Færsla verkefna til ESÍ var gerð í samráði við fjármálaráðuneytið - Ekki skýr lagaheimild

Til­færsla á verk­efnum við umsýslu og sölu eigna Seðla­banka Íslands til einka­hluta­fé­lags í eigu bank­ans, Eigna­safns Seðla­banka Íslands (ESÍ), var gerð í sam­ráði við fjár­mála­ráðu­neytið undir lok árs 2009, þegar Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra. Umboðs­maður Alþingis opin­ber­aði þá nið­ur­stöðu sína í vik­unni að Seðla­bank­inn hefði ekki haft skýra laga­heim­ild til að flytja verk­efnin til ESÍ með þessum hætti.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum var ákvörð­unin um að færa umsýslu og sölu eigna sem bank­inn sat uppi með eftir hrunið yfir í ESÍ tekin undir lok árs 2009. Utan­að­kom­andi sér­fræð­ingar voru fengnir til að gefa álit sitt á gern­ingnum og héldu kynn­ingu um málið fyrir fjár­mála­ráðu­neytið í des­em­ber 2009. Í kjöl­farið var ákveðið að flytja verk­efnin til ESÍ. Nú hefur komið í ljós að ekki var skýr laga­heim­ild fyrir þeirri aðgerð.

Afleiðingum hrunsins hrúgað inn í eignarhaldsfélag


Við fall bank­anna í októ­ber 2008 varð Seðla­banki Íslands fyrir veru­legu tjóni, meðal ann­ars vegna veð­lána til lána­stofn­ana. Seðla­bank­inn eign­að­ist einnig umtals­verðar kröfur á inn­lend fjár­mála­fyr­ir­tæki sem ógjörn­ingur var að vita hversu verð­mætar yrðu þegar fram liðu stundir. Hluti þessar krafna var færður yfir til rík­is­sjóðs í árs­lok 2008.

Að mestu leyti var um veð­kröfur Seðla­bank­ans að ræða, sem oft hafa verið kölluð ást­ar­bréf í dag­legu tali. Umfang þeirra var um 345 millj­arðar króna og algjör óvissa ríkti á þeim tíma­punkti um hversu mikið, ef eitt­hvað, myndi inn­heimt­ast af þeim. Seðla­bank­inn afskrif­aði 75 millj­arða króna af upp­hæð­inni og rík­is­sjóður yfir­tók afgang­inn, um 270 millj­arða króna með sér­stöku sam­komu­lagi sem gert var 12. jan­úar 2009. Til við­bótar við veð­lánin yfir­tók rík­is­sjóður einnig svokölluð trygg­inga­bréf vegna samn­inga við aðal­miðl­ara rík­is­bréfa upp á 98 millj­arða króna.

Rík­is­sjóður greiddi fyrir yfir­teknu kröf­urnar með skulda­bréfi upp á sömu upp­hæð. Hann afskrif­aði síðan tapið í rík­is­reikn­ingi 2008. Það er því þegar búið að bók­færa tap vegna þess­ara eigna. Ef þær skila ein­hverju til baka mun það bók­fær­ast sem hagn­aður.

Í febr­úar 2010 náð­ist sam­komu­lag milli rík­is­sjóðs og Seðla­banka Íslands um að ESÍ myndi fá allar yfir­teknu kröf­urnar til baka, ári eftir að þær voru fluttar í hina átt­ina. Miða skyldi yfir­tök­una við árs­lok 2009. Samhliða þessu var sett á fót rek­star­fé­lagið Sölvhóll ehf. sem hafði það hlut­verk að hámarka virði þeirra eigna sem voru í ESÍ og koma þeim í verð þegar mark­aðs­að­stæður leyfðu.

Í árs­reikn­ingi Seðla­bank­ans vegna árs­ins 2009 segir að með þessu skipu­lagi myndi nást „betri aðgrein­ing á þeim rekstri og þeim eignum sem tengj­ast banka­hrun­inu og síðan hefð­bund­inni starf­semi Seðla­bank­ans.“

Eignir sem metnar eru á hundruð milljarða króna


ESÍ var risa­vaxið félag og ein verð­mætasta eign sem íslenska ríkið á. Eignir þess í lok árs 2009 námu 491 millj­arði króna og voru 42 pró­sent af heild­ar­efna­hagi Seðla­banka Íslands. Félagið hefur gegnt, og mun áfram gegna, lyk­il­hlut­verki þegar slitabú gömlu bank­anna verða gerð upp. Félagið er enda sá inn­lendi aðili sem heldur á langstærstum hluta krafna í bú þeirra.

Í lok árs 2012 átti ESÍ bók­færðar eignir upp á 326 millj­arða króna. Stjórn­endur félags­ins hafa verið dug­legir við að selja eignir und­an­farin ár og um síð­ustu ára­mót voru eignir þess metnar á 209 millj­arða króna. Þær munu lækka enn meira á næst­unni þegar gengið verður frá sölu dótt­ur­fé­lags­ins Hildu. Það félag á 364 fast­eignir sem metnar eru á 6,6 millj­arða króna, 387 útlán (til 260 lán­tak­enda) og önnur skulda­bréf sem metin eru á 5,7 millj­arða króna og hand­bært fé/kröfur upp á 2,9 millj­arða króna. Hilda á alls sex dótt­ur­fé­lög og hjá félag­inu starfa 13 manns. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og mun­aði þar lang­mestu um hreinar rekstr­ar­tekjur, sem eru sala eigna og lána á tíma­bil­inu. Auk þess námu leigu­tekjur 139 millj­ónum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Ekki skýr lagaheimild


Nú liggur hins vegar fyrir að umboðs­maður Alþingis telur að það hafi ekki verið skýr laga­heim­ild til að færa eignir, og verk­efni tengd umsýslu og sölu þeirra, frá Seðla­bank­anum til ESÍ. Þessi nið­ur­staða hans kom fram í bréfi sem hann sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í síð­ustu viku, vegna athug­unar sem hann hefur unnið á síð­ustu árum vegna atriða tengdum athug­unum og rann­sóknum Seðla­banka Íslands um ætluð brot á reglum um gjald­eyr­is­höft.

Tilefni þess­arrar athug­unar umboðs­manns voru meðal ann­ars ábend­ingar um að þeir sem komið hefðu fram fyrir hönd bank­ans og ESÍ „hefðu gert það með áþekkum hætti og um væri að ræða einka­að­ila en ekki rík­is­stofnun. „Er það afstaða umboðs­manns að skýr­ingar bank­ans um laga­heim­ild til flutn­ings verk­efn­anna hafi ekki verið full­nægj­andi. Umboðs­maður leggur áherslu á að auk þess sem full­nægj­andi laga­heim­ild þurfi að vera fyrir hendi til slíks flutn­ings opin­berra verk­efna frá rík­is­stofnun sé líka mik­il­vægt að þeir starfs­menn sem fjalli um þessi mál, við­semj­endur um þessar eignir og kröfur og almennir borg­arar séu ekki í vafa um eftir hvaða reglum, svo sem um með­ferð valds og upp­lýs­inga, hæfi og máls­með­ferð að öðru leyti, eigi að fara í þessum til­vikum.“

Viðbrögð verða að koma í ljós


Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Seðla­bank­ans um málið og spurði meðal ann­ars hvort ein­hver verði lát­inn bera ábyrgð á því að ekki var skýr laga­heim­ild til að fram­kvæma til­færslu verk­efna við umsýslu og sölu eigna til ESÍ og hvort nið­ur­staðan muni hafa ein­hverjar afleið­ingar fyrir starf­semi ESÍ. Í svari Seðla­bank­ans er því ekki svarað beint.

Þar stendur: „Bréf umboðs­manns Alþingis barst í lok síð­ustu viku. Það er með ýmsum ábend­ingum og er nú til skoð­unar í bank­anum, m.a. hver grund­völlur þess sé þar sem ekki er um frum­kvæð­is­at­hugun að ræða sam­kvæmt lögum um umboðs­mann Alþingis heldur almennar athuga­semdir Tryggva Gunn­ars­sonar umboðs­manns Alþingis. Vegna þessa hefur hann ekki aflað frek­ari upp­lýs­inga eða skýr­inga hjá stjórn­völdum og unnið úr þeim eins og hann bendir skýrt á í bréfi sínu. Umboðs­maður óskar sjálfur eftir að fá við­brögð stjórn­valda við ábend­ingum sínum fyrir 15. apríl á næsta ári. Það verður að koma í ljós eftir yfir­ferð á bréf­inu hvort það muni í fram­tíð­inni hafa ein­hver áhrif á fyr­ir­komu­lag mála og hver önnur við­brögð verða. Hvað stofnun Eigna­safns Seðla­banka Íslands varðar þá átti hún sér langan aðdrag­anda og það var alls ekki ljóst í upp­hafi að þeim verk­efnum yrði komið fyrir í Seðla­banka Íslands enda sótt­ist Seðla­bank­inn ekk­ert sér­stak­lega eftir því. Það varð hins vegar nið­ur­staðan og var það gert í sam­ráði við stjórn­völd.“

Kjarninn spurði í kjöl­farið við hvaða stjórn­völd sam­ráð hefði verið haft við. Í síð­ara svari Seðla­bank­ans sagði að um hafi verið að ræða fjár­mála­ráðu­neytið og að ákvörð­unin hafi verið tekin undir lok árs 2009. Þá var Stein­grímur J. Sig­fús­son fjár­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár