Namibískur blaðamaður: „Ein stærsta frétt síðustu tuttugu ára í Namibíu“

Yfirmaður rannsóknar­teymis The Namibian segir að sjaldgæft sé að stjórn­málamenn þarlendis segi af sér, en það hafi verið nauðsynlegt vegna komandi kosninga. Ímynd Íslands er flekkuð í Namibíu.

Shinovene Immanuel
Shinovene Immanuel Yfir­maður rann­sókn­arteymis The Namibian segir að kallað sé á breyt­ingar.

Orðspor Íslands hefur beðið hnekki í Namibíu og líklegt er að uppljóstranir um mútu­greiðslur Samherja til þarlendra stjórn­mála muni hafa áhrif í kosningum sem fram fara 27. nóvember næst­komandi. Þetta er mat Shinovene Immanuel, yfirmanns rannsóknar­teymis hjá dagblaðinu The Namibian.

„Ég mundi segja að þetta sé ein stærsta frétt síðustu tuttugu ára í Namibíu,“ segir hann í samtali við Stundina. „Bæði hvað varðar gæði og magn gagnanna sem liggja að baki og sýna gjörðir hátt settra stjórn­málamanna. Ég hef unnið við leka úr Panama­skjölunum og í öðrum slíkum málum, en þessi umfjöllun er á toppnum. Hún gæti haft þau áhrif að völd sjávar­útvegs­ráðherra til að úthluta kvóta minnki og ferlið verði gagnsærra. Kerfið yrði þá betur varið gegn spillingu í fram­tíðinni og þetta er það sem Namibíu­menn vona að gerist.“

Shinovene telur að traust Namibíu­manna til Íslendinga hafi beðið högg við uppljóstranir Stundarinnar, RÚV, Wikileaks og Al Jazeera. „Íslendingar komu og fjárfestu í sjávar­útveginum hér, en nú sjáum við að samstarf þeirra við Namibíu­menn var byggt á blekkingum sem fólk er farið að sjá í gegnum. Ef þú spyrð núna fólk í sjávar­útvegi um hvort það vilji vinna með Íslendingum segir það líklega nei. Ímyndin er flekkuð og það mun taka tíma að endur­heimta traustið. Namibíu­menn munu vera varkárir í samskiptum við Íslendinga.“

„Ef þú spyrð núna fólk í sjávar­útvegi um hvort það vilji vinna með Íslendingum segir það líklega nei“

Samherja­skjölin sýna hvernig verðmæti streymdu úr landi í hendur fárra einstaklinga og hvernig hátt settir meðlimir stjórn­mála­flokksins SWAPO fengu greitt fyrir vikið. „Þetta mál hefur komið umræðunni í deigluna, en það hefur verið á sveimi orðrómur í mörg ár um spillingu í þessum geira,“ segir Shinovene. „Fólki hefur grunað að sjávar­útvegurinn hafi verið, eins og einn ráðherra orðaði það, mafíu­starfsemi. Að það hafi þurft að stunda ólöglegt athæfi til að taka þátt. En það var enginn leki og engin sönnunar­gögn til að sannreyna þessa mafíu­starfsemi, en núna höfum við fengið að sjá í smáatriðum hvernig hlutirnir virkuðu. Þegar nýtt skip er vígt er það bara glansmyndin af bransa þar sem fjármunir voru sogaðir burt.“

Bernhardt Edau sjávar­útvegs­ráðherra og Sacky Shanghala dómsmála­ráðherra hafa sagt af sér vegna málsins, en í namibískum stjórn­málum er sjaldgæft að stjórn­málamenn geri slíkt. „Það gerðist fyrir nokkrum mánuðum líka, en venjulega segja þeir ekki af sér og það hafði ekki gerst í áratug áður,“ segir Shinovene. „Tíma­setningin skipti máli. Það eru nokkrar vikur í kosningar og það þurfti að bregðast við ásökununum. Þetta mál mun vera notað til að þrýsta á fólk um að kjósa um breytingar. SWAPO hefur verið við stjórn­völdin í þrjátíu ár, svo þeir eru vanir völdunum og gera hluti án þess að búast við afleiðingum. Utan­kjörfundar­atkvæða­greiðslan er byrjuð og við höfum séð að forsetinn er að tapa fylgi.“

„Þetta mál mun vera notað til að þrýsta á fólk um að kjósa um breytingar“

Shinovene segir athygli fólks hafa beinst helst að gerendunum sjálfum, stjórn­málamönnum sem komu að mútu­málinu, frekar en að kerfis­lægum þáttum sem gerðu spillinguna mögulega. „Áherslan hefur ekki verið á Samherja, þannig að umræðan um svokallaða nýja nýlendu­stefnu kemur frekar síðar. Núna er áherslan á að losna við stjórn­málamennina sem hafa verið að gera þessa hluti árum saman. Við fjölluðum um þetta í ritstjórnar­grein í dag. Það er ekki stórmál að reka stjórn­málamennina. Lykil­atriðið er að laga kerfið sem hefur leyft þeim að misnota það til að hagnast sjálfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár