Í þá tíð… Ópið endurheimt

Ópið, hið ódauð­lega lista­verk Edvards Munch, var end­ur­heimt eftir að því var rænt nokkrum vikum áður. Verkið er eitt hið fræg­asta og dýrasta í lista­sög­unni og var annarri útgáfu af verk­inu stolið ára­tug síðar.

Þjófar kröfðust einnar milljónar dala fyrir að skila Ópinu. Sú áætlun gekk ekki upp og verki fannst um síðir.
Þjófar kröfð­ust einnar millj­ónar dala fyrir að skila Ópinu. Sú áætlun gekk ekki upp og verki fannst um síðir.

Á þessum degi fyrir réttum 23 árum síðan, hinn 7. maí 1994, end­ur­heimti norska Þjóð­lista­safnið Ópið, lista­verkið víð­fræga sem Edvard Munch mál­aði árið 1893, en því hafði verið stolið nokkrum vikum áður.

Bæði ránið, sem var afar bíræfið, og fund­ur­inn vöktu mikla athygli jafnt innan Noregs sem og á alþjóða­vett­vangi, enda er Ópið, sem Much mál­aði að vísu í nokkrum útgáfum á árunum 1893 til 1910, jafnan talið til merk­ustu lista­verka allra tíma og þess jafn­vel getið í sömu andrá og Mónu Lísu sem Leonardo nokkur DaVinci mál­aði fjórum öldum fyrr.

Munch og Ópið

Edvard Munch fædd­ist árið 1863 í þorp­inu Løten í Heið­merk­ur­fylki, en ólst upp í Osló frá blautu barns­beini. Ógæfa reið yfir fjöl­skyld­una þegar Laura móðir Edvards lést úr berklum þegar hann var aðeins fimm ára gam­all. Enn syrti svo í álinn níu árum síðar þegar Johanne Sofie stóra systir hans fór sömu leið, aðeins fimmtán ára, en hún var honum afar hjart­fólgin. Christian faðir hans var efna­lít­ill læknir og var mik­ill ald­urs­munur á honum og móður Edvards auk þess sem hann var afar trú­aður maður, svo lét nærri ofstæki. Þá veikt­ist Edvard litli sjálfur af berklum á unga aldri en næsta víst þykir að þessi áföll mót­uðu líf hans og lífs­við­horf veru­lega þegar fram í sótti.

Á ung­lings­ár­unum ákvað hann að helga líf sitt mál­ara­list­inni og ein­ungis tví­tugur að aldri mál­aði hann sitt fyrsta full­þró­aða verk, Morgunn, sem sýnir hálf­klædda unga konu sem situr á rúmbrík og horfir út um glugga.

Munch próf­aði sig áfram með ýmis konar stefnur og tækni og var óhræddur við að fara sínar eigin leiðir. Hann öðl­að­ist frægð fyrir verk sín, en átti lengi erfitt vegna drykkju og glímu við and­lega van­líðan. Hann var alla tíð ein­stæð­ingur og var mikið út af fyrir sig á heim­ili sínu í Osló síð­ustu tvo ára­tugi ævi sinnar, en hann lést árið 1944, rúm­lega átt­ræður að aldri og skildi eftir sig þús­undir verka.

Hann skilur eftir sig mörg merki­leg verk, til dæmis Veika barnið – sem er vísun í dauða Johanne Sofie – og fjöl­margar sjálfs­myndir, sumar óvægnar, en hans verður alla tíð fyrst og fremst minnst fyrir Ópið.

[adspot]

Ópið sem bergmálar enn í dag

Ópið, meist­ara­verk Munchs, er til í fjórum útgáfum. Tvær þeirra er að finna á Munch-safn­inu í Osló, ein í Þjóð­lista­safn­inu og ein er í einka­eign. Myndin sýnir mann sem stendur á brú og æpir stór­eygur, en í bak­sýn eru tveir menn á brúnni, fjörður og blóð­rauður him­inn.

Ófáar lærðar greinar hafa verið skrif­aðar um Ópið, hvað það sé sem mað­ur­inn ótt­ast svo mjög, hvers vegna him­in­inn sé rauður og þar fram eftir göt­unum. Í dag­bók­ar­færslu lýsti lista­mað­ur­inn sjálfur til­urð Ópsins hins vegar á þann veg að hann hafi verið á gangi með tveimur vinum sínum síðla kvölds. Þegar sólin hneig til viðar fann hann ákveðna dep­urð svífa á sig og him­inn roðn­aði á örskots­stund.

„Ég nam staðar, hall­aði mér að hand­rið­inu, dauð­þreyttur, horfði yfir log­andi him­in­inn sem var sem blóð og sverð yfir blásvörtum firð­inum og borg­inni. Vinir mínir gengu áfram. Ég stóð þar og skalf af ótta og fann stórt og enda­laust óp ber­ast í gegnum nátt­úr­una.“

Á öðrum stað í dag­bókum sínum segir Munch: „Mér fannst ég heyra óp. Ég mál­aði þá mynd – mál­aði skýin sem þau væru úr blóði. Litirnir æptu. Þetta varð að verk­inu Ópið.“

„Takk fyrir lélega öryggisgæslu“

Ópið er, sem áður sagði, til í fjórum útgáfum, en Much var gjarn á að gera til­raunir með margs konar aðferðir á sömu verk. Ein útgáfan, sú eina sem er í einka­eigu, seld­ist á upp­boði fyrir 120 millj­ónir dala árið 2012 og er eitt dýrasta lista­verk sem selt hefur verið. Útgáfan sem liggur að baki þess­ari grein er frá 1893 og er máluð á pappa.

Hinn 12. febr­úar 1994 var stolt stund í sögu þjóðar þegar Noregur stökk fram í sviðs­ljósið á alþjóða­vett­vangi þegar Vetr­ar­ólymp­íu­leik­arnir voru settir í Lil­lehammer. Í til­efni af Ólymp­íu­leik­unum var sett upp sýn­ing á helstu menn­ing­ar­ger­semum Noregs og Ópið var fært af annarri hæð niður á jarð­hæð þar sem örygg­is­gæsla var mun slak­ari.

Það var svo klukkan hálf sjö um morg­un­inn að tveir menn hlupu upp að safn­inu, reistu stiga upp að veg þess, brutu glugga til að kom­ast inn, klipptu mynd­ina niður af veggnum með vír­klippum og ruku á dyr. Allt í allt tók verkn­að­ur­inn aðeins um 50 sek­úndur, en ræn­ingj­arnir skildu meira að segja eftir orð­send­ingu á póst­korti þar sem stóð „Takk for dår­lig sikring“, eða „Takk fyrir lélega örygg­is­gæslu“.

[box]Allt kapp var lagt á að leysa málið sem var hin mesta hneysa, og gengu margar kenn­ingar í fyrstu, meðal ann­ars lýstu sam­tök sem börð­ust gegn fóst­ur­eyð­ingum ábyrgð­inni á hendur sér, en það þótti ótrú­legt, en meðal ann­ars var getum leitt að því að skipu­leggj­endur Ólymp­íu­leik­anna hefðu svið­sett ránið til að beina athygli heims­byggð­ar­innar að leik­unum, þar sem það þótti óhugs­andi að nokkur gæti selt verkið.

Ræningjar gengu í gildru en sluppu vel

Safninu barst innan tíðar krafa um lausn­ar­gjald. Fyrir eina milljón Banda­ríkja­dala yrði mynd­inni skilað á sinn stað. Ekki var gengið að kröf­unum, en norska lög­reglan fór þegar að leggja á ráðin með bresku lög­regl­unni, Scotland Yard, að leggja gildru fyrir ræn­ingj­ana. Breskir útsend­arar komu sér í sam­band við þrjót­ana og sögð­ust vilja kaupa verkið á um þriðj­ung upp­hæð­ar­innar sem þeir kröfð­ust fyrst.

Áætlunin gekk upp og hinn 7. maí var meist­ara­verkið komið á sinn rétt­mæta stað, svo til óskemmt, og fjórir menn voru hand­teknir. Höf­uð­paur­inn í hópi ræn­ingj­anna var Pål Enger, sem hafði, merki­legt nok, hlotið dóm nokkrum árum áður fyrir að ræna öðru verki eftir Munch, Vam­p­írunni.

Menn­irnir hlutu þunga dóma. Enger fékk þyngsta dóm­inn, rúm­lega sex ára fang­elsi, en svo fór þó að dómar þriggja þeirra voru ógiltir vegna form­galla á rann­sókn þar sem bresku lög­reglu­menn­irnir höfðu komið til lands­ins á fölsuðum skil­ríkjum.

Það er að segja af Enger að hann virt­ist hafa lent á fót­unum eftir að hann losn­aði út, þar sem hann hasl­aði sér völl sem mál­ari og lista­verka­sali og keypti meðal ann­ars verk eftir Munch, með lög­legum hætti. Síðustu ár hefur hann hins vegar verið flæktur í annað þjófn­að­ar­mál sem ekki hefur verið til lykta leitt að fullu. Hann var upp­haf­lega dæmdur fyrir að stela fimmtán verkum eftir Hariton Pushwagner, Vebjørn Sand og Camilla Grythe, en hann sver og sárt við leggur að hafa bara stolið fimm þeirra.

Líka rænt áratug síðar

Öðru ein­taki af Ópinu var rænt árið 2004, en það var úr Munch-safn­inu og er málað á pappa árið 1910. Tveir vopn­aðir menn óðu inn í safnið um hábjartan dag og stungu af með Ópið og Madonna, annað af helstu verkum Munchs. Á næstu mán­uðum voru all­nokkrir menn hand­teknir, grun­aðir um aðild að rán­inu, en verkin fund­ust ekki strax þrátt fyrir að fimm menn fengju dóma vegna ráns­ins í upp­hafi árs­ins 2006. Óttast var að ræn­ingj­arnir hefðu eytt verk­unum af ótta við að nást, en svo gerð­ist það í ágúst það sama ár að verkin fund­ust, nokkuð skemmd en þó í betra ástandi en margir ótt­uð­ust. Þau fóru aftur í sýn­ingu eftir við­gerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár