„Kerfið virkaði“

„Kerfið virk­aði, þetta mál sýnir það,“ sagði Tryggvi Gunn­ars­son, Umboðs­maður Alþingis, alvar­legur í bragði á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem lauk nú rétt í þessu. Á fund­inum fór Tryggvi yfir málið og svar­aði spurn­ingum nefnd­ar­manna. Í máli Tryggva kom skýr­lega fram, að málið hefði tekið breytta stefnu eftir að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, ját­aði það að hafa átt sam­skipti við Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra, um rann­sókn á leka­mál­inu með bréfi 8. jan­úar síð­ast­lið­inn. Með því breytti hún fyrri fram­burði sínum og bað Tryggva beint afsök­unar á því, og ját­aði það skil­merki­lega fyrir honum að það hafi verið mis­tök að sinni hálfu að hafa afskipti af rann­sókn saka­máls, en því lauk með því að póli­tískur aðstoð­ar­maður hennar, Gísli Freyr Val­dórs­son, var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos. Með játn­ingu Hönnu Birnu tók málið því aðra stefnu en áður; óum­deilt var eftir þetta að afskipti Hönnu Birnu voru and­stæð lögum og að hún hefði haft óeðli­leg afskipti af rann­sókn máls­ins.

Almenningur á rétt á upplýsingunum


Einn þeirra sem spurði Tryggva spurn­inga á fund­inum var nefnd­ar­mað­ur­inn Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann spurði að því, hvers vegna Tryggvi hefði birt opin­ber­lega bréf sitt til Hönnu Birnu, þar sem sam­skiptin við Stefán Eiríks­son voru rakin, og spurn­inga beint til ráð­herra. „Þarna varstu far­inn að reka málið í fjöl­miðlum“ sagði Karl, og spurði hvers vegna þetta hefði verið verið gert. Tryggvi svar­aði því til, að það væru upp­lýs­inga­lög í gildi í land­inu sem segðu til um að almenn­ingur hefði rétt á því að vita af þessum sam­skiptum og sjá hvernig þeim væri háttað. „Það eru í gildi upp­lýs­inga­lög í þessu landi sem gera ráð fyrir því að þessi sam­skipti fari fram fyrir opnum tjöldum“ sagði Tryggvi.

[caption id="attachment_17895" align="alignnone" width="640"] Karl Garð­ars­son beindi spurn­ingum til Tryggva Gunn­ars­sonar, sem hann svar­aði skil­merki­lega.[/caption]

Hver á að rannsaka ráðherra?


Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, velti því upp á fund­inum í morgun hvort það væri ekki einn af „lær­dómum þessa máls­ins“ að það væri óheppi­legt að lög­reglan væri rann­sak­andi í máli þar sem ráð­herra lög­reglu­mála, eða ráðu­neyti lög­reglu­mála, væri and­lag rann­sókn­ar­innar. „Er þetta ekki von­laus staða fyrir lög­regl­una að vera í?,“ spurði Brynjar. Tryggvi sagði núgild­andi lög gera ráð fyrir því að lög­reglan rann­sak­aði mál sem þessi, en sagð­ist ekki vilja segja Alþingi „fyrir verkum“ við laga­setn­ingu. Hann nefndi að rík­is­sak­sókn­ari hefði rann­sókn­ar­hlut­verk í málum þar sem lög­reglu­menn væru til rann­sóknar, en að lögin gerðu ráð fyrir að lög­reglan rann­sak­aði mál sem þessi.

Óhugsandi staða á Norðurlöndunum


Vigdís Hauks­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, beindi spurn­ingum til Tryggva um hvernig málið hefði verið til lykta leitt á Norð­ur­lönd­unum, miðað við gildi lög og reglur þar í landi. Tryggvi sagði það reglur og lög á Norð­ur­lönd­unum, og tók Danmörku og Noreg sem dæmi, koma alfarið í veg fyrir að mál eins og leka­málið, og afskipti ráð­herra af rann­sókn þess, gæti komið upp. Sagði hann stjórn­skrá taka fyrir sam­skipti sem þessi auk þess að lag­ara­mm­inn væri skýr; ráð­herra dóms- og lög­reglu­mála mætti ekki hafa afskipti af rann­sókn mála, og ekki af rann­sókn á honum sjálfum eða ráðu­neyti hans. „Málið er for­dæma­laust“ sagði Tryggvi meðal ann­ars, þegar hann fór yfir þessi efn­is­at­riði.

[caption id="attachment_17861" align="alignnone" width="1024"] Nefnd­ar­menn fengu skamman tíma til þess að kynna sér álit Umboðs­manns Alþingis, og spurði fyrir vikið oft­ast nær almennra spurn­inga um málin.[/caption]

Þarna reynir á siðareglur og faglega stjórnsýslu


Tryggvi sagði málið sýna nauð­syn þess að vera með fag­lega stjórn­sýslu sem stæð­ist póli­tískan þrýst­ing og gæti leitt mál til lykta á fag­legum for­sendum. Það hefði sýnt sig í þessu máli, að þessi grund­vall­ar­at­riði í sam­fé­lags­gerð­inni hér á landi hefðu haldið. Þá væri það einnig mik­il­vægt að halda í heiðri meg­in­regl­unni um gagn­sæja stjórn­sýslu, frekar en „laun­ung og leynd“. Stjórn­sýslan væri í þeirri stöðu gagn­vart almenn­ingi í land­inu, að hennar fag­legi grunnur þyrfti að vera opinn og þola dags­ljósið. Efn­is­at­riði sem Tryggvi hefði nefnt í bréfi til for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, um mik­il­vægi þess að inn­leiða siða­reglur fyrir stjórn­sýsl­una og ráð­herra, og fara eftir þeim, skiptu miklu máli í þessu sam­hengi.

„Ef þetta heldur ekki, þá er bara voð­innn vís,“ sagði Tryggvi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár