Bankaráð Seðlabanka Íslands vill rannsókn á framkvæmd gjaldeyrisreglna

Banka­ráðs Seðla­banka Íslands hefur sam­þykkt að láta gera athugun á fram­kvæmd gjald­eyr­is­reglna bank­ans, m.a. vegna nýlegrar nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis þar sem atriði í fram­kvæmd­inni voru gagn­rýnd. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar er haft eftir Þórunni Guð­munds­dóttur, for­manni banka­ráðs­ins, að við­ræður standi yfir við ákveðin aðila um að taka að sér rann­sókn máls­ins. Morg­un­blaðið seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að Seðla­bank­inn hafi leitað til Laga­stofn­unar Háskóla Íslands varð­andi rann­sókn­ina.

Til stendur að rann­saka laga­legan grunn gjald­eyr­is­regln­anna og fram­kvæmd þeirra. Auk þess stendur til að rann­saka stofnun Eigna­safns Seðla­banka Íslands (ESÍ).

Engin hlotið dóm fyrir brot á gjaldeyrislögum

Fjár­festir­inn Heiðar Guð­jóns­son kvart­aði til umboðs­manns Alþingis í nóv­em­ber 2010 vegna máls­með­ferðar sem hann fékk í seðla­bank­anum, og leiddi m.a. til þess að Heiðar fékk ekki að kaupa tryggina­fé­lagið Sjóvá. Heiðar metur tjón sitt á um þrjá millj­arða króna, likt og Kjarn­inn fjall­aði um í frétta­skýr­ingu þann 21. októ­ber.

Umboðs­maður skil­aði loks áliti sínu í mál­inu 6. októ­ber síð­ast­lið­inn, fimm árum eftir að kvörtun Heiðars var lögð fram. Í því kemur meðal ann­ars fram að hann hafi sjálfur, strax við upp­haf athug­unar hans í lok árs 2010, stað­næmst sér­stak­lega við þá leið sem farin var í lögum þegar gjald­eyr­is­höftin voru tekin upp haustið 2008. Þar var Seðla­banka Íslands fengin heim­ild til að gefa út, að fengnu sam­þykki ráð­herra, reglur um gjald­eyr­is­mál. Hinar eig­in­legu efn­is­reglur um gjald­eyr­is­höftin voru í regl­unum og brot gegn þeim gátu varðað refs­ingum. Umboðs­maður taldi vafa leika á því að þetta fyr­ir­komu­lag upp­fyllti þær kröfur sem leiða af reglum um lög­bundnar refsi­heim­ildir og skýr­leika refsi­heim­ilda.

Til við­bótar komu síðan atriði sem lutu að sam­þykki ráð­herra á regl­unum og birt­ingu þess, en eins og fram hefur komið, þá felldi Seðla­bank­inn niður 23 mál á dög­unum, þar sem sér­stakur sak­sókn­ari telur regl­urnar gall­aðar. Enginn ein­stak­lingur hefur fengið dóm fyrir brot á gjald­eyr­is­lögum, frá því fjár­magns­höft voru lög­fest í nóv­em­ber 2008, eða fyrir tæpum sjö árum.

Í samráði við fjármálaráðuneytið

Þá gagn­rýnir Umboðs­maður einnig stofnun ESÍ, sem heldur utan um miklar eignir Seðla­bank­ans, og telur laga­legan grund­völl stofn­unar þess félags vera á veikum grunni.

Kjarninn greindi frá því 10. októ­ber að til­færsla á verk­efnum við umsýslu og sölu eigna Seðla­banka Íslands til ESÍ hafi verið gerð í sam­ráði við fjár­mála­ráðu­neytið undir lok árs 2009, þegar Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum var ákvörð­unin um að færa umsýslu og sölu eigna sem bank­inn sat uppi með eftir hrunið yfir í ESÍ tekin undir lok árs 2009. Utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar voru fengnir til að gefa álit sitt á gern­ingnum og héldu kynn­ingu um málið fyrir fjár­mála­ráðu­neytið í des­em­ber 2009. Í kjöl­farið var ákveðið að flytja verk­efnin til ESÍ.

Óljós lagalegur grundvöllur

Umboðs­maður Alþingis sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis bréf 2. októ­ber þar sem hann gerði grein fyrir athugun sem hann hefur unnið að á síð­ustu árum vegna atriða tengdum rann­sóknum Seðla­banka Íslands vegna gruns um brot á reglum um fjár­magns­höft.

Kemur fram í bréf­inu að laga­legur grund­völlur Seðla­bank­ans til aðgerða gegn ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum, vegna meintra brota gegn gjald­eyr­is­lögum, hafi verið um margt óljós. Í bréf­inu áréttar umboðs­maður einnig að þess verði gætt í fram­tíð­inni að vanda betur til laga­setn­ingar um sam­bæri­leg mál, sér­stak­lega um fram­setn­ingu refsi­heim­ilda og þar með um grund­völl athug­ana og rann­sókna stjórn­valda þegar grunur vaknar um brot sem sætt geta við­ur­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár