Íslendingar eiga rúmlega þúsund milljarða erlendis

Íslend­ingar eiga 1.068 millj­arða króna í fjár­muna­eign í öðrum löndum. Þar af eru um 32 millj­arðar króna á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Íslenskir ráð­herrar áttu, eða eiga, félög í löndum sem telj­ast sem lág­skatta­svæði.

Íslendingar eiga umtalsverðar eignir
Íslend­ingar eiga umtals­verðar eignir

Íslend­ingar eiga rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Stærsti hluti þeirra eigna er í félögum sem skráð eru til heim­ilis í Hollandi, Bret­landi og Lúx­em­borg. Íslend­ingar eiga líka tölu­verðar eignir í þekktum lág­skatta­svæðum á borð við Bresku Jóm­frú­ar­eyj­arnar. Þar eiga Íslend­ingar tæpa 32 millj­arða króna. Stærsti hluti fjár­muna­eigna Íslend­inga erlendis er vegna fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi,eða 572 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­fest­ingu sem birtar voru 9. mars síð­ast­lið­inn. Um er að ræða end­ur­skoð­aðar tölur sem sýna stöð­una eins og hún var í lok árs 2014.

Skrán­ingu á erlendri fjár­muna­eign Íslend­inga var breytt fyrir nokkrum árum síðan. Nú eru gefnar upp­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en flokk­ur­inn „óflokkað“ hefur stækkað. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­muna­eign Íslend­inga er á Cayman-eyjum, Mön, Jersey, Guernsey og Máritíus. Það er ekki hægt lengur. Alls eru eiga Íslend­ingar „óflokk­aðar“ eignir upp á 97 millj­arða króna.

fjár­muna­eign
Create your own infographics

Íslenskir ráðherrar með eignir í aflandsfélögum

Eignir Íslend­inga erlendis, sér­stak­lega í þekktum skatta­skjólum, hafa verið mikið í umræð­unni síð­ustu daga í kjöl­far þess að það var opin­berað að eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra ætti umtals­verðar eignir utan Íslands. Hún upp­lýsti um eign­ar­hald sitt á félag­inu Wintris fyrir rúmum tveimur vikum síðar að eigin sögn til að slá að slúð­ur­sögur um það. Daginn eftir greindi Kjarninn frá því að félagið sé skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og sama dag kom einnig fram að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra væri stór kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna. Kröfur hennar nema alls um 523 millj­ónum króna. Þær eignir sem eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra á inni í félag­inu, sem eru að mesta erlend verð­bréf, eru metnar á um 1,2 millj­arða króna.

[adspot]

Í vik­unni var svo greint frá því að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði um tíma átt félagið Falson & Co, sem skráð hafi verið á Seychelles-eyjum. Bjarni sagði í kjöl­farið að hann hafi átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai, og hafi talið að félagið hefði verið skráð í Lúx­em­borg. Við­skiptin hafi átt sér stað fyrir tíu árum og félagið hafi verið komið í afskrán­ing­ar­ferli áður en að reglur um hags­muna­skrán­ingu þing­manna tóku gildi. Félagið hafi enn­fremur aldrei haft tekjur, ekk­ert skuldað, ekki tekið lán og ekki átt neinar aðrar eignir.

Ólöf Nordal, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, tengd­ist líka aflands­fé­lagi sem stofnað var utan um fjár­fest­ingar eig­in­manns hennar. Félagið hafi hins vegar aldrei verið nýtt og eftir því sem hún kemst næst hafi það verið lagt niður árið 2008. Það félag, Dooley Securities S.A. var skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

Ástæða þess að þessar upp­lýs­ingar hafa komið fram í dags­ljósið á und­an­förnum vikum eru þær að Reykja­vík Media, fjöl­miðla­fyr­ir­tæki Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­manna­sam­tökin ICIJ og ýmsir erlendir fjöl­miðlar hafa verið að vinna að umfjöllun um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum mán­uðum saman. Ýmsir aðrir hafa komið að vinnu hóps­ins, meðal ann­ars frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kastljós á RÚV. Sér­stakur Kastljós-þáttur um málið verður sýndur á RÚV á sunnu­dags­kvöldið og í kjöl­farið munu ýmsir erlendir fjöl­miðla fjalla ítar­lega um málið. Á meðal þeirra eru þýska dag­blaðið Süddeutsche Zeitung.

Lágskattasvæði og tvísköttun

Á lista fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins er að finna lista yfir þau lönd og svæði sem telj­ast lág­skatta­svæði. Til þess að kom­ast á þann lista þarf tekju­skattur af hagn­aði félags, sjóðs eða stofn­unar, sem um ræðir, að vera lægri en tveir þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á félagið, sjóð­inn eða stofn­un­ina hefði hún verið heim­il­is­föst á Íslandi.

Bresku Jóm­frú­ar­eyj­arnar og Seychelles-eyjar eru á þeim lista. Þar er einnig að finna nokkur Evr­ópu­lönd á borð við Andorra, Mónakó og Liecthenstein. Lönd eins og Kýpur og Lúx­em­borg, sem hafa verið mikið í umræð­unni sem skatta­skjól und­an­farna daga, eru ekki á list­anum. Í gildi er tví­skött­un­ar­samn­ingur milli Íslands og beggja þeirra landa, auk fjölda ann­arra. Slíkir samn­ingar eru gerðir til að kom­ast hjá tví­sköttun og til að koma í veg fyrir und­an­skot frá skatt­lagn­ingu á tekjur. Samn­ingur Íslands og Kýpur var gerður árið 2014. Á því ári jókst skráð fjár­muna­eign Íslend­inga í land­inu úr 8,4 millj­örðum króna í 20,4 millj­arða króna.

Einstaklingar og fyrirtæki eiga hundruð milljarða

Af þeim 1.068 millj­örðum króna sem Íslend­ingar áttu erlendis í lok árs 2014 var þorr­inn í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Í árs­lok 2014 áttu þeir 689 millj­arða króna erlendis. Hluti þeirra eigna falla undir skil­grein­ing­una bein fjár­muna­eign erlendis. Það þýðir að íslensk fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar eigi nokkur hund­ruð millj­arða króna í erlendum eignum.

Eignir Íslend­inga erlendis hafa lækkað umstals­vert á und­an­förnum árum. Í árs­lok 2012 voru þær mestar, tæp­lega 1.600 millj­arðar króna. Vert að að hafa í huga að fallandi gengi krónu eftir banka­hrun hafði mikil áhrif á virði þeirra eigna á þeim tíma. Þ.e. fall krón­unnar jók virði eign­anna mikið.

Ein ástæða þess að bein fjár­muna­eign hefur verið að lækka und­an­farin ár gæti verið sú að Íslend­ingar hafi í auknum mæli fært fé heim til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Alls kom um einn millj­arður evra inn til lands­ins í fjár­fest­ingar í gegnum þá leið, en síð­asta útboð hennar var í febr­úar 2015, og fékkst fyrir það fé 206 millj­arðar króna. Opinbert gengi Seðla­banka Íslands á evr­unni gerir ráð fyrir að evr­urnar sem komu inn í landið séu ríf­lega 157 millj­arða króna virði, og nemur mis­mun­ur­inn á afslætt­inum sem fjár­festar fengu með þátt­töku sinni í fjár­fest­inga­leið­inni, 48,7 millj­örðum króna, miðað við gengið í febr­úar síð­ast­liðnum. Seðla­bank­inn hefur aldrei viljað upp­lýsa um hverjir það eru sem hafi fengið þennan afslátt af íslenskum eignum, meðal ann­ars end­ur­skipu­lögðum fyr­ir­tækjum og fast­eignum.

Önnur ástæða þess að upp­hæðin sem Íslend­ingar eiga erlendis hefur dreg­ist saman getur verið sú að virði eign­anna hafi ein­fald­lega lækkað.

Útlendingar eiga þúsund milljarða á Íslandi

Bein fjár­muna­eign erlendra aðila á Íslandi var mjög svipuð því sem Íslend­ingar áttu erlendis, eða um eitt þús­und millj­arðar króna í lok árs 2014. Hún jókst milli ára úr 851 millj­arði króna. Sú eign er að lang­mestu leyti í Lúx­em­borg, eða um 936 millj­arðar króna. Auk þess eiga aðilar í Hollandi skráðar eignir á Íslandi upp á 131 millj­arð króna. Vert er að taka fram að fjár­muna­eign Banda­rískra aðila á Íslandi er nei­kvæð upp á 330 millj­arða króna og hefur það eði­lega áhrif á heild­ar­um­fang eigna erlendra aðila á Íslandi.

Stærstur hluti þeirra eigna eru vegna fram­leiðslu (219 millj­arðar króna), heild­sölu og versl­unar, sam­göngu og geymslu­svæða og rekst­urs veit­inga- og gisti­staða (377 millj­arðar króna) og fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi (304 millj­arðar króna). Mestur var vöxt­ur­inn í fjár­fest­ingu erlendra aðila í fjár­mála­starf­semi á árinu 2014, en hann jókst um 46 millj­arða króna á milli ára. Þá vekur auk­inn eign erlendra aðila í fast­eignum og fast­eigna­tengdri þjón­ustu á und­an­förnum árum athygli. Á tveimur árum, frá lokum árs 2012, jókst hún úr 22,4 millj­örðum króna í 33,6 millj­arða króna, eða um 50 pró­sent.

Skipulagt af stóru bönkunum

En hvernig vill það til að Íslend­ingar eru með öll þessi miklum fjár­muna­tengsl við alþjóð­legar fjár­mála­mið­stöðvar eins og Lúx­em­borg og eiga tug­millj­arða eignir í félögum sem skráð eru til heim­ilis á aflandseyjum sem flokk­ast sem lág­skatta­svæði?

Á útrás­ar­ár­unum var lenska að geyma eign­ar­hald fyr­ir­tækja, og pen­inga, á fram­andi slóðum. Útibú eða dótt­ur­fé­lög íslensku bank­anna settu upp allskyns félög fyrir við­skipta­vini sína í Lúx­em­borg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyj­unum Jersey og Guernsey þar sem banka­leynd var, og er, rík.

Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jóm­frú­areyj­unum fyrir við­skipta­vini þeirra, nánar til­tekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hund­ruðum og lang­flest þeirra voru stofnuð í Kaup­þingi í Lúx­em­borg, sem hélt sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.

Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skatta­lög á Íslandi þannig að greiddur var tíu pró­sent skattur af slíkum sölu­hagn­aði upp að 3,2 millj­ónum króna. Allur annar hagn­aður umfram þá upp­hæð var skatt­lagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 pró­sent skattur. Ari Matth­í­as­son, sem nú gegnir stöðu þjóð­leiks­hús­stjóra, sat einu sinni fund þar sem stofnun slíkra félaga var kynnt. Hann greindi frá þeirri upp­lifun í Silfri Egils árið 2009.

Lögum um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna var hins vegar breytt um ald­ar­mótin og eftir þá breyt­ingu var allur sölu­hagn­aður af hluta­bréfum skatt­lagður um tíu pró­sent. Við það varð íslenskt skattaum­hverfi afar sam­keppn­is­hæft og skatta­hag­ræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf. Frá þeim tíma voru ný félög því aðal­lega stofnuð til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitt­hvað athuga­vert var við hvernig mynd­uð­ust.

Erfitt að nálgast upplýsingar úr skattaskjólum

Á mál­þingi um skatta­skjól, sem upp­lýs­inga­skrif­stofan Norð­ur­lönd í fókus og Kjarninn í sam­starfi við Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslands héldu í októ­ber 2013, sagði Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri að erfitt væri að nálg­ast upp­lýs­ingar um skatta­skjól víða um heim. Í gildi væru samn­ingar milli Norð­ur­land­anna og tugi skatta­skjóla um upp­lýs­inga­skipti. Frá Bresku Jóm­frú­areyj­unum væri til dæmis hvorki veittar ban­ka­upp­lýs­ingar né fjár­hags­upp­lýs­ingar þeirra félaga sem þar eru skráð. Ekki væri lög­bundið að halda bók­hald né að gefa út árs­reikn­inga í þessum löndum.

Þótt banka­reikn­ingar, eða verð­bréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Bresku Jóm­frú­areyj­unum, þá eru fjár­mun­irnir þó ekki raun­veru­lega geymdir þar. Í til­felli Íslend­inga er, líkt og áður sagði, oft­ast um að ræða banka­reikn­inga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg. Fjár­mun­irnir sjálfir voru, og eru, síðan geymdir þar þótt þeir séu skráðir til heim­ilis á meira fram­andi slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár