Leyndin um meðmælabréf fyrir barnaníðing kornið sem fyllti mælinn

Björt fram­tíð var ein­huga um að slíta sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, og Björt Ólafsdóttir.
Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Björt Ólafs­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um leið og það lá fyrir, að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra, hefðu vitað af því að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna, hefði mælt með upp­reist æru fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, barn­a­níð­ing, þá nötr­aði allt og skalf innan Bjartrar fram­tíðar. Algjör sam­staða var svo innan stjórnar flokks­ins um að slíta Bjarta fram­tíð frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, eftir nokkuð til­finn­inga­ríkan fund í kvöld.

Óánægja með trúnaðarbrest

Guðlaug Krist­jáns­dóttir, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að innan flokks­ins hafi verið sér­stak­lega mikil óánægja með fram­göngu Sigríðar Andersen, dóms­mála­ráð­herra. Að mati flokks­manna hafi hún verið upp­vís að trún­að­ar­bresti, þegar hún upp­lýsti um það í sjón­varps­við­tali við Stöð 2, að hún hefði til­kynnt Bjarna Bene­dikts­syni um það í júlí síð­ast­liðnum, að faðir hans, Benedikt Sveins­son, væri meðal með­mæl­enda fyrir því að Hjalti Sigurjón fengi upp­reist æru.

Litið var á þetta sem trún­að­ar­brest innan rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins að vit­neskju um þessi atriði hefði verið haldið innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hjalti Sigurjón var dæmdur í fang­elsi fyrir að nauðga og mis­þyrma stjúp­dóttur sinni á tólf ára tíma­bili, þegar hún var á aldr­inum 5 til 17 ára.

Þá hafði ráðu­neytið ekki gert nein gögn um þá sem vott­uðu góða hegðun þeirra sem fengu upp­reist æru opin­ber. Frétta­stofa RÚV kærði neitun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál, sem svo felldi úrskurð á þá leið, að upp­lýs­ingar um votta ættu að vera opin­berar. Ráðu­neytið hyggst gera þær upp­lýs­ingar opin­berar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Jóhann­esi Tómassyni, upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, en það hefur ekki verið gert enn.

„Það var alveg sam­staða um ekki yrði kom­ist lengra í þessu sam­starfi,“ segir Guðlaug um fund flokks­manna Bjartrar Fram­tíðar.

Er Björt fram­tíð byrjuð að ræða við aðra flokka um rík­is­stjórn­ar­sam­starf, eða hvað er það sem nú tekur við? „Ég hef engar upp­lýs­ingar um slíkt, og satt best að segja veit ég ekki hvað ger­ist nú. Við erum fyrst og fremst að taka þessa ákvörðun út frá vilja flokks­manna,“ segir Guðlaug.

Ekki liggur fyrir hvað ger­ist nú, en ljóst er að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar er óstarf­hæf og þarfn­ast inn­komu nýs flokks úr núver­andi stjórn­ar­and­stöðu, ef hún á að halda velli undir for­ystu Bjarna.

Hann hefur ekk­ert tjáð sig um stöðu mála.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru nú stíf fund­ar­höld hjá bæði Sjálf­stæð­is­flokknum og Viðreisn. Líklegt er að á morgun ráð­ist fram­hald rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins, og yfir höfuð hvernig rík­is­stjórn­ar­mynstur mun taka við valda­þráðum í íslenskum stjórn­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár