Tjón Heiðars nálgast þrjá milljarða - Það verði „séð til þess“ að Seðlabankinn axli ábyrgð

Heiðar Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur og fjár­festir, segir að tjón hans, vegna inn­gripa Seðla­banka Íslands í við­skipti fjár­festa­hóps sem hann leiddi, og ætl­aði sér að kaupa stóran hlut í trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá, nálg­ast þrjá millj­arða.

Hann hefur höfðað skaða­bóta­mál gegn Seðla­bank­anum og kraf­ist bóta upp á tæpa tvo millj­arða, en eins og áður sagði metur hann tjónið mun meira.

Stefnan er byggð á því að bind­andi sam­komu­lag hafi verið gert milli félags Heiðars og Seðla­bank­ans og Eigna­safn Seðla­banka Íslands ehf. (ESÍ) hinn 10. júlí 2010 um kaup á hluta­bréfum í Sjóvá auk réttar til kaupa á frek­ari hlutum á fyr­ir­fram ákveðnu gengi. Seðla­bank­inn og ESÍ hafi hins vegar sam­mælst um að hætta við við­skiptin, þar sem gjald­eyr­is­við­skipti Heiðars voru til rann­sóknar hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti bank­ans á sama tíma.

Sjóvá var í opnu sölu­ferli á þessum tíma en Seðla­bank­inn og ESÍ sátu uppi með stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu, eftir hrunið, en ríkið lagði því til fé þegar það var í fjár­hags­erf­ið­leikum til að bjarga því.

Málið var rann­sakað, eins og áður segir, og vísað áfram til efna­hags­brota­deildar RLS, sem nú er hluti af emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, en fellt niður af rík­is­sak­sókn­ara hinn 27. febr­úar 2012. Ekki var talið að lög hafi verið brotin, og engin ástæða til ákæru.

„Þetta er tjón sem nálg­ast þrjá millj­arða. Það er hækkun verð­mæta hluta­bréf­anna frá þeim tíma sem mér var hent útúr við­skipt­unum. Ríkið hefði fengið 1,5 millj­arðs hærra verð ef gengið hefði verið að við­skiptum við minn hóp á sínum tíma, um 10,9 millj­arða, í stað 9,4 sem fyr­ir­tækið var svo selt á. Ríkið tap­aði því 1,5 millj­arði og ég tap­aði um tvö­faldri þeirri fjár­hæð. Ríkið var til­neytt til að selja á þessum tíma, enda ESA og fleiri að gagn­rýna yfir­töku rík­is­ins á fyr­ir­tæki í sam­keppn­is­mark­aði,“ segir Heiðar.

Hann seg­ist aðspurður, ekki búast við því að Seðla­bank­inn muni aðhaf­ast neitt, eða axla ábyrgð á þeim aðgerðum sem gripið var til gagn­vart honum án þess að lög­mætar ástæður væru þar að baki. „Ég tel ekki að Seðla­bank­inn geri neitt, hann hefur enga til­burði sýnt í þá veru. Ég tel hins vegar að þeir sem bera ábyrgð á Seðla­bank­anum, ráðu­neyti og Alþingi muni sjá til þess að Seðla­bank­inn axli ábyrgð á mis­tökum sínum,“ segir Heiðar.

Umboðsmaður gagnrýnir


Heiðar kvart­aði til Umboðs­manns Alþingis 22. nóv­em­ber 2010, vegna málsm­ferð­ar­innar í seðla­bank­anum, og skil­aði hann áliti sínu 6. októ­ber 2015, eða fyrir rúm­lega tveimur vikum. Í því kemur meðal ann­ars fram að hann hafi sjálfur, strax við upp­haf athug­unar hans í lok árs 2010, stað­næmst sér­stak­lega við þá leið sem farin var í lögum þegar gjald­eyr­is­höftin voru tekin upp haustið 2008. Þar var Seðla­banka Íslands fengin heim­ild til að gefa út, að fengnu sam­þykki ráð­herra, reglur um gjald­eyr­is­mál. Hinar eig­in­legu efn­is­reglur um gjald­eyr­is­höftin voru í regl­unum og brot gegn þeim gátu varðað refs­ingum. Umboðs­maður taldi vafa leika á því að þetta fyr­ir­komu­lag upp­fyllti þær kröfur sem leiða af reglum um lög­bundnar refsi­heim­ildir og skýr­leika refsi­heim­ilda. Til við­bótar komu síðan atriði sem lutu að sam­þykki ráð­herra á regl­unum og birt­ingu þess, en eins og fram hefur komið, þá felldi Seðla­bank­inn niður 23 mál á dög­unum, þar sem sér­stakur sak­sókn­ari telur regl­urnar gall­aðar. Enginn ein­stak­lingur hefur fengið dóm fyrir brot á gjald­eyr­is­lögum, frá því fjár­magns­höft voru lög­fest í nóv­em­ber 2008, eða fyrir tæpum sjö árum.

[caption id="attachment_41773" align="alignnone" width="640"] Tryggvi Gunn­ars­son, Umboðs­maður Alþingis.[/caption]

Þá gagn­rýnir Umboðs­maður einnig stofnun ESÍ, sem heldur utan um miklar eignir Seðla­bank­ans, og telur laga­legan grund­völl stofn­unar þess félags vera á veikum grunni.

Umboðs­maður Alþingis sendi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, banka­ráði Seðla­banka Íslands, seðla­banka­stjóra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis bréf 2. októ­ber þar sem hann gerði grein fyrir athugun sem hann hefur unnið að á síð­ustu árum vegna atriða tengdum rann­sóknum Seðla­banka Íslands vegna gruns um brot á reglum um fjár­magns­höft. Kemur fram í bréf­inu að laga­legur grund­völlur Seðla­bank­ans til aðgerða gegn ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum, vegna meintra brota gegn gjald­eyr­is­lögum, hafi verið um margt óljós. Í bréf­inu áréttar umboðs­maður einnig að þess verði gætt í fram­tíð­inni að vanda betur til laga­setn­ingar um sam­bæri­leg mál, sér­stak­lega um fram­setn­ingu refsi­heim­ilda og þar með um grund­völl athug­ana og rann­sókna stjórn­valda þegar grunur vaknar um brot sem sætt geta við­ur­lögum.

Þorsteinn Már gagnrýnir Seðlabankann


Fleiri mál en Heiðars hafa verið í brennid­epli, sem snúa að rann­sóknum og ákvörð­unum um kærur hjá Seðla­banka Íslands, vegna meintra brota gegn gjald­eyr­is­lögum. Sér­stakur sak­sókn­ari féll frá mál­sókn gegn Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, og sam­starfs­mönnum hans, vegna meintra gjald­eyr­is­brota Samherja og tengdra félaga, í byrjun sept­em­ber. Á fjórða ár var þá liðið frá því hús­leit var gerð í höf­uð­stöðvum Samherja vegna máls­ins, bæði í Reykja­vík og á Akureyri. Seðla­bank­inn kærði málið tví­vegis til sér­staks sak­sókn­ara, og var það að mat sak­sókn­ara að ekki væri til­efni til ákæru, og mál­inu er nú end­an­lega lokið. Þor­steinn Már hefur gagn­rýnt Seðla­bank­ann harð­lega fyrir hvernig hann hefur staðið að málum, og sagt að í mál­inu gegn Sam­herj­a­fólki hafi verið farið með „ill­vilj­ann að vopni“ gegn sak­lausu fólki. Stjórn Samherja hefur sent bréf til banka­ráðs Seðla­banka Íslands, þar sem hún krefst þess að Seðla­bank­inn beri ábyrgð á mis­tökum sínum.


Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, hefur þver­neitað því að ill­vilji hafi búið að baki aðgerðum seðla­bank­ans gegn Heiðari, Þor­steini Má eða öðrum ein­stak­lingum. Þvert á móti hafi bank­inn talið það vera hans laga­skyldu, að grípa til aðgerða, þegar það hefur verið gert. Seðla­bank­inn hefur ekki enn svarað athuga­semdum Umboðs­manns Alþingis og birt þau opin­ber­lega, en boðað hefur verið að það verði gert.

[caption id="attachment_41682" align="alignnone" width="1024"] Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár