Tekið á svartri útleigu íbúða til ferðamanna

Einungis 250 af 1.900 Airbnb gisti­plássum í Reykja­vík eru með leyfi. Rang­heiður Elín Árna­dóttur ætlar að leggja fram frum­varp sem ein­faldar leyf­is­veit­ingu og gerir svarta atvinnu­starf­semi í grein­inni mun erf­ið­ari.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra ætlar að leggja fram frum­varp um heimagist­ingu á vegum einka­að­ila sem á að auð­velda útleigu íbúða til ferða­manna og eft­ir­lit með þeirri starf­semi til að stemma stigu við svartri atvinnu­starf­semi í grein­inni. Hún hefur þegar sent þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna frum­varpið. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu.

Samkvæmt frum­varp­inu þá verður fólki heim­ilt að leigja út heim­ili sín og eina eign að auki í afmark­aðan tíma. Til þess þarf ekki rekstr­ar­leyfi heldur er eignin skráð og hún fær númer. Einu við­bót­ar­kvað­irnar eru þær að upp­fylla þarf allar kröfur um bruna­trygg­ingar.

Ragn­heiður Elín segir við Morg­un­blaðið að þeir sem vilji leigja út heim­ili sín á Airbnb setji þá núm­erið á eign­inni sem þeim hefur verið úthlutað inn á vef­inn. Þeir sem aug­lýsi án þess að hafa skráð númer séu þá aug­ljós­lega að reyna að kom­ast hjá eft­ir­liti og því að borga skatta af tekjum sínum vegna starf­sem­innar. Þannig ein­fald­ist allt eft­ir­lit og yfir­völd fái mun sterk­ari stjórn­tæki í hend­urnar til að fylgj­ast með þessum hluta leigu­mark­að­ar­ins.

250 af 1.900 gistiplássum Airbnb-plássum í Reykjavík með leyfi

Kjarninn greindi frá skýrslu sem unnin var í Háskól­anum í Bifröst um umfang íbúða­gist­ingar í ferða­þjón­ustu á Íslandi í nóv­em­ber 2015. Í nið­ur­stöðum hennar kom fram að um fjögur pró­sent íbúða í Reykja­vík eru leg­iðar til íbúða­gist­ingar í skamm­tíma­leigu, oft­ast í gegnum síð­una Airbnb.com, og er hlut­fallið hátt miðað við aðrar borgir. Áhrif á fast­eigna­mark­að­inn eru þau að í ýmsum hverfum Reykja­víkur er fast­eigna­verð hærra vegna auk­innar eft­ir­spurnar eftir hús­næði undir íbúða­gist­ingu, en fjölgun hót­el­her­bergja hefur ekki haldið í við fjölgun ferða­manna sem hafa því leitað ann­arra gisti­mögu­leika.

Fram kom að alls væru um 3.400 her­bergi og íbúðir skráðar á Airbnb.com, þar af 1.900 her­bergi og íbúðir í Reykja­vík. Samkvæmt Sýslu­manni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru ein­ungis þrettán pró­sent af þeim með skráð leyfi til íbúða­gist­ingar. Það gera um 250 leyfi.

Skýrslan var unnin fyrir atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Í henni sagði að gild­andi lagaum­hverfi nái ekki nægi­lega vel utan um nýjan veru­leika í íbúða­gist­ingu, ein­falda þurfi leyf­is­veitnga­ferlið og að reglur um skatt­lagn­ingu séu ekki skýrar. Nýtt frum­varp Ragn­heiðar Elínar virð­ist eiga að mæta þessum vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár