Sigmundur Davíð: „Stendur til að verðlauna hrægammana“

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra segir planið hafa gengið upp hjá vog­un­ar­sjóðum. Þeir hafi fengið nýjar kosn­ingar, nýja rík­is­stjórn, nýja stefnu og nýtt verð á aflandskrónur sínar.

Bjarni Benediktsson, þáverandi fjármálaráðherra, og Sigmundur Davíð, þáverandi forsætisráðherra, kynntu áætlun um losun hafta með pompi og pragt í Hörpu árið 2015.
Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kynntu áætlun um losun hafta með pompi og pragt í Hörpu árið 2015. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þing­maður og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er gagn­rýn­inn á sam­komu­lagið sem Seðla­bank­inn hefur gert við aflandskrónu­eig­endur um að kaupa krónur á 137,5 krónur fyrir evru.

„Í stað þess að klára planið eins og lagt var upp með og gera þetta að sig­ur­degi virð­ist stjórn­völd ætla að nota tæki­færið til að leysa vog­un­ar­sjóð­ina út með gjöfum, alla á einu bretti,“ segir Sig­mundur Davíð á Facebook-síðu sinni. Óttinn hafi reynst réttur. „Það stendur til að verð­launa hrægammana sem vildu ekki spila með (í útboð­inu í fyrra) og ákváðu þess í stað að beita áróðri og und­ir­róðri til að hafa áhrif á íslensk stjórn­mál.“

Stjórn­völd hafi á sínum tíma verið búin að gera mönnum ljóst að þeir sem tækju ekki þátt í aflandskrón­u­út­boði Seðla­bank­ans um mitt síð­asta ár myndu sitja eftir og gætu setið fastir á lágum eða engum vöxtum í mörg ár. „Þeir sem höfðu séð merki þess að hægt væri að brjóta stjórn­völd á bak aftur tóku ekki þátt og nú fá þeir að kaupa evr­una á ca. 137 krónur. Sá sem hefði fengið 100 milljón evrur með því að taka þátt í útboð­inu fær nú rúm­lega 138 milljón evrur. Það er hægt að kaupa margar aug­lýs­ingar og ráða marga PR-menn fyrir slíkan mun.

Planið gekk upp hjá vog­un­ar­sjóð­unum. Þeir fengu kosn­ingar, nýja rík­is­stjórn, nýja stefnu og nýtt verð. „Special price for you my fri­end,““ skrifar Sig­mundur Davíð að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár