Sótt að formannsembætti og oddvitasæti Sigmundar Davíðs

Engin sátt er um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins eða sem odd­vita flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, en það sést kannski best á því að allt bendir til þess að hann fái mót­fram­boð á báðum víg­stöðvum.

Þrír þing­menn bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi auk Sig­mundar Davíðs. Það eru þau Hösk­uldur Þór­halls­son, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttir.

Stundin greindi frá því í dag að bæði Þórunn og Líneik hefðu skilað inn fram­boði í fyrsta sætið. Þórunn sæk­ist eftir fyrsta til öðru sæti og Líneik fyrsta til þriðja sæti. Hösk­uldur hafði áður greint frá því að hann sækt­ist eftir fyrsta sæt­inu, líkt og hann gerði fyrir síð­ustu kosn­ingar, en þá laut hann í lægra haldi fyrir for­mann­inum Sigmundi Davíð.

Líneik sagði við Stundina að hún styddi Sigmund Davíð sem for­mann flokks­ins en sagð­ist telja mik­il­vægt að það væri fleiri val­kostir í fyrsta sæt­inu. Því er lík­legra að fram­boð hennar, og Þórunnar, bein­ist gegn Höskuldi, sem hefur verið mjög gagn­rýn­inn á Sigmund Davíð.

Þá sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, í dag að hann úti­lok­aði ekki að hann myndi bjóða sig fram til for­manns flokks­ins. Áður hefur hann sagt að hann myndi ekki fara fram gegn sitj­andi for­manni. Sigurður Ingi var í við­tali við Snærósu Sindra­dóttur, blaða­mann á Frétta­blað­inu, á Fundi fólks­ins. Hann sagði að flokks­þing flokks­ins myndi vænt­an­lega ekki fara fram fyrr en um mán­aða­mótin sept­em­ber-októ­ber. Þangað til væri langur tími í póli­tískum skiln­ingi og hann hefði ekki tekið neina ákvörðun. Hann myndi taka allt að sér sem flokk­ur­inn fæli honum að gera. Hann var þá spurður hvort hann væri að ýja að því að það þyrfti að fá Sigmund Davíð til að hætta við for­manns­fram­boð sagði hann að það þyrfti að láta flokks­mönnum eftir að ræða það.

Áður hefur Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, ekki úti­lokað að hún gefi kost á sér í for­manns­emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár