Eignir íslenskra lífeyrissjóða jukust um 223 milljarða króna í apríl

Eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins hafa aldrei auk­ist jafn mikið í einum mán­uði og þær gerði í apríl, í miðjum heims­far­aldri. Mestu munar um hækk­andi hluta­bréfa­verð erlendis og veik­ingu krón­unnar.

Eigendur íslenskra lífeyrissjóða er fólkið sem borgar í þá, almenningur í landinu.
Eigendur íslenskra líf­eyr­is­sjóða er fólkið sem borgar í þá, almenn­ingur í land­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins juk­ust um 223 millj­arða króna í apr­íl­mán­uði. Þær hafa aldrei auk­ist um jafn háa upp­hæð í einum mán­uði áður. Samtals námu eign­irnar 5.173,2 millj­örðum króna í lok apr­íl­mán­aðar. Til sam­an­burðar má nefna að eignir sjóð­anna dróg­ust saman um 209 millj­arða króna í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi. Þá voru heild­ar­eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna þó mun minni, eða 1.659 millj­arðar króna, og hlut­falls­legi sam­drátt­ur­inn því mun meiri en hlut­falls­leg hækkun nú.

Þetta kemur fram í nýlegum tölum Seðla­banka Íslands um eignir líf­eyr­is­sjóð­anna.

Mestu mun­aði um að erlendar eignir sjóð­anna juk­ust um 171,4 millj­arða króna. Þær eru núna 1.656,5 millj­arðar króna og hafa aldrei verið meiri. Þar virka saman mikil hækkun á alþjóð­legum hluta­bréfa­mörk­uðum og veik­ing krón­unnar í apr­íl­mán­uði. Hækkunin vekur ekki síður athygli vegna þess að í gildi er óform­legt sam­komu­lag um að líf­eyr­is­sjóð­irnir haldi að sér höndum í gjald­eyr­is­kaupum, og þar af leið­andi erlendum fjár­fest­ingum. Það var gert eftir að for­maður stjórnar Land­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, Guðrún Haf­steins­dóttir, fund­aði með Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra 17. mars síð­ast­lið­inn. Sam­komu­lagið er ekki bind­andi heldur hvatn­ing en í til­kynn­ingu sem send var út vegna þess á sínum tíma sagði: „Sjóð­irnir eru í eigu almenn­ings og því mik­il­vægt að þeir sýni ríka sam­fé­lags­lega ábyrgð þegar kemur til fjár­fest­inga og við­bragða í okkar sam­fé­lagi á óvissu­tím­um.“

[adspot]Inn­lendar eignir sjóð­anna hækk­uðu líka í apríl, alls um 51,6 millj­arða króna, og eru nú 3.516,7 millj­arðar króna. Þar mun­aði mest um inn­lend hluta­bréf og hlut­deild­ars­kirteini sem hækk­uðu um 28,2 millj­arða króna. Úrvals­vísi­talan, sem mælir hækkun þeirra tíu félaga í Kauphöll Íslands sem eru með mestan selj­an­leika, hækk­aði um 5,2 pró­sent í apríl.

Lækkuðu í febrúar en tóku síðan kipp

Eignir kerf­is­ins fóru yfir fimm þús­und millj­arða króna í jan­úar 2020, en lækk­uðu um 88 millj­arða króna í febr­ú­ar. Það var í fyrsta sinn síðan í des­em­ber 2018 sem að eignir kerf­is­ins dróg­ust saman milli mán­aða. Þá lækk­uðu eign­irnar um 100 millj­arða króna en juk­ust svo aftur um 145 millj­arða króna í næsta mán­uði á eft­ir. Þar var því um mjög tíma­bundna nið­ur­sveiflu að ræða.

Eign­irnar juk­ust svo aftur í mars­mán­uði þrátt fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn og þær miklu afleið­ingar sem hann hafði. Þá hækk­uðu eign­irnar um 30,7 millj­arða króna og voru metnar á 4.950 millj­arða króna í lok þess mán­aðar. Í apríl juk­ust þær síðan, líkt og áður sagði, um 223 millj­arða króna.

Búast má við því að eign­irnar hafi hækkað áfram í maí mán­uði, þar sem alþjóð­legir hluta­bréfa­mark­aðir héldu áfram að hækka. Auk þess hækk­aði Úrvals­vísi­tala íslensku kaup­hall­ar­innar um 8,4 pró­sent í þeim mán­uði.

Erlendu eignirnar aukast hratt

Alls eru 67 pró­sent eigna líf­eyr­is­sjóð­anna inn­an­lands. Frá því að fjár­magns­höftum var lyft snemma árs 2017 hafa þeir þó í auknum mæli beint sjónum sínum að fjár­fest­ingum utan land­stein­anna, bæði til að auka áhættu­dreif­ingu sína og til að kom­ast í fjöl­breytt­ari fjár­fest­ingar en þeim býðst á Íslandi. Hlut­fall inn­lendra eigna líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins var á þeim tíma 77 pró­sent og hefur því hlut­falls­lega dreg­ist veru­lega sam­an.

Í apríl 2017, í kjöl­far þess að höft­unum var lyft, voru erlendar eignir kerf­is­ins 786 millj­arðar króna. Í dag eru þær rúm­lega tvisvar sinnum meiri, eða 1.656,5 millj­arðar króna. Frá byrjun árs í fyrra hafa þær auk­ist um 456 millj­arða króna, eða um 38 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár