Prófkjör og forystuslagur munu móta landslagið

Enn sýnir kosn­inga­spáin Pírata og Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem stærstu fram­boðin. Prófkjör, upp­still­ingar á fram­boðs­lista og for­ystu­slagir munu hafa áhrif á stöð­una.

Þórunn Egilsdóttir ræðir við Höskuld Þórhallsson í þingsal. Þau hafa bæði gefið kost á sér í oddvitasæti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.
Þórunn Egils­dóttir ræðir við Höskuld Þór­halls­son í þing­sal. Þau hafa bæði gefið kost á sér í odd­vita­sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Birgir Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar njóta enn mest fylgis í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Sam­an­lagt njóta þessir flokkar stuðn­ings rétt rúm­lega helm­ings kjós­enda. Ekki hefur verið hægt að segja með full­kominni vissu hvort fram­boðið sé stærra und­an­farna tvo mán­uði. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú með 26,3 pró­sent stuðn­ing og Píratar með 25,8 pró­sent stuðn­ing. Munurinn er hins vegar innan fræði­legra vik­marka sem eru +/- 2,0 pró­sentu­stig.

Ekki hefur verið mikil hreyf­ing á fylg­inu und­an­farnar vikur og staðan nán­ast sú sama og hún var í lok júlí. Vinstri græn mæl­ast með 14,4 pró­sent fylgi sem er svipað og flokk­ur­inn hefur mælst með und­an­farið. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Viðreisn mæl­ast með á milli átta og tíu pró­sent fylgi. Og Björt fram­tíð virð­ist ekki ná til kjós­enda og mælist ítrekað með um fjögur pró­sent fylgi.

Á næstu vikum munu flokk­arnir hefja sína form­legu kosn­inga­bar­áttu og byrja að kynna stefnu­mál sín og lof­orð fyrir næsta kjör­tíma­bil. Einstaka fram­bjóð­endur eru raunar byrj­aðir að kynna sig fyrir próf­kjör innan flokk­anna. Eftir því hefur verið tekið á Alþingi að þing­menn mæta illa og telja tíma sínum betur varið í kjör­dæm­inu. Til hvers erum við að mæta hingað, spurði einn þing­maður úr ræðu­stól Alþingis í vik­unni.

[adspot]

Það er því von á að skoð­ana­kann­anir muni sýna frek­ari sveiflur á fylgi flokk­anna enda virð­ist fylgið hafa verið á nokk­urri hreyf­ingu og margir óákveðnir fyrir kosn­ing­arnar 29. októ­ber. Spenn­andi verður að sjá hvernig til dæmis Pírötum mun reiða af í kosn­inga­bar­átt­unni. Allt þetta ár hafa Píratar mælst ýmist lang vin­sæl­asti flokk­ur­inn eða meðal vin­sæl­ustu flokka á Alþingi. Flokk­ur­inn hefur aldrei verið í slíkri stöðu fyrir kosn­ingar.

Einnig verður spenn­andi að sjá hversu hátt Viðreisn kemst í könn­unum og kosn­ingum. Í sumar hefur Viðreisn mælst ítrekað með um níu pró­sent fylgi á lands­vísu og verið á pari við fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar.

Staða Fram­sókn­ar­flokks­ins á líka eftir að skýr­ast. Lyk­il­at­riði í þeirri fram­vindu er flokksval á kjör­dæm­is­þingi í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þar sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son freistar þess að vera áfram odd­viti. Þrír þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins vilja odd­vita­sætið einnig. Það eru Hösk­uldur Þór­halls­son, Þórunn Egils­dóttir og Líneik Anna Sæv­ars­dóttir. Líklegra þykir að fram­boð þeirra Þórunnar og Líneikur bein­ist gegn Höskuldi en Sigmundi Davíð enda hefur Líneik sagst styðja sitj­andi odd­vita áfram. Þá hefur Hösk­uldur ekki farið leynt með gagn­rýni sína á Sigmund Davíð.

Um nýjustu kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin tekur mið af fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Í spálík­an­inu eru allar kann­anir vegnar eftir fyr­ir­fram ákveðnum atriðum. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­fall, lengd könn­un­ar­tíma­bils og sögu­legur áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni er það næst nýjasta könn­unin sem hefur mest vægi. Helgast það aðal­lega af stærð könn­un­ar­innar og lengd tíma­bils­ins sem hún var fram­kvæmd. Kann­an­irnar sem kosn­inga­spáin sem gerð var 8. sept­em­ber miðar við eru:

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 6. til 7. sept­em­ber (vægi 25,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. júlí til 31. ágúst (vægi 35,1%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 22. ágúst til 29. ágúst (vægi 26,2%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júní til 29. júlí (vægi 13,6%)

Kosn­­­­­­inga­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­lýs­ing­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­inga­­­­­­spá Bald­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­ar­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­kosn­­­­­­ing­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­inga­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­ur­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­leiki könn­un­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár