Trúnaðarbresturinn var að leyna upplýsingunum

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, lýsti trún­að­ar­brest­inum sem olli því að rík­is­stjórn Íslands er fallin í sjón­varp­inu í hádeg­inu í dag.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.
Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, lýsti trún­að­ar­brest­inum sem olli því að rík­is­stjórn Íslands er fallin í sjón­varp­inu í hádeg­inu í dag.

Trún­að­ar­brest­ur­inn fólst í því að dóms­mála­ráð­herra upp­lýsti for­sæt­is­ráð­herra um stöðu í mjög við­kvæmu máli í júlí. Ljóst var að mælir­inn var fullur þegar upp komst að tveir mán­uðir höfðu liðið frá því að Bjarni Bene­dikts­son fékk vit­neskju um málið og þar til almenn­ingur og sam­starfs­flokkar höfðu verið upp­lýst.

Óttarr var í sam­tali í auka­frétta­tíma RÚV í hádeg­inu í dag þar sem hann lýsti þessu.

Björt fram­tíð sleit stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn í nótt vegna þess að faðir for­sæt­is­ráð­herra und­ir­rit­aði með­mæli með barn­a­níð­ingi um að hann fengi upp­reisn æru.

[adspot]

„Ég stóð í þeirri trú að þetta væri eitt­hvað sem var að koma í ljós,“ sagði Óttarr sem fékk fyrst að vita af með­mælum föður for­sæt­is­ráð­herra á fundi með Bjarna Bene­dikts­syni og Benedikt Jóhann­essyni á mánu­dag.

Spurður hvort það hafi verið fljót­færni að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu segir Óttarr að svo hafi ekki verið. Hann hafi verið í síma­sam­bandi við Bjarna þar sem hann ræddi þessi mál áður en stjórn­ar­fundur var haldin í Bjartri fram­tíð í gær­kvöldi.

Grunn­prinsipp Bjartrar fram­tíðar hafi verið brotin og þess vegna seg­ist Óttarr vera enn sann­færð­ari núna um að þetta hafi verið rétt ákvörðun af hálfu flokks hans en í gær­kvöldi.

Hann segir stöð­una ekki vera orðna þannig að hægt sé að segja til um hvað muni verða í fram­hald­inu. Óttarr vildi ekki skjóta fyrir það loku að Björt fram­tíð myndi verja minni­hluta­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar falli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár