Sjálfstæðisflokkurinn rýkur upp og mælist með 27 prósent fylgi

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki mælst meira í könn­unum frá því sum­arið 2017, áður en þáver­andi rík­is­stjórn sem leidd var af flokknum sprakk vegna upp­reist æru-máls­ins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 6,1 pró­sentu­stigi frá síð­ustu könnun MMR og mælist nú með 27,4 pró­sent fylgi. Það er mesta fylgi sem hann hefur mælst með frá því sum­arið 2017, áður en upp­reist æru-málið kom upp, sem leiddi til kosn­inga þá um haustið.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina stór­eykst líka og mælist nú 52,9 pró­sent. Hann var 38,8 pró­sent í síð­ustu könnun sem MMR fram­kvæmdi í febr­úar og ljóst að neyð­ar­á­standið sem ríkið vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins hefur aukið stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina veru­lega, eða um 36 pró­sent á einum mán­uði. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur ekki mælst svona mikil frá því fyrir tæpum tveimur árum, eða í maí 2018.

Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokk­ur­inn með 14,7 pró­sent fylgi, sem er aðeins minna en fyrir mán­uði síðan, og Píratar eru líka á svip­uðu róli með 10,2 pró­sent. Sömu sögu er að sega af Viðreisn, sem tapar 0,8 pró­sentu­stigum og mælist með 9,7 pró­sent fylgi.

Mið­flokk­ur­inn tapar umtals­verðu fylgi milli kann­anna og mælist nú með tíu pró­sent fylgi. Fyrir mán­uði síðan sögð­ust 12,6 pró­sent lands­manna ætla að kjósa hann. Vinstri græn standa nán­ast í stað milli mán­aða og eru með 9,8 pró­sent fylgi, Framsókn bætir lít­il­lega við sig og nýtur nú stuðn­ings 8,1 pró­sent kjós­enda.

Sós­í­alista­flokkur Íslands stendur í stað frá síð­ustu könnun með 4,7 pró­sent fylgi og 3,7 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa Flokk fólks­ins.

Mikið stökk og mest á kostnað Miðflokksins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði mælst mjög illa í könn­unum um tölu­vert skeið og langt undir kjör­fylgi hans, sem var 25,2 pró­sent í haust­kosn­ing­unum 2017. Fylgið síð­ustu mán­uði hafði þannig mælst frá 18,1 til 21,3 pró­sent. Því er stökkið sem átti sér stað nú umtals­vert og fylgið mælist 2,2 pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi.

Þrír aðrir flokkar mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum. Sam­fylk­ingin er með 2,6 pró­sentu­stiga meira fylgi, Píratar með eitt pró­sentu­stig meira en þá og Viðreisn með þrjú pró­sentu­stig. Sam­an­lagt hefur þessi frjáls­lynda miðju­blokk því bætt við sig 7,6 pró­sentum frá síð­ustu kosn­ingum.

Stökk Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist bitna mest á Mið­flokknum sem tapar 2,6 pró­sentu­stigum milli mán­aða og mælist nú með minna fylgi en hann fékk í kosn­ing­unum 2017.

Vinstri græn eru enn 7,1 pró­sentu­stigi frá kjör­fylgi sínu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þyrfti að bæta við sig 2,6 pró­sentu­stigum til að vera á sama stað og haustið 2017.

Könnunin var fram­kvæmd 18. - 20. mars 2020 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 1.034 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár