Glæpirnir sem gera aðra glæpi mögulega

For­dæma­laus gagna­leki frá banda­ríska fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefur vakið mikla athygli í vik­unni. Hann sýnir fram á brotala­mir í eft­ir­liti bæði banka og yfir­valda þegar kemur að því að því að stöðva vafa­sama fjár­magns­flutn­inga heims­horna á milli.

Ljóst er af FinCEN-skjölunum að stórir bankar sem hafa milligöngu um fjármagnshreyfingar í dollurum vita mætavel að þeir eru að hreyfa mikið magn peninga sem eiga misjafnan uppruna
Ljóst er af FinCEN-skjöl­unum að stórir bankar sem hafa milli­göngu um fjár­magns­hreyf­ingar í doll­urum vita mæta­vel að þeir eru að hreyfa mikið magn pen­inga sem eiga mis­jafnan upp­runa Mynd: Pexels

Umfang vafa­samra fjár­magns­flutn­inga um marga stærstu banka Vest­ur­landa er gríð­ar­legt. Þetta sýna FinCEN-skjölin svoköll­uðu fram á. Stjórn­mála­menn og ýmsir aðrir aðilar beggja vegna Atl­ants­hafs telja að grípa þurfi til breyt­inga á reglu­verk­inu um varnir gegn pen­inga­þvætti í kjöl­far upp­ljóstrana fjöl­miðla í vik­unni.

Stóra myndin sem dregin er upp í umfjöll­unum fjöl­margra fjöl­miðla um FinCEN-skjölin, sem láku frá eft­ir­lits­stofnun í banda­ríska fjár­mála­ráðu­neyt­inu, er sú að stórir bankar sem hafa milli­göngu um fjár­magns­hreyf­ingar í doll­urum vita mæta­vel að þeir eru að hreyfa mikið magn pen­inga sem eiga mis­jafnan upp­runa. Oft segj­ast bank­arnir ekki einu sinni vita hver upp­runinn fjár­mun­anna og benda banda­ríska eft­ir­lits­að­il­anum á það, eftir að þeir færa pen­ing­ana. Segjast síðan vera búnir að sinna skyldu sinni.

Þetta gera bank­arnir vit­andi það að lögum sam­kvæmt dugir þeim að láta banda­rísk yfir­völd vita af þessum grun­sam­legu fjár­magns­flutn­ingum með til­kynn­ingu eftir á og að yfir­völd eru gríð­ar­lega ólík­leg til þess að gera nokkuð í mál­unum annað en að slá létt á hand­ar­bakið á fjár­mála­stofn­unum, láta þau greiða sektir sem eru smáar í stóra sam­heng­inu og lofa bót og betrun, sem síðan á sér ekki stað.

[adspot]

Eins og farið hefur verið yfir í fyrri frétt Kjarnans um FinCEN-skjölin, eru umfjall­anir fjöl­miðla um þau afrakstur meira en eins árs yfir­legu blaða­manna um allan heim. Skjölin sem um ræðir eru yfir 2.600 tals­ins, þar af 2.121 svokölluð grun­semd­ar­skýrsla (e. Suspicious Acitivity Report) sem bankar hafa skilað inn til banda­rískra stjórn­valda varð­andi fjár­magns­hreyf­ingar sem þeir sjálfir telja vafa­samar. En afgreiða þó í flestum til­fellum, þrátt fyrir að hafa ríkar heim­ildir til þess að stöðva milli­færsl­urnar að eigin frum­kvæði.

Það sem umfjall­anir upp úr þessum skjölum sýna fram á er alþjóð­legt eðli vafa­samra fjár­magns­flutn­inga. Þrátt fyrir að hér sé ein­ungis um að ræða rúm­lega 2.000 grun­semd­ar­skýrslur, flestar frá árunum 2011-2017, en sumar eldri, er umfang þeirra milli­færslna sem þar eru undir rúmar tvær billjónir (tvö þús­und millj­arðar) banda­ríkja­dala. Þær teygja anga sína til um 170 landa.[links]

Þetta er það sem blaða­menn náðu að púsla saman upp úr rúm­lega tvö þús­und til­kynn­ingum. Bara í fyrra, sam­kvæmt frétt BuzzFeed News, voru yfir tvær millj­ónir slíkra til­kynn­inga sendar inn til FinCEN, þar sem um það bil 270 manns starfa við úrvinnslu þeirra. Og þetta eru bara Banda­ríkin. Fjár­mála­stofn­anir skila einnig inn svip­uðum til­kynn­ingum til stjórn­valda í öðrum ríkjum, en alls­staðar eru slíkar grun­semd­ar­skýrslur háleyni­legar og bundnar banka­leynd. Þær hafa aldrei lekið út í því magni sem nú er til umfjöll­unar.

Sögurnar sem fjöl­miðlar hafa miðlað upp úr þessum skjölum hafa verið margs­konar. Sumar draga upp stóru lín­urnar um umfangið, sem hér hefur verið farið yfir að ofan í grófum dráttum, en aðrar eru með sér­tæk­ari vinkla, um það hvernig fé frá glæpaklíkum, rík­is­stjórnum sem sæta alþjóð­legum við­skipta­þving­unum, hryðju­verka­hópum og fleiri mis­jöfnum aðilum virð­ast fá að streyma um reikn­inga stór­banka á Vest­ur­löndum með þeirra vit­und án þess brugð­ist sé við, hvaða afleið­ingar það hefur að stórir bankar leyfi pen­inga­þvætti slíkra aðila að við­gang­ast og hversu veikt eft­ir­litsum­hverfi banka­geirans í Banda­ríkj­unum er.

Kjarninn tók saman nokkrar áhuga­verðar umfjall­anir.

HSBC flutti vafasamt fé með eftirlitsaðila á öxlinni

BuzzFeed News segir frá.

HSBC, stærsti banki Evrópu, ját­aði árið 2012 að hafa þvættað pen­inga, meira en 880 millj­ónir banda­ríkja­dala, fyrir mexíkóska eit­ur­lyfja­bar­ón­inn Joquin Guzmá, sem er betur þekktur sem El Chapo. Stjórn­endur bank­ans lof­uðu bótum og betrun, borg­uðu 1,9 millj­arða banda­ríkja­dala í sekt og sam­þykktu að utan­að­kom­andi eft­ir­lits­að­ilar fengju að fylgj­ast með því að allt væri með felldu varð­andi pen­inga­þvætt­is­varn­irnar hjá bank­anum.

Mál HSBC og El Chapo, sem kenndur er við Sinaloa-eit­ur­lyfja­hring­inn í Mexíkó, var risa­stórt mál og það stærsta af þessu tagi sem banki hafði staðið frammi fyrir um lengri tíma. En, grun­semd­ar­skýrslur frá reglu­vörðum bank­ans sýna að á því fimm ára tíma­bili sem utan­að­kom­andi aðili fylgd­ist með pen­inga­þvætt­is­vörnum innan HSBC hélt bank­inn áfram að stunda við­skipti og færa pen­inga fyrir félög sem reglu­verðir hans töldu vafasöm.

Umfjöll­unin varpar ljósi á það hversu veikt úrræði það er að láta banka sam­þykkja að sæta utan­að­kom­andi eft­ir­liti, ef ætl­unin er að láta þá koma ein­hverjum böndum yfir pen­inga­þvætti, en eft­ir­lits­að­il­inn sem kom inn í bank­ann til að fylgj­ast með fékk greitt frá bank­anum sjálfum – ekki banda­rísku rík­is­stjórn­inni.

Þeir hafa tak­mörkuð úrræði, geta óskað eftir skjölum bank­ans og reynt að taka við­töl við starfs­menn, en hafa ekki vald til þess að láta neinn vinna með sér. Og bank­arnir vita það. BuzzFeed ræðir við fyrr­ver­andi yfir­mann á skrif­stofu bank­ans á Man­hattan í New York sem segir að litið hafi verið á starf­semi eft­ir­lits­að­il­ans sem hálf­gert grín, innan bank­ans.

Norður-Kórea þvættaði fé í gegnum banka í New York

NBC News segir frá.

Stjórn­völd í Norður-Kóreu virð­ast hafa þvættað pen­inga árum saman með flók­inni slóð skúffu­fé­laga og hjálp frá kín­verskum félögum. Þannig tekst þeim að kom­ast á svig við alþjóð­legar við­skipta­þving­anir, sem eiga að koma í veg fyrir að harð­stjórnin í Pjongj­ang eða aðilar henni tengdir hafi aðgang að alþjóð­lega fjár­mála­kerf­inu.

Grun­sam­legar milli­færslur frá aðilum með tengsl við Norður-Kóreu sem fjallað er um í FinCEN-skjöl­unum námu að minnsta kosti 174 millj­ónum banda­ríkja­dala yfir nokk­urra ára tíma­bil og fóru meðal ann­ars í gegnum banka á borð við JPMorgan Chase og Bank of New York Mellon.

Skúffufyrirtæki í Singapúr heimsótt

BuzzFeed News segir frá.

Í FinCEN-skjöl­unum var að finna fjölda til­kynn­inga um fyr­ir­tæki sem heitir Ask Trading, sem var sagt til húsa í Singapúr og sagð­ist á heima­síðu sinni vera með yfir 200 starfs­menn og starfa í við­skiptum og fjár­fest­ingum með áherslu á Rússland og fyrr­ver­andi Sov­étlýð­veldin.

Þetta fyr­ir­tæki flutti sam­tals að minnsta kosti 671 milljón banda­ríkja­dala á árunum 2001-2016 í gegnum banda­rísk útibú banka á borð við Deutsche Bank, JPMorgan Chase og Bank of New York Mellon. Féð átti sér óræðan upp­runa og til­gangur við­skipt­anna var óljós, sam­kvæmt bönk­unum sjálfum.

Einn reglu­vörður hjá Bank of New York Mellon til­tók sér­stak­lega í grun­semd­ar­til­kynn­ingu sinni að það virt­ist heldur yfir­drifið hjá fyr­ir­tæk­inu að vera að kaupa flú­or­lampa fyrir 27,1 milljón banda­ríkja­dala á þriggja mán­aða tíma­bili, eins og reikn­ingar sýndu fram á. Í umfjöllun BuzzFeed kemur fram að opin­ber gögn frá Rúss­landi sýni fram á að félagið átti engin raun­veru­leg við­skipti með flú­or­lampa þaðan.

BuzzFeed News lagð­ist í rann­sókn­ar­vinnu á störfum þessa fyr­ir­tækis og komst að því að það var alls ekki með 200 manns í vinnu, öllum mynd­unum af vef­síðu þess var stolið af öðrum vef­síðum og þegar blaða­menn bönk­uðu upp á meintri skrif­stofu þess í Singapúr sat þar vafa­samur skatta­lög­maður, sem hefur kom­ist í kast við lögin.

[adspot]

BuzzFeed lét sér­fræð­ing í fjár­mála­glæpum fara yfir skjölin og hann var ekki lengi að draga upp þá mynd að doll­ara­við­skiptin sem Ask Trading hafði átt í með hjálp banda­rískra banka hefðu haft þann til­gang að færa fé með upp­runa í ólög­legu athæfi í Rúss­landi eða fyrir hönd rúss­neskra eða úkra­ínskra aðila sem vildu koma sér undan við­skipta­þving­unum.

Vafasamir viðskiptahættir tyrknesks banka með rík tengsl við stjórnvöld

Deutsche Welle segir frá.

Við­skipti ýmissa tyrk­neskra banka voru til­kynnt til FinCEN, en sam­kvæmt umfjöllun Deutsche Welle stendur einn þar sér­stak­lega upp úr. Það er Aktif Bank, sem er í eigu Calik Holding, einnar stærstu fyr­ir­tækja­sam­stæðu Tyrk­lands.

Calik Holding er með rík tengsl við stjórn­mála­el­ítu Tyrk­lands og margar þær milli­færslur sem til­kynntar voru til banda­rískra yfir­valda vegna gruns um pen­inga­þvætti voru gerðar þegar tengda­sonur Erdogans Tyrk­lands­for­seta var for­stjóri sam­stæð­unnar.

Samkvæmt umfjöllun Deutsche Welle grun­uðu reglu­verðir banda­rískra banka Aktif Bank um vafa­sama fjár­magns­flutn­inga fyrir ýmsa aðila, meðal ann­ars þýska fjár­mála­fyr­ir­tækið Wirecard sem nú tekst á við sinn eigin svikaskandal, vafa­sama aðila í klám­iðn­að­inum og fjölda afganskra aðila, meðal ann­ars gas- og olíu­fé­lag að nafni Watan Group, sem banda­rísk stjórn­völd saka um að vera í fjár­mála­tengslum við Talíbana.

Bank of America lok­aði á frek­ari við­skipti við Aktif Bank vegna síð­ast­nefnda kúnn­ans, sem bank­inn hafði þá þegar fært að minnsta kosti meira en þrjár millj­ónir banda­ríkja­dala fyrir.

Hver verða viðbrögðin?

Stjórn­mála­menn bæði í Banda­ríkj­unum og í Evrópu hafa tjáð sig um umfjall­an­irnar upp úr FinCEN-skjöl­unum í vik­unni og sagt þær til­efni til ræki­legrar end­ur­skoð­unar á þeim vörnum gegn pen­inga­þvætti sem eru í gildi. Öld­ung­ar­deild­ar­þing­menn demókrata og for­seta­fram­bjóð­endur í for­vali flokks­ins, þau Bernie Sanders og Elizabeth Warren, hafa til dæmis bæði sagt að aðgerða sé þörf.

Mel Stride, þing­maður breska Íhalds­flokks­ins og for­maður fjár­mála­nefndar breska þings­ins, sendi frá sér yfir­lýs­ingu á mið­viku­dag og þar sem hann sagði að sumt sem fram hefði komið í umfjöll­unum hefði valdið sér miklum áhyggjum. Hann hefur sent form­legar spurn­ingar á rík­is­stjórn Boris Johnson um það hvort stjórnin sé að gera nóg til að stöðva pen­inga­þvætti.

Ljóst er að gagna­lek­inn og umfjall­an­irnar hafa vakið ýmsa til vit­undar um gríð­ar­legt umfang vafa­samra fjár­magns­flutn­inga um banka­stofn­anir sem njóta trausts á Vest­ur­löndum og áhuga­vert verður að fylgj­ast með því hvernig umræðan um þessi mál þró­ast á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár