Guðlaugur Þór: Kerfið ver sig með öllum ráðum fyrir niðurskurði

Samtals fá 17 eft­ir­lits­stofn­anir rík­is­ins um 13.134 millj­ónir króna á næsta ári úr rík­is­sjóði. Það er 5,8 pró­sent meira en þær fengu á þessu ári, þegar 12.409 millj­ónir króna runnu til þeirra. Alls aukast útgjöld til eft­ir­lits­stofn­ana því um 725 millj­ónir króna á næsta ári. Mesta aukn­ingin er til Sam­göngu­stofu (144 millj­ónir króna) og Mat­væla­stofn­unar (136 millj­ónir króna). Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Þar er rætt við Guðlaug Þór Þórð­ar­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­mann fjár­laga­nefndar. Hann segir rík­is­stofn­anir sporna við sparn­aði með öllum til­tækum ráðum. „Það gengur erf­ið­lega að spara hjá stofn­unum. Kerfið ver sig með öllum ráðum. Það skortir skiln­ing á mik­il­vægi þess að gæta aðhalds í rík­is­fjár­málum og hafa í þessu til­felli ein­falt og skil­virkt eft­ir­lits­kerfi. Þetta er útlagður kostn­aður skatt­greið­enda og það er líka í þessu fólg­inn mik­ill óbeinn kostn­aður fyrir atvinnu­lífið og fólkið í land­inu, eins og allir vita... Fjár­lögin eru ill­skilj­an­leg og það er iðu­lega verið að ræða smærri mál í stað þess að ræða stóru málin.“

Guð­laugur Þór segir að tregðu­lög­málið sé hrika­lega sterkt. Til að taka á þessum hlutum þurfi að vera sam­spil fram­kvæmda­valds og þing­meiri­hluta. „Það virð­ist vera svo að þótt menn séu í orði kveðnu til­búnir í breyt­ingar þá vantar upp á að þeim sé hrint í fram­kvæmd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár