Baulið frá blikkbeljunum

Í Evrópu búa um það bil 140 millj­ónir fólks við heilsu­spill­andi hávaða frá far­ar­tækjum. Talið er að árlega lát­ist 12 þús­und manns í álf­unni fyrir aldur fram úr sjúk­dómum tengdum hávaða frá umferð. Í Danmörku einni lát­ast árlega um það bil 500 manns.

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 4. mars, kom út ný skýrsla Evrópsku Umhverf­is­stofn­un­ar­innar. Í skýrslu þess­ari, sem kemur út á fimm ára fresti, er að finna upp­lýs­ingar um hávaða­mæl­ingar sem tengj­ast umferð frá sam­göngu­tækjum.

Upp­lýs­ing­arnar sem fram koma í skýrsl­unni draga upp dökka mynd. Þar segir að 140 millj­ónir búi við heilsu­spill­andi umferð­ar­há­vaða, árlega fái 48 þús­und hjarta- og æða­sjúk­dóma, sem rekja megi til hávaða frá umferð og 6.5 millj­ónir glími við þrá­láta svefnerf­ið­leika vegna hávaða. Og enn­fremur að árlega lát­ist 12 þús­und Evr­ópu­búar, fyrir aldur fram, úr hávaða­tengdum sjúk­dómum.

Og ástandið lag­ast ekki á næstu árum, að mati sér­fræð­inga Evrópsku Umhverf­is­stofn­un­ar­innar. Þeim sem búa við heilsu­spill­andi umferð­ar­há­vaða mun fjölga veru­lega fram til árs­ins 2030. Þetta mun ger­ast þrátt fyrir að eftir tíu ár verði um það bil helm­ingur allra einka­bíla á göt­unum raf­knúnir. Árið 2030 mun íbúum í bæjum og borgum fjölga mikið. Umferð­ar­há­vað­inn er mestur á þétt­býl­is­svæðum þar sem land­rými er tak­markað.

Stóraukinn bílafjöldi er mesti hávaðavaldurinn

Árið 2018 hafði bílum í Danmörku fjölgað um 300 þús­und frá árinu 2013. Fram til árs­ins 2023 telur Danska hag­stofan að bílum fjölgi um önnur 300 þús­und. Gangi þessi spá eftir hefur öku­tækjum á götum Dan­merkur fjölgað um 600 þús­und á tíu árum. Með til­heyr­andi hávaða. Í könnun sem gerð var árið 2000 kom í ljós að 6 pró­sent Dana töldu sig verða fyrir miklu ónæði og óþæg­indum vegna umferð­ar­há­vaða. Í sam­bæri­legri könnun árið 2017 var talan 14 pró­sent. Hafði sem sé meira en tvö­fald­ast á 17 árum.

[adspot]Þegar rýnt var í svörin kom í ljós að nær allir sem spurðir voru nefndu umferð­ina sem hávaða­vald. Öllum sem tóku þátt í seinni könn­un­inni, sam­tals tæp­lega 13 þús­und manns eins og í þeirri fyrri, bar líka saman um að þrátt fyrir að á allra síð­ustu árum hafi verið lögð aukin áhersla á hljóð­lát­ari vélar og hjól­barða hefði það ekki náð að vega upp á móti stór­auknum fjölda bíla á göt­unum.

Verst í fjölbýlishúsum

Í áður­nefndum könn­unum voru þátt­tak­endur spurðir hvort þeir byggju í fjöl­býli, ein­býli eða rað­húsum. Í ljós kom að þeir sem umferð­ar­há­vað­inn plag­aði mest voru íbúar fjöl­býl­is­húsa. Í skýr­ingum með könn­un­unum kom fram að þessi nið­ur­staða kæmi ekki á óvart. Við miklar umferð­ar­götur í borgum og bæjum eru iðu­lega nokk­urra hæða fjöl­býl­is­hús, kannski versl­anir eða önnur fyr­ir­tæki á götu­hæð­inni en íbúðir fyrir ofan. Oft á tíðum er um að ræða hús sem byggð voru fyrir ára­tugum. Þá þótti bæði sjálf­sagt og þægi­legt að búa sem næst göt­unni og ugg­laust hefur fæsta grunað að göt­urnar yrðu síðar að eins konar bílafljótum þar sem þús­undir, eða tug­þús­undir, bíla bruna um stærstan hluta sól­ar­hrings­ins. Í flestum þess­ara húsa sem byggð voru fyrir ára­tugum var ekki hugað sér­stak­lega að ein­angrun og iðu­lega ein­falt gler í gluggum. Þótt mjög víða sé í dag komið tvö­falt gler dugir það ekki til að loka hávað­ann úti. Þegar fjöl­býl­is­hús eru beggja vegna götu, sem kannski er þar að auki mjó, kast­ast hljóðið frá bíl­unum milli hús­anna og eykur þannig á hávað­ann.

Leið­bein­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins varð­andi umferð­ar­há­vaða hljóða upp á 55 desí­bel að deg­inum en 50 um nætur. Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, gaf árið 2018 út nýjar reglur, strang­ari en þær eldri. Samkvæmt þeim má hávaði frá umferð ekki fara yfir 45 desí­bel að næt­ur­lagi og ekki hærra en 53 desí­bel á dag­inn. Rétt er að hafa í huga að desí­bela­kvarð­inn er þannig upp­byggður að breyt­ing upp á 3 desí­bel til hækk­unar þýðir tvö­földun hávað­ans. Þannig er hávaði sem mælist 53 desí­bel tvö­faldur miðað við 50 desí­bel. Hávaði sem mælist 60 desí­bel er á sama hátt aðeins helm­ingur þess sem mælist 63 desí­bel.

Hvað er til ráða?

Á síð­ustu 10 – 15 árum hafa verið gerðar margar til­raunir með yfir­borðs­efni í því skyni að draga úr umferð­ar­há­vaða. Til­raunir með mis­mun­andi gerðir mal­biks, sem er lang algeng­asta yfir­borðs­efnið, hafa sýnt að hávað­inn er mjög mis­mik­ill eftir því hvaða efni er notað. En eins og oft vill verða hald­ast gæðin í hendur við verðið, hljóð­lát­ara mal­bik, ef svo má að orði kom­ast, er all­miklu dýr­ara en það sem algeng­ast er að nota.

Í Þýska­landi hafa verið gerðar ýmsar til­raunir til að draga úr umferð­ar­há­vaða. Þar hefur komið í ljós að með því að draga úr hrað­anum, úr 110 km niður í 90 km minnkar hávað­inn um 4 desí­bel, sem er umtals­vert. Minni umferð dregur að sjálf­sögðu úr hávað­anum en þegar bíl­unum fjölgar og fjölgar er hæg­ara sagt en gert að minnka umferð­ina.

Þéttari byggð þýðir nýbyggingar við umferðargötur

Þótt í þessum pistli hafi einkum verið vitnað til Dan­merkur gildir það sama um mörg lönd. í Evrópu og víðar. Víða, þar á meðal í höf­uð­borg okkar Íslend­inga hefur á síð­ustu árum aukin áhersla verið lögð á þétt­ingu byggðar. En eins og til dæmis Reyk­vík­ingar þekkja vel þýðir þétt­ari byggð að oft á tíðum eru nýbygg­ingar reistar nær miklum umferð­ar­götum en áður. Þessu er reynt að mæta með betri hljóð­ein­angrun, bæði veggja og glugga. Í sölu­aug­lýs­ingum má iðu­lega lesa að ,,mikið sé lagt upp úr hljóð­ein­angrun“ eins og það er orðað. Hvort slíkt sé ætíð til­fellið skal hér ósagt látið en miðað við nið­ur­stöður rann­sókna um tengsl heilsu­fars og hávaða er full þörf á að vanda til verka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár