gjald­eyri með afslætti. Þannig gátu báðir aðilar grætt, fyrir milli­göngu Seðla­bank­ans.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna. Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­bank­ans, líkt og venju­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­fest­inga­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­fest­inga­kost­um. Því má, líkt og áður sagði, segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina hafi fengið um 20 pró­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.[box]

Gagn­rýnt í aflandseigna­skýrslu

Skýrslu um aflandseignir og skattaund­an­­skot Íslend­inga, sem birt var snemma á þessu ári, er fjallað um fjár­­­­­fest­inga­­­leið Seðla­­­banka Íslands og því meðal ann­­­ars velt upp, hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­­­magn­inu frá aflandseyj­unum hafi skilað sér Íslands, með geng­is­af­slætti, í gegnum fjár­­­­­fest­inga­­­leið­ina.

Orð­rétt seg­ir: „Miðlun upp­­­lýs­inga um fjár­­­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­­taka í fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­bank­ans er ekki til stað­­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­­bank­ans þegar um grun­­­sam­­­legar fjár­­­­­magnstil­­­færslur er að ræða. Æski­­­legt má telja að sam­­­starf væri um miðlun upp­­­lýs­inga á milli þess­­­ara stofn­ana.“ Sam­­kvæmt þessu gat því fé sem orðið hafði til vegna skattaund­an­­skota kom­ist aftur „heim“ til Íslands í gegnum fjár­­­fest­inga­­leið­ina og eig­endur þess notað hið illa fengna fé til að kaupa eignir hér­­­lendis með afslætti.

Tíu þing­menn Pírata lögðu fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í mars um að gerð verði rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið­inni. Bæði Seðla­bank­inn og skatt­rann­sókn­ar­stjóri skil­uðu í síð­ustu viku umsögn um til­lög­una. Í umsögn Seðla­bank­ans segir að fram­kvæmd leið­ar­innar hafi verið „skipu­leg og gagnsæ og upp­lýs­ingar hafa verið veittar um hana“. Það hafi síð­ast verið gert í ítar­legu svari við fyr­ir­spurn á Alþingi sem lagt verði fram á næstu dögum. Um er að ræða svar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Kjarninn hefur fengið stað­fest að svar ráðu­neyt­is­ins verði lagt fram á næstu dögum.

Seðla­bank­inn segir einnig að í sam­ræmi við beiðnir hafi hann veitt bæði rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra „upp­lýs­ingar um þátt­tak­endur í fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka íslands.“

Í umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra er þetta stað­fest. Þar segir að emb­ætt­inu þyki „rétt að upp­lýsa nefnd­ina um að emb­ættið hefur óskað eftir og fengið gögn og upp­lýs­ingar frá Seðla­banka íslands um þá aðila sem nýttu sér nefnda fjár­fest­inga­leið. Kann grein­ing og frek­ari úrvinnsla þeirra gagna eftir atvikum að leiða til frek­ari aðgerða af hálfu emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra, vakni grunur um skatt­und­an­skot í tengslum við nefnda leið“. Bryndís segir í sam­tali við Kjarnann að óskað hafi verið eftir upp­lýs­ingum um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina í kjöl­far þess að fjöl­miðlar fjöll­uðu um Panama­skjölin í byrjun apríl 2016. En hafi ekki verið unnið úr þeim gögnum sem afhent voru um þátt­tak­endur í fjár­fest­ing­ar­leið­inni þar sem önnur mál hafi notið for­gangs hjá emb­ætt­inu. Þar er sér­stak­lega átt við vinnslu mála tengdum þeim gögnum sem keypt voru árið 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár