Samherji hf. hagnaðist um níu milljarða og á eigið fé upp á 63 milljarða

Annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi hennar, hagn­að­ist vel á síð­asta ári. Eign­ar­hald á henni var fært að hluta til barna helstu stjórn­enda Samherja á síð­asta ári.

Þorsteinn Már Baldvinsson, er annar forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, er annar for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Samherji hf., annar helm­ingur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, hagn­að­ist um 64,8 millj­ónir evra, um níu millj­arða króna á með­al­gengi árs­ins 2019, í fyrra. Það er mjög svip­aður hagn­aður og var af starf­sem­inni árið 2018, þegar hagn­að­ur­inn var 63,7 millj­ónir evra. Um er að ræða þann hluta sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og starf­semi hennar í Færeyjum.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Samherja.

Tilkynnt var opin­ber­lega um eig­enda­skipti á Samherja hf. 15. maí síð­ast­lið­inn. Þá birt­ist til­kynn­ing á heima­síðu Sam­herj­a­sam­stæð­unnar um að Þor­steinn Már Bald­vins­son, Helga S. Guð­munds­dóttir og Kristján Vil­helms­son væru að færa næstum allt eign­ar­hald á Samherja hf., sem er eign­ar­halds­fé­lag utan um þorra starf­semi sam­stæð­unnar á Íslandi og í Færeyjum, til barna sinna.

Þau halda hins vegar áfram að vera eig­endur að erlendu starf­sem­inni, og halda á stórum hlut í Eimskip, sem hefur frá 2018 verið vistað inni í öðru eign­ar­halds­fé­lagi, Samherja Holding ehf.

[adspot]Stærsti eig­andi Samherja hf. í dag er félagið K&B ehf., sem er í 2,1 pró­sent eigu Þor­steins Más, for­stjóra Samherja, 49 pró­sent eigu Baldvins Þor­steins­sonar, sonar hans, og 48,9 pró­sent eigu Kötlu Þor­steins­dóttur, dóttur Þor­steins Más. Það á 43,1 pró­sent í félag­inu. Þar á eftir kemur Kristján Vil­helms­son með 28,3 pró­sent hluti. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­sent hlut. Fram­In­vest Sp/f er skráð fyrir 27,5 pró­senta hlut í Blika. Það félag er skráð í Fær­eyj­um. Þor­steinn Már er helsti skráði stjórn­andi þess félags.

Á annað hundrað milljarðar í eigið fé

Eignir Samherja hf. voru metnar á 497,9 millj­ónir evra um síð­ustu ára­mót, eða um 69 millj­arða króna. á meðal þeirra eru afla­heim­ildir sem úthlutað hefur verið til sam­stæð­unnar svo hún geti veitt fisk í íslenskri land­helgi.

Samherji hf. er ekki með mikið af skuldum. Eigið fé félags­ins er 451,9 millj­ónir evra, tæp­lega 63 millj­arðar króna.

Samherji Holding, hinn helm­ingur sam­stæð­unnar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi. Samherja-sam­stæðan átti eigið fé upp á 110,7 millj­arða króna í lok árs 2018. Hagn­aður Sam­herja, þegar bæði Samherji hf. og Samherji Holding voru talin saman, vegna árs­ins 2018 nam sam­tals um 11,9 millj­örðum króna.

Hagn­aður Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hafði numið yfir 112 millj­örðum króna á átta árum, frá árinu 2011 og fram til loka árs 2018. Nú er ljóst að að minnsta kosti níu millj­arðar króna hafa bæst við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár