Umboðsmaður átti að birta bréfin til Hönnu Birnu og á að fá meira fé

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd er ein­huga um að sú for­gangs­röðun sem umboðs­maður Alþingis sýndi í leka­mál­inu, og for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hnýttu í, hafi verið eðli­legt verk­lag. Nefndin vill að emb­ættið fái auka­fjár­veit­ingu upp á 15 millj­ónir.

Frá fundi umboðsmanns Alþingis með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í janúar, þegar hann kynnti niðurstöðu frumkvæðisathugunar sinnar á lekamálinu.
Frá fundi umboðs­manns Alþingis með stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í jan­úar, þegar hann kynnti nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á leka­mál­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd telur það grund­vall­ar­at­riði að umboðs­manni Alþingis verði gert kleift að starfa fag­lega og að emb­ættið fái nægi­legt fjár­magn til að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum með þeim hætti sem hann telur full­nægj­andi.

Nefndin telur einnig að sú for­gangs­röðun sem umboðs­maður sýndi í leka­mál­inu, og opin­ber birt­ing á bréfum til ráð­herra, sem for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hnýttu í við með­ferð máls­ins, hafi verið eðli­legt verk­lag. Hún telur það vera grund­vall­ar­at­riði að umboðs­manni verði tryggð 15 millj­óna króna auka­fjár­veit­ing til að geta ráð­ist í frum­kvæð­is­mál sem séu „mik­il­vægur þáttur í starfi umboðs­manns og því hlut­verki sem hann gegnir í að auka réttar­ör­yggi borg­ar­anna.“

Þetta kemur fram í áliti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um skýrslu umboðs­manns Alþingis fyrir árið 2014, sem birt var í dag. Athygli vekur að ein­hugur er í nefnd­inni. Allir nefnd­ar­menn, sem koma úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi, skrifa undir álitið. Líka þeir sem til­heyra stjórn­ar­flokk­unum tveimur.

Stendur til að skera niður en nefndin vill auka framlög

Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi breyt­ing­ar­til­lögu á fjár­laga­frum­varpi næsta árs verða fram­lög til emb­ætt­is­ins skorin niður um 13 millj­ónir króna frá upp­runa­legu fjár­laga­frum­varpi, og er það rök­stutt með því að hús­næð­is­kostn­aður emb­ætt­is­ins muni lækka. Sú til­laga var lögð fram í byrjun des­em­ber.

Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, mætti hins vegar fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í nóv­em­ber, áður en breyt­ing­ar­til­lagan var lögð fram, til að gefa skýrslu um starf­semi emb­ætt­is­ins á árinu 2014. Þar kom m.a. fram að frum­kvæð­is­málum hefði fækkað veru­lega hjá emb­ætt­inu und­an­farin ár vegna auk­ins mála­fjölda og álags. Nokkur frum­kvæð­is­mál bíða afgreiðslu en ekk­ert slíkt mál hefur form­lega verið tekið fyrir á þessu ári en verið er að ljúka einu máli. Í áliti nefnd­ar­innar segir: „ Umboðs­maður lagði á fund­inum áherslu á að það er Alþingis að ákveða hvaða umfang sé á starf­semi umboðs­manns og að ef vilji er til þess að unnt sé að sinna frum­kvæð­is­málum þurfi að auka fjár­magn til umboðs­manns með 15 millj. króna auka­fjár­veit­ingu. Nefndin telur í ljósi þess hve frum­kvæð­is­mál eru mik­il­vægur þáttur í starfi umboðs­manns og því hlut­verki sem hann gegnir í að auka réttar­ör­yggi borg­ar­anna sé það grund­vall­ar­at­riði að emb­ættið fái fjár­veit­ingu til að geta sinnt þessu mik­il­væga verk­efni.“

Forystumenn ríkisstjórnarinnar gagnrýndu umboðsmann harðlega

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi vinnu­brögð umboðs­manns Alþingis harð­lega í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í ágúst 2014, nokkrum mán­uðum áður en hún sagði af sér emb­ætti vegna leka­máls­ins. Í yfir­lýs­ingu hennar sagði meðal ann­ars að bréf sem umboðs­maður hafði sent henni dag­inn áður vegna leka­máls­ins, og hann birti dag­inn eftir opin­ber­lega, væri fullt af aðdróttn­unum og teng­ingum sem hafi bent til þess að Tryggvi hefði þegar mótað sér skoðun í mál­inu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, deildu einnig á umboðs­mann fyrir að birta umrætt bréf opin­ber­lega, en í því var að finna afhjúp­andi frá­sögn Stefáns Eiríks­sonar, þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, af ítrek­uðum afskiptum og þrýst­ingi sem Hanna Birna beitti hann vegna lög­reglu­rann­sóknar á leka­mál­inu. Bjarni gerði „alvar­legar athuga­semdir“ við birt­ingu bréfs­ins.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd ræðir í áliti sínu um sam­hengi fjár­veit­inga til umboðs­manns Alþingis og stöðu fram­kvæmd­ar­valds­ins í tengslum við frum­kvæð­is­at­hugun á leka­mál­inu svo­kall­aða sem hafði grund­valla­r­á­hrif í stjórn­sýsl­unni. Í áliti hennar segir að við með­ferð máls­ins „hnýttu for­ustu­menn rík­is­stjórn­ar­innar í for­gangs­röð umboðs­manns og opin­bera birt­ingu á bréfum til ráð­herra en það var litið til ann­arra emb­ætta á Norð­ur­löndum við það verk­lag. Nefndin telur það eðli­legt verk­lag sér­stak­lega þegar litið er til þess að umboðs­maður hefur engin þving­unar­úr­ræði heldur er gengið út frá því að fram­kæmd­ar­valds­hafar og stjórn­sýslan öll veiti umboðs­manni þær upp­lýs­ingar sem hann óskar eftir. Nefndin tekur því fram að það er grund­vall­ar­at­riði að umboðs­maður fái nægi­legt fjár­magn til að sinna lög­bundnum verk­efnum sínum með þeim hætti sem hann telur full­nægj­andi.“

Því er ljóst að nefndin lýsir sig ósam­mála þeirri gagn­rýni sem sett var fram á umboðs­mann Alþingis af for­ystu­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar í ágúst 2014.

Einhugur þvert á flokka

Í jan­úar birti umboðs­maður nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herr­ann, sem þá hafði þegar sagt af sér emb­ættið, hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt í mál­inu. Hún hafi haft ítrekuð og mikil afskipti af rann­sókn leka­máls­ins, sem snérist um leka þáver­andi aðstoð­ar­manns hennar, Gísla Freys Val­dórs­sonar, á upp­lýs­ingum um um hæl­is­leit­endur til val­inna fjöl­miðla. Gísli Freyr hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir lek­ann í nóv­em­ber 2014.

Tryggvi kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í kjöl­farið til að fara yfir leka­málið, nið­ur­stöðu sína og svara spurn­ingum nefnd­ar­manna. Þar sagði hann m.a.: „Kerfið virk­aði, þetta mál sýnir það.“

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sat á þessum tíma í nefnd­inni, en gerir það ekki lengur. Hann gagn­rýndi umboðs­mann Alþingis fyrir að birta opin­ber­lega bréf sitt til Hönnu Birnu, þar sem sam­skipti hennar við Stefán Eiríks­son voru rakin, og sagði: „Þarna varstu far­inn að reka málið í fjöl­miðlum“. Tryggvi svar­aði því til að það væru upp­lýs­inga­lög í gildi í land­inu sem segðu til um að almenn­ingur hefði rétt á því að vita af þessum sam­skiptum og sjá hvernig þeim væri háttað.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd tekur öll undir þessi sjón­ar­mið Tryggva í áliti sínu í sem birt var í dag. Að álit­inu standa Ögmundur Jónasson, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Vinstri grænna, Brynjar Níelsson og Birgir Ármanns­son úr Sjálf­stæð­is­flokki, Hösk­uldur Þór Þór­halls­son, Willum Þór Þórsson og Elsa Lára Arn­ar­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokknum

Fram­sókn­ar­flokknum, Sam­fylk­ing­ar­menn­irnir Árni Páll Árnason og Helgi Hjörvar og Birgitta Jóns­dóttir frá Pírötum. Auk þess er sér­stak­lega tekið fram að Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Bjartrar fram­tíðar, sé sam­þykk álit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár