Framlög til umboðsmanns Alþingis lækkuð um 13 milljónir

Tryggvi Gunnarsson er umboðsmaður Alþingis.
Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþingis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samkvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar við frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2016 verða fram­lög til emb­ættis umboðs­manns Alþingis lækkuð um 13 millj­ónir króna frá því sem var fyr­ir­hugað að myndi renna til emb­ætt­is­ins á fjár­lögum þegar þau voru lögð fram í haust. Í stað 202,5 millj­óna króna fær umboðs­maður 189,5 millj­ónir króna. Framlög til umboðs­manns hækka þó á milli ára í krónum talið. Á árinu 2015 fékk emb­ættið 174,5 millj­ónir króna sam­kvæmt fjár­lögum. Framlag til umboðs­manns er því raun­hækkun upp á um 12,5 millj­ónir króna, að teknu til­liti til verð­bólgu.

Lækkunin er rök­studd af meiri­hluta fjár­laga­nefndar með því að emb­ættið sé nú „emb­ættið til húsa í Þórs­hamri við Templ­ara­sund sem er í eigu rík­is­ins en áður leigði emb­ættið skrif­stofu­hús­næði á almennum mark­aði og þá nam húsa­leiga rúmum 13 m.kr. Þar sem emb­ættið greiðir ekki lengur húsa­leigu er lagt til að fjár­heim­ild til hennar verði felld niður."

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, sem kynntu sam­eig­in­lega breyt­ing­ar­til­lögu sína við fjár­laga­frum­varpið í gær, leggja til að umboðs­maður Alþingis fái 15 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag við það sem áður var áætlað til að emb­ættið geti sinnt frum­kvæð­is­at­hug­unum.

Starfs­maður þing­flokks Pírata, Aðal­heiður Ámunda­dóttir, kall­aði skert fjár­fram­lög til umboðs­manns Alþingis aðför að emb­ætt­inu að hálfu fjár­veit­inga­valds­ins í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi.

Tryggvi Gunn­ars­son er umboðs­maður Alþingis. Hann var end­ur­kjör­inn í starfið í des­em­ber 2011 til fjög­urra ára frá 1. jan­úar 2012. Skip­ana­tími hans rennur því út um næstu ára­mót og kjósa þarf um end­ur­kjör hans, eða nýjan umboðs­mann, áður en að sá tími er lið­inn. Tryggvi sat m.a. í þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði skýrslu sinni í apríl 2010.

Lekamálið, Fiskistofa og Seðlabankinn

Umboðs­maður Alþingis hefur verið tölu­vert í sviðs­ljós­inu á þessu ári. Í jan­úar birti hann nið­ur­stöðu frum­kvæð­is­at­hug­unar sinnar á sam­skiptum Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, og Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, vegna rann­sóknar leka­máls­ins svo­kall­aða. Þar segir hann að ráð­herr­ann, sem þá hafði þegar sagt af sér emb­ættið, hafi gengið langt út fyrir vald­svið sitt í mál­inu. Hún hafi haft ítrekuð og mikil afskipti af rann­sókn leka­máls­ins, sem snérist um leka þáver­andi aðstoð­ar­manns hennar, Gísla Freys Val­dórs­sonar, á upp­lýs­ingum um um hæl­is­leit­endur til val­inna fjöl­miðla. Gísli Freyr hlaut átta mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm fyrir lek­ann í nóv­em­ber 2014.

Í apríl birti umboðs­maður álit í til­efni af kvörtun starfs­manna Fiski­stofu til emb­ætt­is­ins vegna ákvörð­unar Sigurðar Inga Jóhans­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu til Akur­eyrar. Í áliti umboðs­manns segir að yfir­lýs­ingar og bréf Sigurðar Inga til starfs­manna Fiski­stofu vegna flutn­ings­ins hafi ekki verið í sam­ræmi við vand­aða stjórn­sýslu­hætti.

Í byrjun sendi umboðs­maður Alþingis svo bréf til Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis vegna athug­unar sem hann hafði unnið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands vegna gruns um brot á reglum um gjald­eyr­is­höft. Í bréfi hans kemur m.a. fram að Seðla­banki Íslands hafði ekki skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efni við umsýslu og sölu eigna til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans. Umrætt einka­hluta­fé­lag, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðla­bank­anum hefur áskotn­ast vegna hruns­ins. Um er að ræða eignir, meðal ann­ars hlutir í fyr­ir­tækjum og fast­eignir, og kröfur upp á hund­ruði millj­arða króna. ESÍ hefur á und­an­förnum árum selt margar þeirra eigna sem félag­inu áskotn­að­ist. Í bréf­inu gagn­rýnir umboðs­maður einnig fram­kvæmd gjald­eyr­is­reglna seðla­bank­ans.

Bankaráð Seðla­banka Íslands ákvað á grund­velli þeirrar nið­ur­stöður að láta gera athugun á þessum málum.

Segir kerfið verja sig sjálf

Í síð­ustu viku var greint frá því að17 eft­ir­lits­stofn­anir rík­is­ins fái um 13.134 millj­ónir króna á næsta ári úr rík­is­sjóði. Það er 5,8 pró­sent meira en þær fengu á þessu ári, þegar 12.409 millj­ónir króna runnu til þeirra. Alls aukast útgjöld til eft­ir­lits­stofn­ana því um 725 millj­ónir króna á næsta ári. Umboðs­maður Alþingis er á meðal þess­arra eft­ir­lits­stofn­anna.

Guðlaug Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, sagði af þessu til­efni við Morg­un­blaðið að rík­is­stofn­anir sporni við sparn­aði með öllum til­tækum ráðum. „Það gengur erf­ið­lega að spara hjá stofn­unum. Kerfið ver sig með öllum ráðum. Það skortir skiln­ing á mik­il­vægi þess að gæta aðhalds í rík­is­fjár­málum og hafa í þessu til­felli ein­falt og skil­virkt eft­ir­lits­kerfi. Þetta er útlagður kostn­aður skatt­greið­enda og það er líka í þessu fólg­inn mik­ill óbeinn kostn­aður fyrir atvinnu­lífið og fólkið í land­inu, eins og allir vita... Fjár­lögin eru ill­skilj­an­leg og það er iðu­lega verið að ræða smærri mál í stað þess að ræða stóru málin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár